Vikan - 23.10.1986, Side 25
raunar að fara út í viðræður við
námsmenn nú á næstu dögunt."
- Finnst þér að námsmenn hafi
beitl sér nóg að innri málum Háskól-
ans?
„Nú á ég miklu erfiðara með að
dæma. Ég hygg þó, af þeirri nasasjón
sem ég hef fengið af Háskólanum í
starfi mínu sem menntamálaráð-
herra, að svo sé ekki. Ég marka þetla
fyrst og fremst af því að skóiinn hef-
ur ekki náð þeim frama og þroska
sem hann hefði átt að gera. En þar
kemur margl fleira til. Stjórnmála-
menn eiga þarna nokkra sök. Skiln-
ingur á þörfum Háskólans niðri í
þingi hefur allar götur verið lítill. Ég
tala nú ekki um á árum áður, þá var
þetta olnbogabarn. En það hafa ver-
ið hörkumenn í forsvari fyrir
Háskólann sem haldið hafa merki
hans á lofti.
Nú er að koma ný kynslóð manna,
raungreinamennirnir, það er ekkert
nema gott um þá að segja, en ég
myndi sakna þess ef húmanísk fræði
yrðu útundan."
- Hvað rædduð þið á stúdenta-
ráðsfundum þegar þú sast í Stúd-
entaráði?
„Ja, við Jón Böðvarsson skóla-
meistari tefldum nú stundum á
fundum þegar okkur leiddist þófið.
Þó held ég að ég hafi nú ekki dregið
af mér í þrætunuin frekar en endra-
nær. Höfuðdeilurnar voru um
framkvæmd fyrsta desember kosn-
inganna. Þegar ég sat í Stúdentaráði
voru þar fimm flokkar: Félag frjáls-
lyndra stúdenta sem voru framsókn-
armenn, Félagjafnaðarmanna, Félag
róltækra stúdenta, Félag þjóðvarn-
armanna og Vaka, félag lýðræðis-
sinnaðra stúdenta. Deilurnar stóðu
um það hver ætti að skipuleggja há-
tíðahöldin og fá aðalræðumann
hátíðahaldanna. Svo voru það hags-
munamálin. Til dæmis var deilt um
það hver ætti að sitja í stjórn stúd-
entagarðanna og margt fleira deildu
menn um. Þetta var mikil flokkapóli-
tík og öll mál gerð að flokkspóli-
tískum málum. Því mæddi mikið á
formanni Stúdentaráðs að halda
þessu saman. En liann var þá Skúli
Benediktsson og var framsóknar-
maður, kaldur kall, Skúli, en mikill
húmoristi og manneskja.
Annars á ég engar góðar minning-
ar úr Háskólanum. það er þá helst
úr Stúdentaráði sem ég á góðar
minningar. Ég undi mér illa. hafði
lítinn áhuga á viðskiptafræðinni sem
ég var að læra á þeim árum, stund-
aði námið slaklega og var að gera
allan fjandann annan en læra. Þvi tel
ég mig tiltölulega ótruflaðan af hag-
fræðinámi mínu."
Við þökkum Sverri fyrir spjallið.
Össur Skarphédimson:
„Eg var gasaiega róttækur þáu
Össur Skarphéðinsson, ritstjóri á
Þjóðviljanum, var vel þekkt nafn í
stúdentapólitíkinni á síðasta áratug.
Össur sat þar í forsæti fyrir vinstri-
menn sem hétu þá Verðandi, félag
róttækra stúdenta. Það fyrsta sem
Össur segir við mig þegar við hitt-
umst er: „Ég var gasalega róttækur
þá.“ Og um leið hlær hann að sjálf-
um sér.
Það ár, sem Össur var fonnaður
Stúdentaráðs, voru lánamálin ofar-
lega á baugi. En gefum Össuri orðið.
„Á árunum 1976-77 ákváðu
stjórnvöld að setja vísitölutryggingu
á námslán. Þetta voru fyrstu lánin á
markaðnum sem voru verðtryggð.
Námsmenn voru þessu gjörsamlega
mótfallnir og við stóðum í harðri
baráttu við að reyna að milda lögin.
