Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 60
Vogin
24. september-23. október
í janúar verður þú fremur óöruggur og
taugaspenntur en þegar líður á mánuðinn er
líklegt að þú hafir tamið þér þolinmæði.
Það sem þú hefur lært og reynt undanfarna
mánuði kemur þér að notum í febrúar og þá
verðurðu fær um að græða andleg sár sem
þú hefur hlotið.
Þegar mars gengur í garð er svo komið að
þú verður að sætta þig við maka þinn eða
félaga eins og hann er og ekki skaltu láta þér
detta í hug að reyna að slá mikilvægum á-
kvörðunum á frest.
Það verða felld tár í apríl, sérstaklega þegar
dregur að mánaðamótum. Þrátt fyrir það
máttu vænta árangurs af þvi sem þú gerir í
mánuðinum.
Svo virðist sem engin leið sé að komast
undan fjárhagslegum skyldum í maí. Sömu-
leiðis er mikilvægt að gefa engin loforð í
þessum mánuði. Svo virðist sem þú hafír vitað
að stund viðurkenningarinnar og heiðursins
myndi renna upp. Nú er komið að þessu.
Hugsanlegt er að þú skiptir um starf í þessum
mánuði. I júní er, eins og áður, undir þér
komið hvort þú bryddaf upp á málefnum sem
þarf að tala um og tengjast maka eða nánum
vini. Hugsanlegt er að tínri sér kominn til að
skipta um atvinnu.
I starfi virðist sem þú bíðir eftir að einhver
gefi þér „grænt ljós“. í júlí eru mestir mögu-
leikar á að eitthvað slíkt gerist.
Ágúst verður erfiður og afdrifaríkur varð-
andi ákvarðanir og því eins gott að vanda sig.
September er sá mánuður sem er einna
mest krefjandi og mikilvægur á þessu ári.
í október kemur i ljós að einhver nákominn
þér virðist hafa ákveðið að særa þig. En þú
ert sterkur og þú lætur ekki þröngva þér inn
í aðstæður sem eru ósanngjarnar.
Miklir erfiðleikar munu mæta þér í nóv-
ember en þú skalt ekki láta bugast því þá er
einmitt komið að breytingum til hins betra.
Nokkrir erfiðleikar munu þreyta þig i des-
ember. En mikilvægt er að þú uppfyllir
skyldur sem snúa að sjálfum þér í þessum
mánuði.
Sporðdrekinn Bogmaðurinn
24. október-23. nóvember 24. nóvember-21. desember
Líttu fram á veginn, hættu að láta drauga
fortíðarinnar angra þig. Búið er búið og
ástæðulaust að velta sér upp úr því liðna í
byrjun árs.
Þér hættir til að vera mjög ósanngjarn við
maka þinn í febrúar. Það er óréttlátt þar sem
þú getur ekki kennt honum um mistök sem
henda þig.
Á útmánuðum átt þú velgengni að fagna í
starfi, þú ert hugmyndaríkur en finnst þú svo-
lítið heftur af samstarfsmönnum þínum og
maka. En áður en þú tekur afdrifaríkar
ákvarðanir varðandi framtíðina ættir þú að
ráðfæra þig við þína nánustu. Þér hættir til
að vera svolítið einráður.
í maímánuði áttu við fjárhagsvandræði að
stríða og verður að finna einhverja framtíðar-
lausn á þeim. Ef þú getur ekki leysÞfjár-
hagsvandræðin i þessum mánuði munu þau
angra þig út árið.
Þú ert sjálfstæður persónuleiki, um það ef-
ast enginn. En undanfarið hefur þú látið
stjórnast fullmikið af öðrum. Það er því kom-
inn tími til að þú sýnir hvað í þér býr og júní
og júlí eru heppilegir mánuðir til þess.
Stjarna þín rís hátt í ágústmánuði og þú
átt velgengni að fagna á öllum sviðum. Þó
eru erfiðleikarnir skammt undan.
í september verður þú sem sé að takast á
við erfiðleika og erfiðar aðstæður í einkalífinu
en þú mátt ekki láta ættingja og vini koma í
veg fyrir þau langtimamarkmið sem þú hefur
sett þér.
í október og nóvember áttu við svipuð
vandamál að etja og undanfarið hafa hrjáð
þig. Það mun líða nokkur tími uns sárin gróa
og þú sættist við þína nánustu. En á vinnu-
stað færð þú ögrandi verkefni sem þér finnst
gaman að takast á við.
Þegar árið 1987 er á enda kemst þú að raun
um að líf þitt hefur stjórnast af óvæntum at-
vikum. En haltu áfram að treysta á eigið
innsæi og vertu ekki hræddur þó þessum kafla
í lífi þínu sé lokið því þá tekur næsti við og
þú getur horft bjartsýnn til ársins
1988.
Erfiðleikar þínir í janúar eru algerlega
einkamál þitt. Þú vilt breyta ákveðnu mynstri
í lífi þínu.
I febrúar þarft þú að vera mjög gætinn og
fylgjast með öllu sem gerist.
I mars skaltu minnast þess að það er mikið
til í því að það sé jafnmikilvægt að njóta ferð-
arinnar og að komast á áfangastað.
Ef svo er komið, í apríl, að þér finnst kom-
inn tími til að láta ljós þitt skína annars staðar
skaltu skipta um vinnu án þess að fella tár.
Þú skalt reyna af öllum mætti að sigla milli
skers og báru í maí. Hugsaðu þig vel unt
áður en þú tekur mikilvægar ákvarðanir.
Gætni kemur þér til góða á fleiri en einn veg
og reynslan nýtist þér ekki bara í svipinn.
Þú ættir að beina kastljósinu að viðkvæm-
um atriðum í júni og krefjast meiri hreinskilni
af þínum nánustu.
Lífið verður eitt samfellt ævintýri og gleði
í júlí. Þú verður samt sem áður að endurskipu-
leggja og athuga nokkur íjárhagsleg atriði.
Gættu þess að enginn konti í veg fyrir
ákvarðanir þínar í ágúst. Jafnframt skaltu sjá
til þess að enginn komist upp á milli þín og
einhvers sem þú ert í nánu sambandi við.
Þegar september er genginn í garð er hætt
við að þér finnist þú svikinn og þú verður
þunglyndur. En raunir þær sem þú kannt að
rata í munu aðeins gera þig ákveðnari.
I október gætu fyrrverandi vinir þinir snú-
ist gegn þér. Þetta kann að verða þér erfitt
en þú nærð sálarró þinni.
Þegar tekur að líða á nóvember verður þú
áhyggjufullur vegna skorts á trausti og skiln-
ingi. En mundu líka að mánuðurinn er
mótandi fyrir framtíðina, aðallega í tengslum
við frama. Þú skalt varast að gera mistök
þegar um er að ræða fólk sem gæti sett þér
stólinn fyrir dyrnar.
I desember verða miklar breytingar á skap-
gerð þinni. Þú munt verða mun róttækari en
þú hefur verið. Það er undir sjálfum þér kom-
ið hvað gerist. Það er mjög líklegt að þér sé
ljóst að það tímabil sem nú gengur í garð
geti orðið það besta í lifi þínu.
60 VIKAN 1. TBL