Vikan - 01.01.1987, Side 23
Flestir höfuðborgarbúar hafa lagt leið sína
„austur yfir fjall“ eins og það heitir á máli
þeirra sem búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
„Fyrir austan íjall“ á í huga okkar fyrst og
fremst við sveitirnar Ölfus, Flóa, Biskups-
tungur, Hreppana og Grímsnesið. Einu sinni
var sagt um síðasttöldu sveitirnar: „Grímsnes-
ið hið góða og gullhreppana." A þeim slóðum
býr völvan sem Vikan leitaði til. Það var
snemma í desembermánuði sem við náðum
tali af miðaldra konu sem okkur hafði verið
bent á að byggi yfir dulrænum hæfileikum.
Hún lét tilleiðast að segja okkur fyrir um tíð-
indi næsta árs, innlend og erlend, að því marki
sem henni „vitrast", eins og hún sjálf orðaði
það.
„En þannig er mál með vexti,“ sagði þessi
laglega og dökkhærða kona, „að eftir að ég
fluttist hingað austur úr miðdepli íslenska al-
heimsins, Reykjavík, hefur dulvitund mín
síður en svo minnkað. Eg hafði vonast til að
svo að þið haldið ykkur við orðið „va!a“ en
ekki völva því völvunafnið minnir mig
óþyrmilega á tölvurnar sem nú eru að taka
völdin. En tölvur eiga síst heima í spádómum
um óorðna hluti. Það þekki ég af eigin
reynslu."
Völvan okkar dró fyrir gluggana í vistlegri
stofunni. „Ég vil ekki að við verðum ónáðuð
að óþörfu meðan við hverfum til kyrrðarinn-
ar um stund. Ég vil taka það fram að á þessari
hljóðlátu stundu megið þið ekki spyrja mig
neins, nema ég gefi merki þar um. Ég mun
reyna að koma atburðum skipulega að, þó
það sé ekki alltaf svo auðvelt.“
Hún settist í gamlan ruggustól í einu horni
stofunnar. Það var skuggsýnt í stofunni, að-
eins logaði á tveimur kertum á borði við hlið
stólsins sem hún sat í. Við létum fara lítið
fyrir okkur og biðum. Kyrrðin færðist yfir.
Þögnin hafði yfirráðin um stund. Svo marr-
aði aðeins í ruggustólnum og mjúk og fjarlæg
Stjórnmálin
verða efst á
baugi á ári
umróts og
breytinga,
segir völvan.
Og það verða
aðrar aðferð-
ir notaðar við
val í ráð-
herrastólana
eftir kosning-
ar í vor en
tíðkast hafa
undanfarin
ár.
þessi hæfileiki - að sjá fyrir ýmislegt óorðið
- minnkaði en sú hefur raunin ekki orðið hér
í sveitinni.
Einkahagir mínir breyttust skyndilega, var
það satt að segja ein ástæðan fyrir því að ég
tók mig upp úr margmenninu og fluttist hing-
að. Mér fannst líka að mér þrengt í marg-
menninu í Reykjavík, vegna nálægðar við
hringiðu atburða sem ég þurfti oftar en ekki
að upplifa tvisvar.
Hér fmn ég mig betur heima og dulvitund-
in verður mér mun eðlislægari og atburðir,
sem ég sé fyrir, koma ekki eins snöggt fyrir
augu mér eins og þegar ég kannski las um þá
í blaði samdægurs eða heyrði um þá hjá kunn-
ingjum í næsta húsi. Fréttir berast hratt í
margmenni en hér er aðdragandinn að raun-
veruleikanum lengri.
Þótt ég hafi aldrei fyrr búið í sveit er auð-
velt að samlagast því fólki sem hér býr.
Einhverjir hafa nasaþef að þessum svokölluðu
hæfileikum mínurn en þeir láta sér fátt um
fínnast eða láta tillitssemina ráða. Og ég ætla
að svo muni verða áfram, þó ég hafi dregist
á að gegna hlutverki völu ykkar. Það geri ég
eingöngu fyrir orð þess mæta manns sem þið
lögðuð svo hart að til að vísa á mig. Ég vil
rödd völunnar barst eins og tónlist um stof-
una. Það var einstök ró yfir konunni í stólnum
þegar hún hóf að segja okkur fyrir um óorðna
atburði ársins.
Ár brölts og breytinga
„Á árinu 1987 eru það stjórnmálin og aftur
stjórnmálin sem allt snýst um hér innanlands.
Það þýðir þó ekki að önnur mál falli í skugg-
ann, síður en svo. Frá lýðveldistöku, árið
1944, hefur ekki gætt jafnmikilla breytinga á
einu ári og því sem nú gengur í garð. Árið
1987 verður það ár sem fólk minnist síðar sem
árs breytinga og umróts á sem flestum sviðum.
En flest þau mál, sem þykja hvað fréttnæm-
ust, munu þó eiga rætur að rekja til pólitískra
væringa og samspilið verður augljóst, óðar
og atburðir gerast.
Það verður til dæmis strax í upphafi ársins
að enn eitt fjölmiðlafárið brýst út. Það er tengt
nýju fjármálahneyksli, sem raunar varð upp-
skátt á þessu ári. Þetta hneyskli, sem telst til
þeirra „góðkynjuðu", varðar alþekkta góð-
gerða- og líknarstarfsemi sem hefur tekið
ástfóstri við „björgun" fjármuna úr landi til
geymslu erlendis. Þessi „björgun" verður fyrir
Stjórnarmynstrlö eftir kosningar er Ijóst að
mati völvunnar. Það verða formenn Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokks
sem ná því að mynda nýja stjórn.
Steingrímur Hermannsson, Jón Baldvin
Hannibaisson, Þorsteinn Pálsson.
1. TBL VI KAN 23