Vikan - 27.02.1986, Blaðsíða 33
um 1500 konur til að leika aðal-
hlutverkið í mynd hans, Crazy from
the Heat. Roth til aðstoðar var
félagi hans og samsærismaður,
Pete Angelus, sem unnið hafði með
honum að myndböndunum góðu.
Þeir félagar kalla sig í daglegu tali
Picasso-bræðurna. David Lee:
„Picasso tengist list, gæðalist, og
bræður er svona eins og heimsend-
ingarþjónusta með pitsur, list okk-
ar er þarna einhvers staðar mitt á
milli.“
Aiex, Sammy Hagar. Eddie
og MichaelAnthony.
Picasso-bræðumir: Pete Angelus ogD.L R.
sveitarinnar. Hann vildi strax fara
út í að gera kvikmynd eftir hljóm-
leikaferðalagið en það vildu hinir
ekki, vildu heldur taka það rólega
og hljóðrita plötu á löngum tíma
og þá kannski halda nokkra stóra
útitónleika fyrir 70-80 þúsund
manns. Þetta þótti hinum fram-
takssama og fjöruga David Lee
Roth heldur þunnur þrettándi og
hann vatt sér í upptöku á EP-plötu
með fjórum lögum og lét ekki þar
við sitja heldur tók upp myndband
við öll lögin og varð eitt þeirra
geysilega vinsælt á síðasta ári, Just
á Gigalo/Aint Got Nobody. Þegar
öllu þessu var lokið og hann fór
enn á ný til fundar við félaga sína
til að athuga hvernig málin stæðu
kom í Ijós að viðhorf þeirra var
óbreytt þannig að það var aðeins
eitt að gera, hætta, enda vil ég
meina að Roth sé orðinn það stórt
nafn að hann þurfi hinna ekki við
flengur. Eins og Roth segir eru til
milljónir sem kunna að semja tón-
listogflytjahana.
Þegar þessi orð eru rituð hefur
Van Halen lokið við upptökur á
nýrri plötu sem væntanlega verður
gefín út innan skamms. Þeir láta
ákaflega vel af því efni sem þeir
hafa hljóðritað og segir Eddie að
þetta sé hans besta hingað til, hann
hafi meira að segja samið ballöðu
sem sé hans besta lag fyrr og síðar.
LEEROTHOG
FRAMTÍÐIN
En það er öruggt mál að þeim
verður róðurinn örðugur því það
má segja að hljómsveitin hafi misst
andlit sitt. Það er líka víst að ekki
hafa margir rokkarar aðra eiris
sviðsframkomu og „sjarma“ og
David Lee Roth. En það getur allt
gerst í þessum bransa og ég hef
sjálfur trú á að Van Halen muni
standast brimið og halda velli.
En þá er það David Lee Roth og
framtíð hans.
Fyrr í vetur hélt Roth opið hús
i Palladium hljómleikahöllinni í
Hollywood þar sem prófaðar voru
Það fer engum sögum af því
hvort þeir félagar fengu réttan
kvenmann en svo mikið er víst að
upptökur myndarinnar eru nú um
það bil að hefjast og mun þeim
ekki ljúka fyrr en um mitt sumar.
Þá tekur við hljómleikaferðalag
sem Roth segir að muni standa yfir
í heilt ár eða lengur og einhvern
tíma, meðan á upptöku myndarinn-
ar stendur, mun hann taka upp
breiðskífu sem út mun koma um
líkt leyti og hljómleikaferðalagið
hefst.
ENGINN LEIKARI
Hvað segir Roth um þá fullyrð-
ingu Eddie Van Halen að hann
(Roth) vilji bara verða kvikmynda-
stjarna?
„Ég er enginn leikari og ég er
fyrsti maðurinn sem viðurkennir
það. Ég er bara að leika sjálfan
mig í þessari mynd, þetta er bara
ég og liðið í kringum mig og það
sem gerist í kringum það. Málið
er það að ég er að taka mér nokk-
urra mánaða hvíld frá músíkinni
til að gera kvikmynd. Engar
áhyggjur, ég kem aftur.“
Því má búast við að mikið verði
að gerast á báðum vígstöðvum -
hjá Van Halen annars vegar og
David Lee Roth hins vegar - of
munum við að sjálfsögðu fylgjasi
með framgangi mála og láta vita.
SKÍTKAST
En nú er að verða ár liðið síðan
David Lee yfirgaf Van Halen eftir
fjórtán ára samstarf og hefur verið
heldur leiðinlegt skítkast í hann
frá hans gömlu félögum síðan.
Hefur Eddie verið sérstaklega ið-
inn við að hreyta í Roth ónotum
og kallað hann öllum illum nöfn-
um, hefur meðal annars sagt að
hann hafi aldrei getað samið al-
mennilega hugljúfa tónlist vegna
þess að Roth hafi aldrei getað
sungið og þar fram eftir götunum.
Söngvarinn, sem kom í staðinn
fyrir Roth, heitir Sammy Hagar og
hefur verið virtur sólóisti um langt
skeið og gefið út fjöldann allan af
hljómplötum í eigin nafni, auk þess
að vera vel liðtækur söngvari. Þá
þykir hann gítarleikari vel í meðal-
lagi en þó mun hann líklega ekki
spila mikið á það hljóðfæri með
Van Halen.
Ein aðalástæðan fyrir úrsögn
Roths mun vera sú að hann var
ekki ánægður með virkni hljóm-
Vikan 9. tbl. 33