Vikan - 23.10.1986, Side 38
Hann komst á stjörnuhimininn með laginu Wherever I Lay
My Hat sem fór á topp breska listans sumarið 1983. Síðan hefur
hann átt ýmsa smelli sem hafa þó ekki náð sama áfanga og hatta-
söngurinn. Hann hefur aðeins gefið út tvær breiðskífur en sú
þriðja er á leiðinni. Lítum aðeins á feril þessa þrítuga söngvara.
Paul er fæddur 17. janúar 1956 í Luton. Hann lærði á píanó
frá sjö ára aldri en hætti því þegar hann var fjórtán (hann sér
eftir að hafa ekki haldið áfram) og lærði í smátíma á gítar. Hann
hætti í skóla þegar hann var sextán ára og hóf störf hjá Vaux-
hall bílaverksmiðjunum. Á svipuðum tíma hófust afskipti hans
af tónlist. Um þetta leyti gekk þungarokksæði yfir Luton og gerði
það að verkum að hann varð eiginlega að fara í felur með áhuga
sinn á soul-tónlist. Sem dæmi um flytjendur, sem voru í miklu
uppáhaldi hjá honum en félagar hans máttu varla heyra minnst
á, má nefna Steve Wonder, Marvin Gaye. Otis Redding og fleiri.
Sú hljómsveit, sem var í ntiklu uppáhaldi hjá honum á þessum
tíma, hét The Free en fyrsta platan, sem hann keypti sér, var ein-
mitt með henni.
Þrátt fyrir áhugaleysi á rokkinu, sem félagar hans voru á kafi
i, lét hann tiileiðast að gerast bassaleikari í hljómsveit sem hét
Streetband og stældi ýmsar þungarokkshljómsveitir. Þessi hljóm-
sveit krækti sér þó einhvern veginn í hljómplötusamning og
útkoman úr því nefndist Toast. Sköminu eftir að platan kom út
lagði hljómsveitin upp laupana.
38 VIKAN 43. TBL