Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 50
D R A U M A R
HÁRAFÝMSU
TAGI
Kæri draumráðandi.
Mig langartil aðspyrja þig hvað
það merkir að vera með sítt hár í
draumi (ég er með stutt og hef
aldrei verið með sítt hár). Mig
dreymdi fyrir nokkru að ég væri
með sítt hár og mér fannst það
vera Ijósara en það er i rauninni
en ekki litað. Hvað merkir þetta?
Viltu ráða þetta strax, kæri
draumráðandi?
Með fyrirfram þökk.
Hára.
Mikið hár og hár yfirleitt þykir
fyrir peningum og ætli við gerum
þá ekki ráð fyrir að hlaupi heldur
betur á snærið hjá þér á næstunni.
ÓKUNNUG-
LEGTUM-
HVERFI
Kæri draumraðandi.
Fyrir nokkru dreymdi mig draum
og vona ég að þú getir ráðið hann
fyrir mig. Hann er nokkuð óljós
en vonandi er þetta samt hægt.
Ég var stödd hjá vinkonu minni
sem við getum kallað X. Mig
minnir að mamma hennar og
pabbi hafi boðið mér, mömmu og
pabba í boð til sín, en það sem
mér þótti nokkuð skrýtið var að
bróður mínum var ekki boðið. Ég
get ekki alveg áttað mig á þessu
en ég kannaðist ekki við neitt inni
hjá X nema forstofuna. Svo fórum
við, ég og X, inn í eitthvert her-
bergi og fórum að horfa út um
gluggann. Þá var komið eitthvert
hús þarna, það var hvítt og maður
sá eiginlega bara tvo glugga. Mér
finnst eins og mig hafi dreymt
þetta hús áður. Jæja, fyrst litum
við, ég og X, á annan gluggann.
Þar var dregið frá og því sáum við
alveg inn. Þar inni sáum við mann
sem hálflá í rúminu og konu sem
sat hjá honum. Þegar hann sá
okkur dró hann fyrir. Ég kannaðist
ekkert við þetta fólk. Svo litum við
á hinn gluggann. Þar var dregið
fyrir en ég sá svona eins og svart-
an skugga, eins og í vídeómynd-
inni Careless Whisper með
George Michael. Mér fannst þetta
vera hann og konan var dökk-
hærð, með sítt hár. Þess má geta
að ég hata George Michael og
Wham. Hins vegar held ég upp á
Duran Duran. Ég spurði X hvort
hún sæi þetta ekki líka en hún
sagðist ekkert sjá. Síðan fórum við
fram í forstofu og við kölluðum til
foreldra okkar að við værum að
fara út að fá okkur ferskt loft. Þá
vaknaði ég. Vonandi ráðið þið
drauminn því mér finnst hann
hljóti að tákna eitthvað.
Bæ, bæ.
Ég
Þessi draumur segir svo sem lít-
ið og er sennilega lítill tákndraum-
ur, hann er einfaldlega of
sundurlaus til að hægt sé að ráða
alvarlega i hann. I honum eru þó
nokkur atriði sem hægt er að lita
á. Ókunnuglegt umhverfi gæti
merkt breytingar og það sem þið
sjáið inn um gluggann gæti merkt
eitthvað tvennt sem þú munt
kynnast á næstu mánuðum, tvær
leiðir eða jafnvel fólk. Það þykir
yfirleitt frekar fyrir góðu að dreyma
frægt fólk, hvort sem manni líkar
vel við það eða ekki, og er fyrir
veraldlegri velgengni. Þannig eru
flest draumatáknin ágæt en
draumurinn of sundurlaus til að
hægt sé að gefa góða he/ldar-
mynd af boðskap hans.
HRINGUR
ÁFINGUR
Kæri draumráðandi.
Fyrir nokkru dreymdi mig draum
sem ég man vel. Ég var í veitinga-
verslun og var að fara á klósettið
þar. Þá tók kokkurinn í höndina á
mér og stoppaði mig. Hann vildi
endilega gefa mér hring, trúlofun-
arhring, en ég var treg að taka við
honum. Á endanum leyfði ég hon-
um að gefa mér hann. Hann setti
hringinn á baugfingur og mig
minnir að ég hafi verið ánægð á
eftir. Hringurinn var bara venju-
legur gullhringur með rauðum
steini.
