Vikan - 23.10.1986, Side 56
S T J Ö R N U S P Á
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
23.-29. OKTÓBER
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Framan af verður fremur tíðindalítið
en er á líður taka hjólin að snúast.
Mjög er þó undir áhuga og vilja
komið hvemig málin þróast og
heppilegt að hugsa sig um áður en
lagt er út í viðamikil verkefni. Búast
má við óvæntri gjöf, ekki endilega
áþreifanlegri.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Til þín verður leitað úr fleiri en einni
átt og svo kann að fara að þér finn-
ist að þér þrengt. Ekki þarf þetta
að verða þér til óþæginda ef þú
gætir þess að lofa ekki of miklu og
hefur hugfast að það er þitt að ráð-
stafa tíma þínum. Allt krefst þetta
þó að þú sýnir nokkra lipurð.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Haltu fast um budduna og láttu
hvorki glepjast af gylliboðum né lof-
orðum um skjótfenginn gróða.
Áhyggjur, sem hvilt hafa á þér um
hrið, virðast um það bil að hverfa
úr huga þínum, annaðhvort vegna
þess að þú lítur málin öðrum augum
eða úr þeim greiðist á óvæntan hátt.
VOGIN 24. sept.-23. okt.
Þér fmnst freistandi að skipta þér
af einkamálum annarra. Jafnvel þótt
um nána vini sé að ræða skaltu fara
varlega því að viljir þú verða þeim
að liði kemur sér best að þú standir
álengdar um sinn og hafist ekki að.
Auk þess væri þér nær að koma þín-
um eigin málum í viðunandi horf.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Verði þér boðið til mannfagnaðar
um helgina ættirðu að þiggja það.
Þér er mikilvægt að vera innan um
fólk og þú skalt sinna þeirri þörf.
Hafírðu haft áhyggjur af fjármálun-
um geturðu huggað þig við að þau
komast senn í þokkalegt horf og lík-
ur á að svo haldist um sinn.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
Nú er góður tími fyrir þá sem eru
leitandi og langar að breyta til. Þetta
þýðir þó ekki að breytingar séu góð-
ar breytinganna vegna og sjálfsagt
að athuga möguleikana með hlið-
sjón af núverandi ástandi. Ekki er
samt líklegt að þú kaupir köttinn í
sekknum á næstunni.
NAUTIÐ 21. apríl-21. maí
Það er hugur í þér og þér liggur
margt á hjarta. Því er líklegt að þú
lendir í heitum umræðum, jafnvel
stælum. Gættu tungu þinnar, virtu
sjónarmið annarra og forðastu að
særa fólk. Ella máttu búast við að
þurfa að éta stóru orðin ofan í þig
seinna og það fellur þér ekki.
KRABBINN 22. júní—23. júlí
Treystu ekki á aðra með það sem
þér er í lófa lagið að annast á eigin
spýtur. Það er vissulega þægilegt að
koma því leiðinlegasta á aðra en
þeir gætu átt það til að sjá við þér
og þá áttu óhægara um vik að leita
aðstoðar þegar meira liggur við.
Breyttar aðstæður reynast þér í hag.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
Sitthvað ólíkt verður á döfinni hjá
þér og það krefst þess að þú sýnir
þolinmæði og skilning. Þér kann að
þykja þetta nokkuð strembið en þú
hefur ekki nema gott af því að leggja
þig fram. Þú nýtur þá auk þess
ánægjunnar af vel unnu verki og það
er ekki minnst um vert.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Þér verður trúað fyrir leyndarmáli
og þykir nokkuð til þess koma. Ekki
er tryggt að allt sé sem sýnist og því
skaltu taka stórtíðindum með fyrir-
vara. Athugaðu í ró og næði hvernig
allt er í pottinn búið áður en þú ferð
að breyta fyrri áætlunum og haltu
öllu opnu sem lengst.
STEINGEITIN 22. des.-20. jan.
Fólk hefur mjög misjöfn áhrif á þig
og þú átt erfitt með að átta þig á
af hverju það stafar. Sýndu sann-
gimi í dómum um aðra, menn hafa
svo mismunandi sjónarmið að ekki
er við því að búast að allir verði á
eitt sáttir en ættu þó að geta verið
í þokkalegu samlyndi.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Þér bjóðast mörg og misjöfn tæki-
færi, einkum á fjárhagslega sviðinu.
Reyndu ekki að gína yfir of miklu,
það endar ekki öðruvísi en að þú
missir allt út úr höndunum á þér.
Vænlegast er að fá einhvern sem þú
treystir til liðs við þig og saman get-
ið þið hagnast bærilega.
Nú er orðið tímabært að líta aðeins á sporðdrekann. Margir
líta hann homauga og vissulega er i skapgerð hans að fmna
ýmsa eiginleika sem ekki eru almennt taldir til mannkosta.
Þó hefur hver til síns ágætis nokkuð og i fari sporðdrekans
er að frnna sitthvað sem allir vildu fegnir hafa til að bera.
Þessi algengi ímugustur á sporðdrekum ereinkennandi, hér
eru engar hversdagsmanneskjur á ferðinni, sporðdrekar vekja
athygli hvar sem þeir fara og allir taka afstöðu til þeirra.
Menn láta óspart í ljós álit sitt, hvort sem þeim líkar við þá
eða ekki, en stundum segja dómarnir meira um þann sem
dæmir en um sporðdrekann. Þetta fólk ber sterka persónu,
er viljasterkt, kappsamt og neytir flestra ráða til að ná mark-
miðum sínum. Sporðdrekinn hefur ákveðna skoðun á öllu
mögulegu, heldur henni stíft fram og þykir síður en svo mið-
ur að viðmælandinn sé á öðru máli. Hann ver skoðun sína
fram í rauðan dauðann en á jafnframt til að tala þvert um
hug sinn ef það hentar honum. Sporðdrekinn hneigist til öfga,
jafnvel ofstækis, er opinskár og skeytir lítt um álit annarra á
sér. Það á sinn þátt í að afla honum óvildarmanna. Hann
lætur sig líðan annarra lillu skipta og virðist oft á tiðum alls-
endis ófær um að taka þátt í kjörum samferðarhannanna, er
stundum sakaður um algjört tilfinningaleysi. Þrekið er mikið,
kappið söntuleiðis og sem að líkum læturer marga frækna
íþróttamenn að finna meðal sporðdreka. Þeim hættir þó til
að leggja of hart að sér við vinnu og fara stundum illa með sig
á því. Það er ekki háttur sporðdreka að velja endilega auðveld-
ustu leiðina að settu marki, þeireru brattsæknir, erfiðleikar
ögra þeim og virka hvetjandi á þá. Margir njóta góðs af dugn-
aði og atorku sporðdrekans, hann er vinur vina sinna og
sannarlega betra að hafa hann með sér en móti.
56 VIKAN 43. TBL