Vikan


Vikan - 27.02.1986, Page 58

Vikan - 27.02.1986, Page 58
umhver. Manninum er eiginlegt að skreyta sjálfan sig og umhverfi sitt. Tískan ræðst mikið af hugmyndum fatahönn- uða, tískufrömuða og framleiðenda. Svo virðist sem fólk klæðist þessum tísku- flíkum til þess að sam- lagast fjöldanum fremur en að skera sig úr. Þó eru alltaf einhverjir sem ekki fylgja duttlungum tískunnar heldur þróa með sér persónulegan stíl í klæðaburði. Með því vilja menn oft vekja á sér athygli, undirstrika skoðanir sínar, gera uppreisn gegn ríkjandi gildismati, nú, eða þeir hafa hreinlega annan fegurðarsmekk en tísk- an segirtil um. Á myndunum hér á síðunum má sjá Hrafn- kel Sigurðsson og Húbert Nóa í eigin föt- um. Þeir eru báðir í nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla ís- lands. 58 Vikan 9. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.