Vikan - 27.02.1986, Side 34
MYRTUR?.
Fyrir sautján árum fannst Brian
Jones í Rolling Stones látinn í
sundlauginni á heimili sínu í
Sussex í Englandi. Rannsókn
leiddi í ljós að hann hafði
drukknað undir áhrifum áfengis og eitur-
lyfja. Náinn vinur Jones heldur því nú fram
að dauði hans hafi ekki verið slys heldur
hafi hann verið myrtur.
Maður þessi heitir Nicholas Fitzgerald og
var náinn vinur Brian Jones og nágranni.
Hann hefur nýlega skrifað bók um Brian
Jones þar sem hann heldur því fram að hann
hafi séð þrjá menn birtast á sundlaugar-
bakkanum þegar Brian Jones var að fá sér
sundsprett síðla kvölds og þeir kaffært hann
í lauginni.
Þetta umrædda kvöld, 2. júlí 1969, reyndi
Fitzgerald að hringja í Brian Jones. Einhver
tók tólið af símanum en ekkert heyrðist
nema hávær tónlist og einkennilegur hávaði.
Hann ákvað því að fara sjálfur yfir til vinar
síns og þegar hann kom inn í garðinn sá
hann að eitthvað var á seyði við laugina.
Hann sá þrjá menn við laugarendann. Allt
í einu beygði einn þeirra sig niður og keyrði
ljóst höfuð á kaf i vatnið. I hinum enda
laugarinnar voru karlmaður og kona en þau
hreyfðu hvorki hönd né fót til hjálpar.
Fitzgerald segist hafa verið að hugsa hvað
hann gæti gert til bjargar Brian Jones þegar
hann var gripinn og stór maður, sem talaði
með Lundúnahreim, sagði honum að hypja
sig hið snarasta ella yrði hann næstur.
Daginn eftir birtist fréttin um dauða Brian
Jones á forsíðum blaða um heim allan. Sagt
var að hann hefði átt rólegt kvöld heima
með nokkrum vinum sínum og drukknað þar
sem hann var að fá sér sundsprett.
Mánuði áður en Brian Jones lést hafði
hann sagt skilið við Rolling Stones. Hann
var djúpt sokkinn vegna eiturlyfjafíknar
sinnar og hafði valdið hljómsveitinni marg-
víslegum vandræðum. Hann haf'ði oft lýst
því yfir að tónlist Jaggers og Richards væri
honum alls ekki að skapi lengur og hann
ætlaði að stofna nýja hljómsveit. Engu að
síður var hann mjög bitur og sár vegna alls
þessa.
Brian Jones hafði oftar en einu sinni sagt
við vini sína að honum fyndist eins og ein-
hver væri á eftir honum. Hann var kvíðinn
og hræddur og stundum vildi hann ekki fara
einn heim á glæsilegt bóndabýlið þar sem
hannbjó.
Margar kenningar eru uppi um hvað Jones
gæti hafa óttast. Hann var, eins og áður
sagði, langt leiddur af eiturlyfjaneyslu og
var þess vegna mikið í slagtogi við marga
miður heiðarlega náunga. Vitað var að hann
skuldaði mörgum peninga og aldrei að vita
nema hann hafi sjálfur verið flæktur í ein-
hver vafasöm viðskipti.
Aðrir meðlimir Rolling Stones hafa lítið
um málið sagt. Keith Richards hefur þó látið
hafa eftir sér að honum hafi aldrei fundist
öll kurl komin til grafar í þessu máli. Hann
segist hafa vitað til þess að það hafi verið
fjöldi fólks heima hjá Brian Jones þetta
kvöld en það hafi allt forðað sér og ekki
gefið sig fram síðar.
Ástæðuna fyrir því að Fitzgerald sagði
ekki frá því sem hann sá fyrr en nú segir
hann vera þá að hann hafi verið hræddur
um örlög sín og fjölskyldu sinnar. Hvort sem
hann þegði eða ekki þá gat ekkert vakið vin
hans aftur til lífsins. Úr þvi fæst sjálfsagt
aldrei skorið héðan af hvað hæft er í fullyrð-
ingum hans.
34 Vikan9. tbl.