Vikan - 29.05.1986, Síða 61
|>arna niður í portið. Þar er umhverfið orðið
dálítið útlent og sérlega notalegt að setjast inn
í blómaskálann í Eldvagninum og fá sér eitt-
hvað í svanginn - eða bara kaffisopa.
Eigendurnir, Bryndís Þráinsdóttir og Gils
Harðarson, opnuðu staðinn 22. febrúar í ár.
Nafnið gefur til kynna að eldur er notaður við
matreiðsluna, enda er sérgrein staðarins
„flamberaðar" nauta-, grísa- eða lambalundir.
I >að er á kvöldin sem boðið er upp á slíkar steik-
ur. Enginn prentaður matseðill liggur frammi
heldur kemur þjónustustúlka að hverju borði
og greinir frá réttunum og verði þeirra ásamt
víniistanum. Auk lundanna var hægt að fá
blandaða sjávarrétti í forrétt, reyktan lax með
hrærðu eggi eða súpu. Eftir að menn hafa gert
upp við sig hvaða kjöt þeir hyggjast snæða
velja þeir úr fjórum tegundum af sósum: kon-
íaks-, sinneps-, pipar- og portvíns. Reyndar geta
kokkarnir Íagað sósur eftir ósk viðskiptavin-
anna. Kokkarnir eru í miðjunni og elda þar
yfir fallegum kopargastækjum. Eldtungurnar
„sleikja" viðarklætt loftið og hitinn verður
töluverður á meðan á eldamennskunni stendur.
Síðan hella kokkarnir rjóma og ýmsum bragð-
efnum út á pönnuna, hræra í og smakka og,
voila, maturinn er tilbúinn fyrir augunum á
gestunum.
Vikumenn smökkuðu lambalundir í port-
vínssósu og svínalundir í sinnepssósu og voru
báðir réttirnir frábærlega góðir. Mátti varla á
milli sjá hvor var betri en þó hölluðumst við
að því að lokum að okkur þætti sinnepssósan
bragðmeiri og betri. Þeir sem eru eldhressir og
sársvangir klukkan sjö á morgnana geta farið
í morgunverðarhlaðborð á Eldvagninn og borð-
að þar nægju sína fyrir 150 krónur. Ef menn
eru orðnir svangir í hádeginu (eða fyrr því
hádegið þar byrjar klukkan hálfellefu) þá má
borða eins og hvern lystir af hádegisverðar-
hlaðborðinu fyrir 280 krónur. Þá er boðið upp
á margs konar brauð, bökuð á staðnum, nokkr-
ar tegundir af áleggi, skelfisk og rækjur. Menn
blanda eigið hrásalat að vild og þeir sem eru
ekkert óskaplega svangir geta fengið sér súpu-
disk og brauð. Um miðjan dag er Eldvagninn
einstaklega notalegur staður til að fá sér kaffi
og kökur eða bara molakaffi.
Fljótlega ætla eigendurnir að bæta við mat-
seðilinn og bjóða upp á fondue í miðri viku,
bæði kjöt- og ostafondue. Ætlunin er að vera
með nokkuð margar tegundir af ostafondue en
eftir var að fá nánari upplýsingar frá Osta- og
smjörsölunni um hvaða ostar hentuðu best.
Staðurinn er lítill en hlýlegur (og hlýr) en leð-
ursófinn, sem er eftir endilöngum staðnum,
hefur áreiðanlega verið hannaður af leggja-
löngum karlmanni því ekki var nokkur leið
fyrir kvenmann af meðalstærð að sitja uppi við
bakið á sófanum því þá náði maður ekki í borð-
ið og það getur verið dálítið þreytandi að sitja
kvöldstund með engan stuðning við bakið. Eitt
enn gátum við sett út á staðinn en það var að
45 mínútur liðu frá því við pöntuðum matinn
þar til hann kom á borðið. Ekki voru samt til-
takanlega margir í salnum og engin skýring
var gefin á töfinni. Að öðru leyti var þetta fyrir-
taks kvöld og við óskum Eldvagninum langra
lífdaga.
h-
22 TBL VIKAN 61