Dreymandi.
Þessi draumur bendir til þess
að tíðinda sé að vænta i ástamál-
um hjá þér og það verði heldur
ástríðufullt samband sem þú lend-
ir i en ekki að sama skapi spurt
um skynsemi. Allt er þetta gott i
hófi en þú mátt gæta vel að því
að fara ekki út i eitthvað sem þú
veldur ekki og mættir leita skyn-
seminnar, ekki síður en tilfinning-
anna.
AMMA BORIN
UPPSTIGA
Kæri draumráðandi.
Ég bið þig um að ráða draum
fyrir mig. Hann veldur mér miklum
hugsunum en er svona:
Mér fannst við vera að fara að
ná í ömmu og svo þegar við kom-
um var amma svo hölt að hún gat
varla gengið. Þegar hún var að
fara upp í bílinn okkar komst hún
ekki og við þurftum að fara út og
ýta henni inn. Það gekk og svo
fannst mér við vera komin í sex
eða sjö hæða hús og þar var amma
(í föðurætt) að vinna við að skúra.
Svo komum við inn og þar er
pabbi og spyr hvað við viljum. Ég
segi að ég ætli að tala við ömmu
sem heitir X. Þá ýtir hann á takka
og segir: Z, hvar er X? Og hann
segir: Hún er uppi á fimmtu hæð.
Þá kallar pabbi í kalltækið og bið-
ur um ömmu en það ansar enginn
og aftur er kallað. Amma halta
stendur við hliðina á mér og ég
segi: Amma, ég held bara á þér
upp stigana. Og svo virðist sem
amma sé svo létt að ég held á
henni upp en stoppa svo og læt
hana bíða en fer sjálf inn og þar
er amma með fósturföður mínum
uppi í rúmi í öllum fötunum með
sæng ofan á sér og svo rúmteppi.
Teppinu hafði verið skipt í tvennt
og var helmingurinn ofan á ömmu
en hinn á afa. Það er þröngt hjá
ömmu en hjá afa er nóg pláss svo
ég leggst við hliðina á honum og
sofna. Þá vaknaði ég í alvöru.
Ein á Akureyri.
Þessi draumur er fyrirboði
breytinga og metnaðar hjá þér.
Það er eins og þú sért að ráðast
í erfitt verkefni sem getur, ef vel
gengur, fært þér talsverða viður-
kenningu en þú þarft að leggja
hart að þér og muntsennilega ein-
mitt gera það. Það eru talsvert
mörg Ijón á veginum og þetta er
ekki auðvelt en það mun ganga
með seiglunni og þú munt oft
þurfa að taka ákvarðanir sem jafn-
vel eru i andstöðu við flesta í
kringum þig, en þú stendur fast á
þínu og átt ekki eftir sjá eftir að
taka þessa ákvörðun. Það mun
ganga nokkuð skrykkjótt i byrjun
en um að gera að missa ekki móð-
inn. Sennilega veistu nú þegar við
hvað er átt og þú ert sem sagt á
réttri leið.
NAFNÁ
DÁINNI KONU
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi í nótt að ég heyrði
nafn dáinnar frænku minnar aftur
og aftur. Hún hét M og mér þótti
mjög vænt um hana en hef lítið
hugsað um hana því það er svo
langt síðan hún dó. Hún var ekki
sjálf í draumnum en samt fannst
mér þetta vera hennar nafn, ekki
einhverrar nöfnu hennar þó nafnið
sé kannski dálítið algengt.
Kæri draumráðandi, merkir
þessi draumur eitthvað sérstakt?
Ég tek fram að ég hef ekkert verið
að hugsa til hennar.
XXX.
Þetta tiltekna nafn er mjög gott
i draumi, talið boða velgengni, og
ætli draumurinn sé ekki bara fyrir-
boði góðra tima framundan hjá
þér.
50 VIKAN 1. TBL