Félagsleg virkni stúdenta á þessum
árum var mjög mikil. Við fórum í
mótmælagöngur, hertókum mennta-
málaráðuneytið og sátum á þing-
pöllum þegar lánamál voru rædd á
þingi. Ég minnist til dæmis einnar
göngunnar sem við stóðum fyrir, þá
örkuðum við ofan úr Háskóla og
niður á Austurvöll og héldum þar
þrjú þúsund manna útifund. Eins
atviks úr þessari göngu minnist ég
með mikilli gleði en það var þegar
Kjartan Gunnarsson, núverandi
framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, gekk í broddi fylkingar veifandi
mótmælaspjaldi, gegn ríkisstjórninni.
Svo minnist ég viðbragða hægri
pressunnar þar sem við vorum pres-
enteruð sem óalandi og óferjandi
villimenn. Sem við auðvitað vorum.
Þegar við hertókum menntamála-
ráðuneytið sátum við þar dagpart til
að leggja áherslu á stöðu okkar. Þá
var Vilhjálmur frá Brekku mennta-
málaráðherra og við ræddum við
hann hversdagsleg málefni og slúðr-
uðuin við hann um það sem var að
gerast i pólitíkinni i Reykjavík og
austur í Mjóafirði. En við náðum
þó að koma ýmsu af okkar haráttu-
málum til skila, svo sem því að hjón,
sem tækju bæði námslán, borguðu
aðeins af öðru láninu i einu þegar
þau hefðu lokið námi.
Þann 16. maí 1976 voru þessi mál
rædd á þingi. Þá einsettum við okkur
að sýna fram á að við værum veru-
lega óánægð og ákváðum að fara á
þingpalla. Mig minnir að Gestur
Guðmundsson, sem nú er starfandi
í Kaupmannahöfn, hafi átt hug-
myndina að því að ég héldi ræðu
ofan af þingpöllum. Svo héldum við
niður á þing. Lögreglan hafði haft
spurnir af því að til tíðinda myndi
draga. Nokkra daga á undan höfðu
setið á þingpöllum óeinkennisklædd-
ir lögreglumenn og þeir voru þar líka
þennan dag. Þegar við mættum sátu
þar þrír eða ijórir óeinkennisklæddir
lögreglumenn en þeir voru svo önn-
um kafnir við að lesa Vísi að þeir
uggðu ekki að sér fyrr en við höfðum
komið okkur fyrir.
Nú, við tókum okkur sæti og fé-
lagar mínir mynduðu varnarblokk
umhverfis mig til að vernda mig fyr-
ir lögreglunni. Þegar tíminn var
kominn stóð ég upp og flutti þrum-
andi ræðu sem vakti mikla athygli
þingheims. Ragnhildur Helgadóttir,
sem þá var forseti neðri deildar Al-
þingis, varð mjög undrandi þegar
málflutningur minn hófst og hóf að
hringja þingbjöllunni í gríð og erg.
Svava Jakobsdóttir, sem sal þá á
þingi fyrir Alþýðubandalagið, veifaði
mér hins vegar kankvíslega. Mér
tókst að ljúka ræðunni áður en lögg-
an gómaði mig og dró mig í burtu.
Ég var dreginn fyrir Ragnhildi en
hún hafði reiðst svo illilega að hún
mátti ekki mæla. Svo mér var sleppt.
En hægri pressan gerði þessu góð
skil og vandaði okkur ekki kveðjurn-
ar frernur en endranær.
- Hvaða augum lítur þú á stúd-
entapólitíkina í dag?
„Mér sýnist stúdentapólitíkin í dag
ósköp tilþrifalítil. Stúdentar hafa
ekki sama baráttuvilja og áður. Ég
held að málflutningur forystumanna
námsmanna í dag skaði beinlínis
hagsmuni námsmanna. Þeir sýna
bæði þjónustulund og linku gagnvarl
niðurskurðarhugmyndum Sverris í
lánamálum. Félagsleg virkni stúd-
enta hefur minnkað, sem stafar ef til
vill af því að þeir þurfa orðið að
skila svo mörgum einingum til að fá
námslán. En þó að nám sé þrosk-
andi eru félagsmál það líka svo að
ég held að stúdentar ættu að gefa
ineiri gaum að sínum málum hér eft-
ir en hingað til," segir Össur og
kveður fast að.
43. TBL VIKAN 25