Vikan


Vikan - 27.02.1986, Page 13

Vikan - 27.02.1986, Page 13
Isabella Rossellini, dóttir Ingrid Bergman, hefur nú leikið fyrsta stóra hlutverkið á hvíta tjald- inu. Myndin nefnist HVÍTAR NÆTUR og fjallar um rússn- eskan ballettdansara sem strokið hefur til Bandaríkjanna. Hann kemst í mikinn bobba þegar flugvél, sem hann er í, nauð- lendir í Sovétríkjunum. Yfirvöld í Sovét- ríkjunum reyna að fá dansarann til að snúa heim af fúsum og frjálsum vilja. Það tekst heldur illa ... og svo kemst ástin í spilið. Dansarann leikur Mikhail Barys- hnikov og Isabella Rossellini ástkonu hans. Sagan hermir að einnig hafi verið kært með þeim tveimur utan tjalds. Isa- bella hefur fengið góða umsögn um frammistöðu sína í myndinni og ekki er ósennilegt að hér sé byrjun á glæstum ferli. Sylvester Stallone - Rocky sjálf- ur, hefur verið ásakaður um að vera lítill orðsins maður og má það vel vera. En Stallone er samt sem áður rithöfundur. Arið 1976 kom út bókin Paradise Alley eftir hann. Það er skáldsaga sem segir frá lífi ungra New York-búa af ítölskum uppruna. - Hann reynir að minnsta kosti, drengurinn. GRISDYR Heill sé hættulegu lífi á ári tígrisdýrs- ins. Frá 9. febrúar hafa kraftur og hug- rekki legið í loftinu, ólíkt því rólyndislofti sem einkenndi síðasta ár, ár vísundsins. Kínverji heilsar í veislu og segir: ,,Halló, ég er api,“ og annar svarar: „Sæll, ég er svín.“ Þetta er ekki dæmi um nautnalegar samræður þeirra sem unun hafa af því að niðurlægja sjálfa sig heldur er einungis verið að skiptast á lágmarks- upplýsingum sem byggja á kínverskri stjörnuspeki. Kínverjar telja að stjörnumerkin segi mikið til um persónuleika fólks, stjörnu- merki þeirra eru tólf og hvert þeirra er kennt við ákveðið dýr og þau ríkja í heilt ár hvert. Dýrslegir eiginleikar ríkjandi dýrs móta persónuleika þess fólks sem fætt er það árið og einnig atburði ársins. Nú er sem sagt ár tígrisdýrsins og þeir sem eru fæddir 1926, 1938, 1950, 1962 og 1974 eru því tígrisdýr í toppformi núna. Eiginleikar tígrisdýrsins eru fegurð, styrkur, orka og hugrekki. Oscar Wilde, Beethoven, Buddy Holly og Marilyn Monroe voru öll tígrisdýr - íslensku tígr- isdýrin þekkirðu sjálfsagt fyrirhafnar- laust. Tígrisdýr hafa oft byltingarkenndar skoðanir og berjast fyrir málum sínum af hugsjónaeldi - þekktasti byltingartíg- urinn er Karl Marx. Tígurinn hefur oft óslökkvandi þrá til að skapa sér nafn og „verða einhver“ en sú þrá leiðir gjarnan til ófarnaðar. Kínverjar segja að oftar en ekki mæti tígurinn dauða sínum einmitt þegar hann hefur náð takmarki sínu í lífinu - og það á svo sannarlega við um eitt fegursta tígrisdýr allra tíma, Marilyn Monroe. Samkvæmt kínversku stjörnuspekinni mun þetta tígrisár bera merki mikilla átaka, ár þar sem allt endasteypist, tólf mánaða veisla sem endar í timburmönn- um. Hvað sem verður þá virðist kominn tími til að sýna klærnar! Norska hljómsveitin A-HA hefur sem kunn- ugt er heldur betur sleg- ið í gegn í Bandaríkjun- um, Bretlandi og víðar á helstu menningarsvæðum poppsins. Þrátt fyrir annríki við upptökur og annað sem frægðinni fylgir létu liðs- mennirnir, þeir Morten, Pál og Magne, svo lítið að fljúga heim til Noregs og taka við verðlaunum þarlendra plötu- útgefenda, „Spellemannsprisen“. Ha, ha... Vikan 9. tbl. 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.