Vikan

Útgáva

Vikan - 23.10.1986, Síða 55

Vikan - 23.10.1986, Síða 55
Lögregluforinginn var önnum kafinn við að skrifa niður frásögnina. „Hvenær sáuð þér perlufestina síðast?" spurði hann. „Hún var í skríninu áður en ég fór niður til kvöldverðar.“ „Eruð þér vissar um það?“ „Já, ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að bera hana eða smaragðana en að lokum ákvað ég að bera þá síðarnefndu svo ég setti hana aftur í skartgripaskrínið.“ „Hver læsti skríninu?“ „Það gerði ég og lykillinn er festur á keðju sem ég ber um hálsinn.“ Hún lyfti lyklinum upp svo að lögregluforinginn gæti séð hann. Hann yppti öxlum. „Þjófurinn hlýtur að hafa haft sams kon- ar lykil. Það ætti ekki að vera erfitt að komast yfir einn slíkan. Þetta er einfaldur lás. Hvað gerðuð þér svo eftir að þér lokuð- uð skríninu?“ „Ég setti það á sinn stað í skúffuna.“ „En þér lokuðuð ekki skúffunni?" „Nei, það geri ég aldrei. Þeman mín er alltaf i herberginu þar til ég kem aftur.“ Lögregluforinginn varð alvarlegur á svip: „Er svo að skilja að skartgripimir hafi verið í skrininu allan tímann sem þér voruð niðri og að þeman hafi aldrei yfirgefið herbergið.“ Skyndilega virtist Celestine átta sig á því hve alvarleg staða hennar var orðin. Hún rak upp vein, greip dauðahaldi í Poirot og mddi út úr sér miklum flaumi orða á frönsku. Hún sagði að það væri hneyksli að hún væri grunuð um þjófnað. Það væri kunnara en frá þyrfti að segja að lögreglu- þjónar væm með heimskari mönnum en hann sem franskur herramaður... „Belgisk- ur,“ leiðrétti Poirot en Celestine lét sér á sama standa um það og hélt áfram. Hann gæti ekki staðið hér og horft á hana hafða fyrir rangri sök meðan herbergisþernunni væri sleppt. Hún hefði aldrei kunnað við hana, hún væri greinilega fæddur þjófur, rjóð í andliti og að springa úr frekju. Hún hafði strax séð að hún væri ekki heiðarleg og það varð jú líka að gæta hennar meðan hún væri í herberginu. Það ætti að láta þessa heimsku lögreglumenn leita á henni og það væri mjög undarlegt ef perlufestin fyndist ekki. Þótt þetta væri allt saman sagt mjög hratt á frönsku þá kryddaði Celestine mál sitt með handapati og það dugði til að herbergis- þeman áttaði sig á því hvað hún var að segja. Hún roðnaði en varð reiðileg á svip. „Ef þessi útlendingur er að ásaka mig um þjófnaðinn á perlufestinni er það lygi. Ég ekki svo mikið sem sá hana,“ tilkynnti hún. „Leitið á henni,“ æpti hin. „Þið frnnið perlufestina eins og ég var búin að segja.“ „Þú ert lygari, heyrið þið það,“ hrópaði herbergisþeman og gekk nær Celestine. „Þú stalst henni sjálf og kennir mér nú um. Ég kom ekki inn í herbergið fyrr en þrem til fjórum mínútum áður en frúin kom en þú sast hér inni allan tímann." Lögregluforinginn leit spyrjandi á Celest- ine: „Er þetta rétt? Fóruð þér aldrei út úr herberginu?“ „í raun og veru skildi ég hana aldrei eftir eina,“ viðurkenndi Celestine hikandi, „en ég fór tvisvar inn í herbergið mitt. í annað skiptið vantaði mig baðmull en í hitt skiptið fór ég að ná í skæri. Hún hlýtur að hafa stolið þeim í annað hvort skiptið.“ „Þú varst ekki eina mínútu í burtu,“ svar- aði herbergisþeman reiðilega. „Þú hoppaðir bara út og inn. En það er svo sem allt í lagi að lögreglan leiti á mér, ég hef engu að leyna.“ Um leið og hún sagði þetta var barið að dyrum. Lögregluforinginn fór til dyra. Það lifnaði yfir honum þegar hann sá hver var kominn. „En sú heppni," sagði hann. „Hérer kom- in lögreglukona sem við sendum eftir. Mynduð þér vilja gera svo vel og fara inn í næsta herbergi.