Vikan - 01.01.1987, Síða 24
milligöngu stjórnmálamanns hérlendis og
einnig erlends kollega hans.
Þetta mál leiðir til nýrra og strangari reglna
um starfsemi hinna mörgu líknarfélaga hér á
landi og opinberum stuðningi verður hætt við
þau flest. Það verða ekki einungis góðgerðar-
og líknarfélög sem verða fyrir barðinu á hin-
um hraðskreiða fjölmiðlavagni, troðfullum
af blaðamönnum með brýnda kutana. Pen-
ingastofnanir fá enn lítinn frið.
I ljós kemur sem sé að viðamikil banka-
stofnun er komin að falli vegna mikilla
umsvifa í eigin ranni. Það mál á eftir að ýta
nokkuð óþyrmilega við sumum bestu og
djörfustu sonum lýðveldisins.
En það verða ekki allar fréttir jafnslæmar.
Til dæmis ekki sú sem kemur eins og þruma
úr heiðskíru lofti í byrjun maímánaðar um
að ákvörðun haft verið tekin um að tengja
íslenskan gjaldmiðil við eina sterkustu mynt-
ina á alþjóðamarkaðinum. Þetta mun flestum
þykja allgóð frétt en sumum þykja sem nú
nálgist ragnarök.
Undirbúningur að rannsóknum um Norð-
ur-íshaf verður hafmn á árinu og munu
íslendingar eiga þar hlut að máli og fylgjast
náið með framvindu vegna hugmynda um
nýja siglingaleið sem gerir Island að eins kon-
ar miðdepli i nýrri alfaraleið á sjó, um íshafið
þvert.
Kosningar og
stjórnarmyndun
Komandi kosningar verða síðan efstar á
blaði í umræðum fólks. Kosningabarátta
flokkanna verður annars mjög óvægin og
margar „matarholurnar“ uppgötvaðar, sem
reynast drjúgar til að afvegaleiða dygga kjós-
endur flokka sinna. Þannig verður afdráttar-
laus yfirlýsing landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins til að snúa dálítið harkalega á forystumenn
annarra stjórnmálaflokka. Alþýðuflokkurinn
fær á sig stóran brotsjó í miðjum kosningaá-
róðri, rétt í þann mund er formaður flokksins
leggur í hringferð um landið og fer mestur
tími hans í að lægja öldur misskilnings, sem
rís vegna ummæla þingmanns úr röðum
Bandalags jafnaðarmanna.
En mér sýnist sameiginlegt vandamál eiga
eftir að ríkja innan flestra ef ekki allra stjórn-
málaflokkanna fyrir kosningar; kröfur um
breytta niðurröðun frambjóðenda. Það munu
verða breytingar á sætaskipan manna á listum
svo um munar. Engin veruleg eftirmál verða
þessum breytingum samfara.
Það munu verða gerðar margar tilraunir til
stjórnarmyndunar á pappírum, áður en kosn-
ingaúrslit liggja fyrir. Og það verða ekki
kosningaúrslitin sjálf sem segja til um hvernig
stjórnarmyndun ræðst heldur fyrirfram
ákveðið stjórnarmynstur sem liggur á borðinu
nú þegar.
Mér finnst sem ég sjái að núverandi stjórn-
arflokkar verði báðir aðilar að næstu ríkis-
stjórn og Alþýðuflokkur einnig. Sá flokkur
kemur fyrst og fremst í myndina vegna óum-
deilanlegra sigra í kosningunum en afsalar sér
forystuhlutverki í ríkisstjórn af „praktískum
ástæðum" eins og það verður nefnt.
Alþýðubandalagið mun sækja stift eftir
þátttöku í stjórn og gefa yfirlýsingar um veru-
lega eftirgjöf eða tilhliðrun í varnar- og
öryggismálum, ef það mætti verða til þess að
Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur gætu
sameinast gegn þátttöku Sjálfstæðisflokksins.
En stjórnarmynstur er þegar á borðinu eins
og ég sagði áðan.
Kvennalistinn mun eiga talsverðan þátt í
myndun ríkisstjórnar, þótt á einkennilegan
hátt verði.
