Vikan - 23.10.1986, Blaðsíða 44
' \
Höfundur þessarar sögu er Áslaug Bald-
ursdóttir. Hún er 12 ára og er í Árbæjarskól-
anum. Fyrst spurðum við hana hvenær hún
hefði byijað að skrifa sögur.
„Ég held ég hafi verið svona sjö ára. Ég
er búin að skrifa svolítið margar sögur. Einu
sinni skrifaði ég bók og gaf systur minni i
jólagjöf."
- Um hvað skrifarðu helst?
„Um fjölskyldur, krakka og dýr, og þá
oft um fólk sem fer í ferðalög. Mér finnst
mjög gaman að fara í ferðalög. í sumar fór
ég i sumarbúðir og svo fór ég með Kiddu
vinkonu minni til Flateyrar og þar vorum
við í þijar vikur."
- Nú ert þú í sjötta bekk i skólanum,
hvað finnst þér skemmtilegast að læra?
„Það er skemmtilegast að reikna.“
- Ætlarðu að læra eitthvað sérstakt þegar
þú verður eldri?
„Ég veit það ekki, það verður bara að
koma í ljós. Kannski verð ég rithöfundur.“
- Lestu mikið af skáldsögum og hvað þá
helst?
„Ég les allt sem ég fæ, helst ævintýrabæk-
ur, þær eru skemmtilegastar.“
- En hvað gerirðu annað skemmtilegt?
„Ég fer á skíði á vetuma, í sund, fótbolta
og handbolta. Ég æfi með Fylki héma í
Hraunbænum.“
Á meðan við tókum þetta stutta viðtal
við Áslaugu kom heill hópur af stelpum til
að fá hana út í fótbolta svo að við þorðum
ekki annað en hlífa henni við meira spum-
ingaflóði og þökkum henni hér með fyrir
söguna.
44 ViKAN 41 TBL