“ Hann leit á herbergisþernuna sem gekk yfir þröskuldinn og hnykkti til höfðinu um leið. Lögreglukonan fylgdi fast á eftir. Franska stúlkan féll snöktandi niður í stól. Poirot leit í kringum sig í herberginu en það helsta sem þar var inni er á meðfylgjandi teikningu sem ég hef gert. „Hvert liggja þessar dyr?“ spurði Poirot og hnykkti til höfðinu í átt að dyrum sem voru við annan gluggann. „Inn í næsta herbergi, held ég,“ svaraði lögregluforinginn. „Þeim er lokað hinum megin frá.“ Poirot gekk að dyrunum og ýtti á hurð- ina. Því næst dró hann lokuna frá og reyndi aftur. „Þetta virðist ekki koma til greina,“ sagði hann um leið og hann gekk út að gluggunum og rannsakaði þá vandlega hvem fyrir sig. „Hér er heldur ekkert, ekki einu sinni sval- ir fyrir utan.“ „Þó svo væri fæ ég ekki séð hvemig hefði átt að nýta þær fyrst þernan fór aldrei út úr herberginu.“ „Rétt,“ sagði Poirot. „Eins og ungfrúin sagði yfirgaf hún aldrei herbergið...“ I því komu herbergisþernan og lögreglu- konan aftur inn í herbergið. „Ekkert,“ sagði sú síðarnefnda stuttlega. „Enda væri eitthvað skritið ef svo hefði verið,“ sagði herbergisþernan. „Þessi franska glyðra ætti að skammast sín fyrir að reyna að svipta heiðarlegar stúlkur mannorðinu.“ „Svona, svona, stúlka mín,“ sagði lög- regluforinginn um leið og hann opnaði dymar. „Þér liggið ekki lengur undir gmn. Þér megið halda áfram með verk yðar.“ Herbergisþemuna blóðlangaði til að vera áfram en fór samt. „Ætlið þér ekki að láta leita á henni,“ spurði hún og benti á Celestine. „Jú, jú,“ sagði lögregluforinginn og læsti dymnum. Celestine fór nú inn í litla herbergið með lögreglukonunni og skömmu seinna komu þær aftur. Ekkert hafði heldur fundist á henni. Lögregluforinginn varð enn alvarlegri á svipinn. „Þér verðið víst að koma með nið- ur á stöð, fröken.“ Hann sneri sér að frú Opalsen. „Því miður verður ekki annað séð en þernan yðar sé hin seka fyrst perlufestin fannst ekki hjá hinni stúlkunni. Líklega er hún falin í herberginu.“ Celestine rak upp skaðræðisvein og greip í handlegg Poirots. Hann beygði sig að henni og hvíslaði einhveiju í eyra hennar. Hún leit á hann vantrúuð á svip. „Jú, jú, mín kæra. Ég fullvissa yður um að það er ekki til neins að streitast á móti.“ Því næst sneri hann sér að lögregluforingjan- um. „Mætti ég gera smátilraun?“ „Það fer nú eftir því hver hún er?“ sagði hinn hlutlausum rómi. Poirot sneri sér að Celestine. „Þér fómð inn í herbergið yðar til að ná í baðmull. Hvar var hún geymd?“ „I efstu kommóðuskúffunni, herra.“ „En skærin?“ „Þau voru þar líka.“ „Mætti ég biðja yður, fröken, um að ná í báða þessa hluti aftur. Þér sátuð hér við vinnu yðar, var það ekki?“ Celestine settist niður. Þegar Poirot gaf henni merki stóð hún upp, gekk inn í næsta herbergi og náði í eitthvað í kommóðuskúff- una, kom síðan aftur. Poirot fylgdist með hreyfmgum hennar og tók jafnframt tímann á geysistóru vasa- úri sem hann hélt í hendi sér. „ Og aftur nú, fröken, gjörið svo vel.“ Þegar hann hafði gert þetta í annað skipti skrifaði hann niðurstöðumar hjá sér í litla vasabók og setti svo vasaúrið á borðið. „Þakka yður fyrir, fröken, og yður, herra minn.“ Hann hneigði sig i áttina til lögreglu- foringjans. Framhald i næsta blaði. 43. TBL VIKAN 55

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.