Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 30
D E 0
Sean
Connery
Sean Connery er orðinn 56 ára gamall. I dag
er hann ríkur og eftirsóttur leikari, skiptir tíma
sínum í að leika í þeim kvikmyndum er vekja
áhuga hans og að leika golf á Marbella, þar sem
hann á heimili. Það hefur þó ekki alltaf verið svo
hjá þessum geðþekka leikara.
Sean Connery er skoskur, fæddist í Edinborg
1930 og var skírður Tomas Connery. Fjölskyldan
var stór og þegar heimilisfaðirinn féll frá var
bamaskarinn sendur út á vinnumarkaðinn. Skóla-
ganga Connerys var því stutt. Þrettán ára var
hann kominn í fulla vinnu.
Connery hafði þó tíma til að stunda líkams-
rækt og það sem gerði gæfumuninn og varð til
þess að hann gerðist leikari var að hann var kos-
inn herra Skotland og tók þátt í alþjóðlegri keppni
í London. Ekki vann hann þó til verðlauna en
vakti athygli leikhúsmanna sem voru að setja á
svið söngleikinn South Pacific. Þá vantaði mynd-
arlegan mann sem gat sýnt sig beran niður að
mitti. Þótt Connery hefði aldrei sungjð áður tók
hann hlutverkinu.
Næstu ár lagði hann hart að sér við að læra
og lesa sem mest er viðkom leiklistinni og var
orðinn nokkuð þekktur sviðs- og sjónvarpsleikari
þegar honum var boðið hlutverk James Bond í
Dr. No. Sagan segir að hann hafi verið hikandi
að taka hlutverkið að sér. Það sem réð úrslitum
var álit Noels Coward en hann sagði að hann
ætti ekki að hika við að taka þetta hlutverk.
Ekki vissi Connery þá að Coward hafði sjálfur
hafnað hlutverki illvirkjans Dr. No.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það
sem við tók. Dr No var tímamótamynd í gerð
sakamálamynda og James Bond er í dag þekkt-
asta persóna kvikmyndasögunnar.
Sean Connery var samt ekki sáttur við að leika
eingöngu James Bond. Meðan hann lék Bond lék
hann í nokkrum öðrum myndum. Þær bestu eru
sjálfsagt The Hill sem Sidney Lumet stjómaði og
Mamie sem Alfred Hitchcock leikstýrði. Eftir að
Sean Connery hætti að leika Bond hefur hann
að visu leikið í misjöfnum myndum en hlutverk-
in, sem hann hefur tekið að sér, hafa yfirleitt verið
ólík og hafa krafist mikils af honum sem leikara.
Hér á opnunni birtum við myndir af Sean Conn-
ery í hlutverkum sem hann hefur leikið á löngum
og árangursríkum leikferli.
The Hill (1965).
Shalako (1968).
The Red Tent (1969).
The Man Who Would
Michael Caine(1973).
King ásamt
OntheRddle (1963).
From Russia With Love (1963).
30 VIKAN 1. TBL