Vikan

Eksemplar

Vikan - 23.10.1986, Side 30

Vikan - 23.10.1986, Side 30
Bókakynning Vikunnar Crámosinn glóir (iluggaö í nyja bók Thors Vilhjálmssonar Grámosinn glóir gerist á 19. öld ogfjallar um sakamál og rannsókn sýslumanns áþví. Við grípum hér niður í bókinni þar sem sýslu- maður er ásarnt fylgdarmanni sínum á leið tilþessað rannsaka málið Þeir voru að komast að vatnsendanum. Þá stönzuðu þeir. Þeir fóru af baki og sátu þöglir, og heyrðu vatnið kyrrlátt kjassa steina við bakk- ann. Sólin teygði geislastafi niður á vatnið, gegnum það sem eftir leifði af mistri. Þar flutu svanir. Þeir horföu á svanina líða um vatnið í þótta- fullri hálslangri tign; í hólma sátu endur og gæsir. Svanaflotinn flæmdi undan séraðra fugla með hægð. Bliki fór með önd og haföi bláan haus sem rann útí grænt í sólinni. Það var kyrrt þartil stegg- ur einn elti önd og hrakti undan sér aftur og aftur þegar hún settist; unz einn svanurinn svam fyrir og sagði honum að hafa sig hægan og fara með spekt og spilla ekki sóldýrð dagsins. Síðan leið hann áfram frá og setti á siglingunni á háls- inn hlykk einsog hann væri að kyngja einhveiju, síli, eða þá bara hugsun sinni. Svo nam hann staðar og var alveg kyrr, og beið þess að vatnið yrði alkyrrt kringum hann og beindi goggnum gulfleyguðum sem endaði í svörtu niður að sinni eigin spegilmynd og augun tveir svartir glamp- andi punktar, rak síðan gogginn í sína eigin mynd á vatninu, riðlaði henni og náði sér í síli. Þá samfylktu ungir steggir og eimdi eftir af gulu á hausnum og gráminn horfmn, hvitir liðu þeir fram og flæmdu steigurlátir á undan sér flota af öndum. Skyndilega hófust upp tveir álftarstegg- ir, þöndu sig hvor gegn öðrum, og slógust vængjum og hjuggu goggi hvor að öðrum, og pískuðu vatnið upp svo ókyrrð kom á allan skar- ann. Annar 'oeit hinn í vænginn og virtist sá ætla að fara halloka en magnaðist óvænt upp og yfir- gekk hinn og rak hann burt, og fjaraði út það at. Og aftur varð kyrrt. Þórður fylgdarmaður þagði og hugsaði urn kvöldið áður í baðstofunni, hvemig hinn ungi sýslumaður hafði farið á kostum og kveikt fjör kringum sig og gleði með ræðurn sinum og sög- um, og taláði ekki um fólkið sem hafði teymt hann afsíðis og sagt að aldrei hefðu þau fengið svona gest áður. Svona eiga sýslumenn að vera, sagði Sæunn kerling tannlaus við hann, og húðin skorpin einsog leður alhrokkið fellingum. Sýslumaðurinn kveið þvi að koma í áfanga- stað. Það gildir nokkru að slóra markvisst, hugsaði hann. En þeir urðu að halda ferðinni áfram. Jæja, sagði hann. Já, segir Þórður: Já-há. Það var og. Þeir fóru á bak og riðu fyrir blikandi vatns- endann, og upp rnóann frá vatninu. Það hafði verið sólfar. Nú var hún horfin. Loftið var grátt. Og ljósari ský ruku. Golan var svöl. Landið var flatt, fjöll fjær. Stundum var auður sandur, eða melar, blásin móabörð, melgrasskúf- ar. Þeir fóm hjá tóftarbrotum. í hugann leituðu sagniraf ýmsum slæðingj á þessari heiði sem ásótti einfara ferðamenn. Menn sem höfðu orðið úti og fundust með merkjum þess að þeim hafði verið fyrirkomið með annarlegum hætti. Og hér var búið, segir Ásmundur, og þeir riðu samsíða hjá þessum rústum: það hefur verið hart um snjóavetur. Og ekki svo langt síðan, sagði Þórður: Þú fyrirgefur sýslumaður þó ég sveigj að yfirvöldun- um. En ég held ég hætti nú bara á það eftir að hafa hlustað á þinarglæstu ræður í gærkvöldi um betra líf fyrir þetta blessaða fólk. -Svo verðið þið nú að takast á um það áfiram hvemig á að fara að því. Þú manst kannski eftir bænum í fjarð- arkrikanum áðuren við lögðum uppá heiðina. Þar gekk ekki svo lítið á. Það er kannski gott að nefna þetta í sambandi við það sem þið vomð að tala um samhjálpina og þú settir traust þitt á einstaklingana sent gnæfðu uppúrogdrægju hina fram til hins betra, til framfara í stað þess að setja allt traust sitt á félagsandann. Eélagsandinn, segir Asmundur án þess að leggja frekar til málanna en beið eftir frásögu fylgdar- mannsins. Já blessaður félagsandinn, segir Þórður. Og segir með hægðinni söguna af bóndanum sern bjó við lónið búi sinu ásarnt konu og bömurn og hafði verið hreppstjóri. En á nokkrum mánuð- um missti hann konu sína og böm sín öll utan þrjú hin yngstu, og dóu reyndar öll nema lítil stúlka sern varð tíu ára að taka að sér alla for- sjón heimilisins innanhúss og hjúkra tveim yngri systkinum sínum, meðan þau vom að veslast upp. Félagsandinn. hvar var hann þá? Voru allir X VIKAN 43. TBL

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.