Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 31
The Rrst Great Train Robbery ásamt
Donald Sutheriand (1975).
Five Days One Summer ásamt Betsy
BranUey (1982).
Highlander ásamt Christopher Lambert
(1985).
Myndbönd
COUNTRY ★★★★
Leikstjóri: Richard Pearce.
Aóalleikarar: Jessica Lange, Sam Shepard og Wilford Brimley.
Sýningartími: 109 mín. - Utgefandi: Bergvik hf.
Country er ein af nokkrum myndum sem slegið hafa í gegn og fjalla um
strit bænda í miðríkjum Bandaríkjanna. Fjallar hún um fjölskyldu sem berst
í bökkum og þegar allt virðist glatað brotnar eiginmaðurinn undan álaginu
og snýr sér að brennivini. Eiginkonan, Jewel Ivy, gefst ekki upp þrátt fyrir
uppboð, veðurofsa og aðra hörmulega atburði. Jessica Lange hefur að mínu
áliti aldrei verið betri. Það er ekki annað hægt en að hrífast af þessari per-
sónu sem þrátt fyrir mótlæti hrífur nágranna sína úr örbirgðinni og fær þá
til að berjast fyrir réttlæti. Aðrir leikarar komast einnig vel frá sínu. Skáld-
ið og leikarinn Sam Shepard leikur hinn veikgeðja eiginmann sem bregst
þegar á reynir. Þótt hann hverfi í skuggann af stjörnuleik Lange er ekki
laust við að maður hafi samúð með honum. Country er mynd sem enginn
ætti að láta frarn hjá sér fara, mynd sem gleymist ekki.
THE HITCHER ★★*
Leikstjóri: Robert Harmon.
Aðalleikarar: Rutger Hauer, C. Thomas Howell og Jennifer Jason Leigh.
Sýningartími: 92 min. - Útgefandi: Háskólabió.
The Hitcher er nokkuð sérstök sakamálamynd. Hún fjallar um ungan
ökumann. Jim, sem C. Thomas Howell leikur. Hann erað ferja bíl. Þegar
svefninn sækir að honum tekur hann puttaling upp í til að geta haldið sér
vakandi. Er það byrjunin á martröð sem virðist engan endi hafa. Farþeginn
er sem sagt kaldrifjaður morðingi og er langt síðan maður hefur orðið vitni
að svoalgjöru miskunnarleysi í kvikmynd. Morðinginn hlífir Jim hvað eft-
ir annað, aðeins til að geta leikið sér að honum eins og köttur og mús.
Rutger Hauer er ógnvekjandi í hlutverki morðingjans og þarf ekki nema
augnaráðið til að kaldur hrollur fari urn mann. The Hitcher er ekki fyrir
viðkvæmar taugar en fyrir þá sem unna spennumyndum er myndin ein alls-
herjar veisla, þrátt fyrir nokkra lausa enda í handriti.
GRANDVIEW U.S.A. ★★
Leikstjóri: Randal Kleiser.
Aðalleikarar: Jamie Lee Curtis, C. Thomas Howell og Patrick Swayze.
Sýningartimi: 97 min. - Útgefandi: Steinar hf.
Grandview U.S.A. gerist í smábæ. Skólum er að ljúka. Tim (C. Thomas
Howell) fær lánaðan kádilják föður síns á lokadansleikinn. Sú ökuferð end-
ar með ósköpum. Honum til bjargar kemur eigandi kappakstursvallar Mikes
Cody (Jamie Lee Curtis), lífsreynd ung kona sem á í útistöðum við föður
Tims. Það er ást við fyrstu sýn hjá Tim og snýst nú allt um að koma sér
í mjúkinn hjá Cody. Það tekst um síðir, aðalbílstjóra Codys, Slam (Patrick
Swayze), til nrikillar skapraunar, svo mikillar að hann gengur berserksgang
ogjafnar viðjörðu hús sitt, þar sem eiginkona hanserað halda fram hjá
honum. Það má hafa nokkurt gaman af Grandview U.S.A. þótt söguþráður-
inn sé endurtekningá ntörgum öðrum myndum. Húmorinn erágæturog
leikur C. Thomas Howell til fyrirmyndar.
BAREESSENCE ★
Leikstjóri: Walter Grauman.
Aóalleikarar: Genie Francis, Linda Evans og Bruce Boxleitner.
Sýningartími: 230 mín. (2 spólur). - Útgefandi: Tefli hf.
Ekki er ég nú kunnugur Dynasty þáttunum en ef leikur Lindu Evans er
eitthvað í líkingu við leik hennar í sápuóperunni Bare Essence, sem hér er
til untfjöllunar, verða leikhæfileikar hennar að dæmast á núll skalanum.
Hér leikur hún ríka mömmu sem reynir að halda sér ungri með að ná sér
í unga elskhuga. Aðalpersóna sögunnar er aftur á móti dóttir hennar sem
er dugnaðarforkur sem þrátt fyrir mótlæti kemst vel áfram. Það má segja
uni Bare Essence að ntyndin er í anda þeirra framhaldsflokka sem hvað
vinsælastir hafa orðið, Dallas og Dynasty, og unnendur þeirra fá hér mynd
fyrir sinn smekk. Sem sjálfstæð kvikmynd er Bare Essence aftur á móti allt-
of langdregin og sérlega illa leikin. Genie Francis í aðalhlutverkinu virkar
aldrei á mann sem fullorðin manneskja heldur hinn dæmigerði bandaríski
táningur.
1. TBL VIKAN 31