Vikan

Tölublað

Vikan - 27.02.1986, Blaðsíða 56

Vikan - 27.02.1986, Blaðsíða 56
J Ridgeway. Þú virðist telja að erfðaskrá frú Harter heitinnar sé í okkar vörslu?" Charles starði á hann ... „En það - ég hef að minnsta kosti heyrt frænku mína nefna það.“ „Ó! Einmitt, einmitt! Hún var í okkar vörslu.“ „Var?“ „Eg sagði það. Frú Harter skrifaði okkur og bað um að sér yrði send hún síðasta þriðjudag." Charles tók að líða ónotalega. Hann fann fjarlægan fyrirboða um óþægindi. „Eflaust kemur hún í ljós innan um skjölin hennar," hélt lögfræðingurinn mjúkmáli áfram. Charles sagði ekkert. Hann þorði ekki að treysta tungunni. Hann var þegar búinn að fara töluvert rækilega í gegnum skjöl frú Hart- er, nægilega vel til að vera viss um að þar væri engin erfðaskrá. Eftir fáein andartök sagði hann það, þegar hann hafði endurheimt sjálfs- stjórnina. Honum fannst sjálfum rödd sín óraunveruleg og hann hafði það á tilfinning- unni að kalt vatn seytlaði niður bakið á honum. „Er einhver búinn að fara yfir persónulegar eigurhennar?" spurði lögfræðingurinn. Charles svaraði að þernan hennar, hún Eliza- beth, hefði gert það. Hopkinson lagði til að sent væri eftir Elizabeth. Hún kom strax, þung- búin en keik, og svaraði spurningunum sem fyrir hana voru lagðar. Hún hafði farið yfir föt húsmóður sinnar og persónulegar eigur. Hún var alveg viss um að engin lagaleg plögg á borð við erfðaskrá hefðu verið þar á meðal. Hún vissi hvernig erfðaskrá leit út - veslings húsmóðir hennar hafði haldið á henni sama morgun og hún dó. „Ertu viss um það?“ spurði lögfræðingurinn hvasst. „Já, herra minn. Hún sagði mér það. Og hún lét mig taka við fimmtíu pundum í seðlum. Erfðaskráin var í löngu, bláu umslagi.“ „Það er alveg rétt,“ sagði Hopkinson. „Nú, þegar ég fer að hugsa um það,“ hélt Elizabeth áfram, „lá sama bláa umslagið á borðinu þarna morguninn eftir - en það var tómt. Eg lagði það á skrifborðið.“ „Ég man eftir að hafa séð það þar,“ sagði Charles. Hann stóð upp og gekk að skrifborðinu. Eftir fáein andartök sneri hann sér við með umslag í hendinni og rétti Hopkinson það. Sá síðar- nefndi skoðaði það og kinkaði kolli. „Þetta er umslagið sem ég setti erfðaskrána í síðasta þriðjudag." Báðir mennirnir litu hvasst á Elizabeth. „Var það eitthvað fleira, herrar mínir?“ spurði hún auðmjúk. „Ekki þessa stundina, þakka þér fyrir.“ Elizabeth gekk til dyra. „Andartak," sagði lögfræðingurinn. „Var eldur í arninum þetta kvöld?” „Já, herra, það er alltaf eldur þar.“ Elizabeth fór út. Charles hallaði sér fram, hvíldi skjálfandi hönd á borðinu. „Hvað heldurðu? Hvað ertu að gefa í skyn?“ Hopkinson hristi höfuðið. „Við verðum að vona áfram að erfðaskráin komi í ljós. Ef ekki.. „Jæja, hvað ef hún gerir það ekki?“ „Ég er hræddur um að það sé aðeins hægt að draga eina ályktun. Frænka þín sendi eftir erfðaskránni til að eyðileggja hana. Hún vildi ekki að Elizabeth tapaði á því svo að hún lét hana hafa sinn skerf í reiðufé." „En af hverju?“ hrópaði Charles tryllings- lega. „Afhverju?" Hopkinson hóstaði, þurrum hósta. „Þú hefur ekki - hm - lent í deilu við frænku þína, Ridgeway?" tautaði hann. Charles saup hveljur. „Nei, alls ekki,“ hrópaði hann heitur. „Sam- Loksins eru UNO-spilin komin. Verö kr. 425,- Sendum í póstkröfu. Hiá Magna Laugavegi15 Símt23011 Opið laugardaga 9—12 komulag okkar var einlægt og ástúðlegt alveg til hins síðasta." „Ah!“ sagði Hopkinson og leit ekki á hann. Charles brá í brún er það rann upp fyrir honum að lögfræðingurinn trúði honum ekki. Hver gat vitað hvað þessi uppþornaði kurfur hafði heyrt. Orðrómur um athæfi Charles gat hafa borist honum til eyrna. Hvað var eðlilegra en að hann byggist við að orðrómur af svipuðu tagi hefði borist til frú Harter og að komið hefði til orðasennu milli frænkunnar og Charles afþví tilefni? En því var ekki þannig varið! Charles upp- lifði eitt beiskasta andartak á ævi sinni. Lygum hans hafði verið trúað. Nú, þegar hann sagði sannleikann, var honum ekki trúað. Hvílík kaldhæðni! Auðvitað hafði frænka hans ekki brennt erfðaskrána! Auðvitað! Allt í einu staldraði hann við í huganum. Hvaða mynd var þetta sem reis fyrir augum hans? Gömul kona með aðra hönd á hjarta ... eitthvað féll... blað ... sem datt í rauðglóandi arininn... Charles varð blóðrauður í framan. Hann heyrði hása rödd - sína rödd - spyrja: „Ef erfðaskráin fmnst ekki... ?“ „Það er til gömul erfðaskrá frú Harter, dag- sett í september 1920. í henni arfleiðir frú Harter frænku sína, Miriam Harter, nú Miriam Robinson, að öllu.“ Hvað var gamla fíflið að segja? Miriam? Miriam með leiðinlega manninn og vælandi krakkaormana fjóra? Öll kænska hans - fyrir Miriam! Síminn hringdi hvellt við olnboga hans. Hann tók upp tólið. Þetta var rödd læknisíns, hressileg og góðleg. „Ert þetta þú, Ridgeway? Hélt að þú vildir vita það. Það er komin niðurstaða úr krufning- unni. Dánarorsökin er sú sem ég hélt. En raun- ar var hjartveikin meiri en mig grunaði meðan hún var á lífi. Með ýtrustu varkárni hefði hún ekki getað lifað lengur en í hæsta lagi tvo mánuði. Hélt að þú vildir vita það. Það gæti huggað þig að einhverju leyti." „Afsakaðu," sagði Charles, „viltu vera svo vænn að segja þetta aftur?“ „Hún hefði ekki getað lifað lengur en tvo mánuði,“ sagði læknirinn heldur hærra. Þetta kemur allt út á besta veg, kæri vinur .. En Charles var búinn að skella á. Hann tók eftir að lögfræðingurinn talaði til hans eins og úr mikillifjarlægð. „Drottinn minn, Ridgeway, ertu veikur?" Fjárinn hafi þau öll! Sjálfumglaða lögfræð- inginn! Þann baneitraða asna, Meynell! Það var engin von framundan - bara skugginn af fangelsisveggnum... Honum fannst einhver hafa verið að leika sér að honum - leika sér að honum eins og köttur að mús. Einhver hlaut að vera að hlæja... 56 Vikan9. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.