Vikan - 01.01.1987, Blaðsíða 27
Jón Páll Sigmarsson, sterkasti maður heims,
mun í auknum mæli kynna íslenskar iónvörur
á heimsmarkaöi á næsta ári.
•'’.aour mun I
inu. Þannig mun fólk, sem ætlar að selja hús
sin í dreifbýlinu og flytja til Reykjavíkur, geta
krafist svokallaðs „virðisaukamats“. Krafan
verður þá lögð fyrir nefnd sem úthlutar við-
komandi þeim mismun sem er á söluverði
húss eða íbúðar á landsbyggðinni og í Reykja-
vík
Á heimsvísu
Af sérstökum erlendum atburðum ber það
hæst að nýtt vígbúnaðarkapphlaup hefst milli
stórveldanna vegna uppstyttu í samkomulagi
um að virða Salt II sáttmálann. Fjölgun
kjarnaodda risaveldanna verður uppistaða í
þessu kapphlaupi. Deilur risaveldanna munu
magnast og ásakanir þeirra hvors í annars
garð ganga aftur svo um munar. Þeim væring-
um slotar ekki að ráði fyrr en eftir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum.
Og það er í árslok 1987 að farið er að örla
á meiriháttar samkomulagsvilja risaveldanna
tveggja. Það samkomulag grundvallast á þeim
viðræðum sem ávallt hafa verið í deiglunni
og eru um nákvæmari skilgreiningu „aust-
urs“ og „vesturs“ á vesturhveli jarðar, nefni-
lega þá að skipt verði á sléttu; Evrópa falli
að fullu undir Sovétríkin og Bandaríkin fái
yfirráðarétt yfir Ameríku allri og Karíbahaf-
inu.
Tækni og vísindi
Strax á næsta ári dregur úr hættunni á eyðni
og líklegt má telja að fyrir tilverknað vísinda-
manna á Norðurlöndum eða manns í nánum
tengslum við þau finnist varanlegt mótefni
gegn þessum sjúkdómi. Vísindamönnum mun
þegar kunnugt um efni sem nota má í tóbak
til reykinga og dregur verulega úr tjörunni
og útilokar áhrif nikótíns að fullu. En á næsta
ári mun takast að framleiða reyktóbak til
pípu-- og vindlareykinga sem auglýst verður
algjörlega skaðlaust.
I veðurfræði verða gerðar merkar uppgötv-
anir sem leiða til alvarlegra tilrauna með að
stjórna flæði loftstrauma á svæðinu milli
heimskautanna. Þannig ætti að verða mögu-
legt síðar meir að skipta tempruðu beltunum
í árstíðabundnari svæði en nú er.
Rannsóknir á hinu forna Atlantis leiða til
sennilegrar tilgátu um mikla kjarnasprengju á
þessu svæði í Suður-Atlantshafi fyrir rúmlega
íjörutíu þúsund árum.
Byrjað verður að rannsaka möguleika á
nokkurs konar fiotbrúm til að komast yfir
hafsvæði sem aðskilja lönd. Þessar fiotbrýr
verða hugsaðar sem lokuð göng sem mara í
kafi og geta borið þunga farþegavagna sem
ganga fyrir rafmagni.
í lok ársins verður búið af finna upp læknis-
meðferð á augum manna sem leiðir til þess
að gleraugu verða framvegis óþörf. Einföld
skurðaðgerð nægir til þess að fólk nái sjón
sem mælist 20-20.
Fleira handan hafsins
j Svíþjóð kemst skriður á rannsókn morðs-
ins á Olov Palme fyrrum forsætisráðherra og
leiðir til þess að upp kemst hver var valdur
að ódæðinu. Ný lög í Noregi um skyldusparn-
að eiga erfitt uppdráttar en komast þó í gagnið
áður en lýkur. Norsku skyldusparnaðarlögin
eiga eftir að verða fordæmi íslenskra stjórn-
valda um endurlífgun þess skatts hér á landi.
í janúar og febrúar verða enn fréttir af
vopnasölu til Irans. Komast þar ýmsir í sviðs-
Ijósið, aðallega fyrir meinta milligöngu um
samninga. Svíar, Belgar, Spánverjar og enn
fleiri þjóðir verða ásakaðar fyrir aðild að
þessu máli.
Fyrir tilstilli formanns breska Verkamanna-
flokksins munu Bandaríkin fá betri aðstöðu
en verið hefur til þessa til að koma fyrir í
Bretlandi viðunandi varnarvopnum fyrir
Vestur-Evrópu. Þessi afstaða breska Verka-
mannafiokksins byggist á betri afkomumögu-
leikum fólks sem hefur störf við staðsetningu
og viðhald vopnageymslanna.
í heimsfréttum verður það talið einna
merkilegast á árinu að vísindamenn munu nú
í fyrsta sinn nema merki utan úr geimnum sem
óyggjandi sönnun þess að líf svipað því sem
við þekkjum sé að finna annars staðar í al-
heiminum.
Elisabeth Taylor og Jackie Onassis ffyrrum
Kennedy) munu báðar komast i samband við
yngri menn og þær festa ráð sitt.
A Ítalíu og í Mónakó verður vart jarð-
hræringa sem gera talsverðan usla. Og það
verða fleiri hræringar í furstadæminu Móna-
kó, en þar á ég við yngri prinsessuna, Stefaníu,
sem hneykslar þjóðhöfðingja í fjarlægu landi
með grófum ummælum.
í Jórdaníu og í Mið-Ameríku verða at-
burðir sem vekja verulega athygli og hafa
þeir hin víðtækustu áhrif en þó ekki í langan
tíma. Nokkrir þekktir og valdamiklir menn í
alþjóðamálum munu þurfa að víkja úr sætum
sínum á árinu, af ýmsum orsökum. Einn
þeirra fer í óskemmtilega meðferð...
Eins konar æði grípur um sig á árinu hjá
þeim sem sækja hvað fastast að semja sig að
siðum fólks á uppleið. Vil ég nefna til dæmis
tvennt sem verður hvað útbreiddast. Annað
snýst um frestun á hrörnun líkamans og til
þess að hægja á henni kemur á markaðinn
sérstaklega útbúinn súrefnisklefi, ætlaður til
að sofa í næturlangt. Þetta mun verða komið
á markað hér hjá okkur um næstu jól.
Hitt er tískulegs eðlis. Hálsbindi með
áteiknuðum fiskamyndum í margvíslegum lit-
um. Hér eigum við íslendingar möguleika á
að taka forystuna og halda henni ef vel tekst
til og hið opinbera sýnir einhvern lit í fyrir-
greiðslu, til dæmis með skammtímalánum eða
bættri aðstöðu með niðurfellingu á aðfiutn-
ingsgjöldum á efniskaupum.“
Völvan þagnaði. Marrið í ruggustólnum
hljóðnaði. Völvan eða valan kvaddi okkur á
hlaðinu. Kaldur vetrarsvalinn og tunglbirtan
í næturhúminu náði ekki að færa okkur aftur
til raunveruleikans. Hin kyrrláta stund í stofu
völvunnar og boðskapurinn sat í sinninu. Við
héldum út í tilveruna til móts við ár umróta
og breytinga.
Reikandi skuggi er lífið og ieikari bágur, sem
sperrisl og amstrar á sviðinu skamma stund og
sést ei framar.
Shakespeare: Macbeth. V.5.
1. TBL VIKAN 27