Kosið um ráðherrastóla
Að mynda starfhæfa ríkisstjórn getur svo
sem verið nógu erfitt stundum en að skipa
hana frambærilegum ráðherrum er þó oft erf-
iðara. Því munu þeir finna fyrir, flokkarnir
þrír sem næstu ríkisstjórn mynda.
Ekki verður þó neinn skortur á ráðherra-
efnum og framboð mun meira en hægt er að
taka alvarlega. Því er þannig komið málum
snemma árs að flokkarnir munu eiga í mikilli
baráttu innbyrðis við þá forystumenn sem
telja sig eiga rétt á ráðherrastóli.
Sumir munu beita þeim rökum að þeir hafi
áður setið í ráðherrasæti og þekki svo vel til
mála að þeim megi ekki fórna. Aðrir gera
hreinlega kröfu til ráðherradóms á þeim for-
sendum að þeir hafi þegar beðið nógu lengi
og nú sé þeirra tími kominn.
Þessar deilur munu koma mjög illa við
flokkana og gera þeim mjög óhægt um vik í
annarri starfsemi og kosningabaráttu, en þeim
ntun skemmtilegar koma þessar deilur út í
sviðsljósi þjóðlífsins, ekki síst þar sem kjós-
endur munu ýta verulega á varðandi vitneskj-
una um hverjir það verða sem eigi að fara
með völd í þjóðfélaginu, „það sé þó verið að
kjósa lifandi menn en ekki flokksapparöt"
eins og það mun einhvers staðar verða orðað.
Deilurnar verða mest áberandi í Alþýðu-
bandalagi og Framsóknarflokki, fyrir kosn-
ingar, og í Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki
eftir kosningar.
í Sjálfstæðisflokki verða ráðherrar útnefnd-
ir af þriggja manna nefnd sem formaður
flokksins skipar. Ég sé aðeins tvo af núver-
andi ráðherrum þess flokks í þessari útnefn-
ingu, formann flokksins, Þorstein Pálsson, og
Ragnhildi Helgadóttur.
Af öðrum sem þar eru í sviðsljósinu virðast
mér mest áberandi Ólafur G. Einarsson, Frið-
rik Sophusson, Birgir ísleifur Gunnarsson og
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Hjá Alþýðubandalaginu verður hart barist
um tilnefningu ráðherra á lista sem flokkurinn
vill hafa tiltækan. Þar sé ég einna skýrast fyr-
ir mér tvær konur og tvo karlmenn sem
sameiginlega eiga eftir að setja fram nýja
stefnu sem þykir likleg til að höfða til ann-
arra flokka varðandi stjórnarmyndun eða
samstöðu um hana.
Framsóknarflokkurinn mun halda að sér
höndum fram yfir kosningar hvað varðar út-
nefningu ráðherra, ekki síst vegna þess að
talsvert á enn eftir að heyrast frá þeim fram-
sóknarmönnum um úrslit prófkjöra og eftir-
mál.
Hjá Alþýðuflokki verður reynt að versla
innbyrðis með ráðherraembætti að kosning-
um loknum og þykir þar sumum sem réttlætið
sitji ekki í fyrirrúmi og segja að ekki sé tekið
tillit til ntismunandi aðferða og fyrirhafnar
sem frambjóðendur höfðu til að komast í
örugg sæti. Þetta mun meðal annars tefja fyr-
ir stjórnarmyndunartilraunum á sínum tíma.
Kjarabaráttan klúðrast
Þó að menn telji samningamálum að mestu
lokið eru ekki öll kurl komin til grafar í þeim
efnum. í raun má segja að búið sé að klúðra
Elisabeth Taylor mun giftast sér yngri manni.
Stefanía Mónakóprinsesa mun valda hneyksli
og móðga þjóðhöfðingja.
málefnum kjarabaráttunnar svo um munar
og verður hún ekki að fullu til lykta leidd
fyrr en með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar
snemma sumars.
Það mun reynast langsótt að fá nákvæmar
skýringar viðkomandi ráðuneytis á frekari
útfærsiu á staðgreiðslukerfi skatta, til dæmis
nákvæm tímamörk og eins um það hvaða ár
verði launþegum skattlaust eða hvort það
verður yfirleitt.
Ekki verður Ijóst hvernig einfalda á og sam-
24 VIKAN 1. TBL