Vikan - 01.01.1987, Síða 29
b
COSA
NOSTRA
Cosa Nostra vakti töluverða athygli á síðasta
ári þegar breiðskífan Answers Without Questions
kom út. Af henni komst eitt lag hátt á lista rásar
2. Eftir þetta heyrðist lítið til þeirra í Cosa Nostra.
En nú eru þau að vinna nýtt efni sem ætlunin er
að gefa út einhvem tímann í nánustu framtíð.
Ég fór á stúfana, talaði við Mána Svavarsson og
frasddist dálítið nánar um hljómsveitina.
Frumútgáfa hljómsveitarinnar nefndist 1. To
3. Hún varð til í byrjun árs 1984. Þegar Guð-
mundur Sveinbjömsson starfaði sem plötusnúður
á unglingaskemmtistaðnum Traflfic hafði hann
samband við Mána Svavarsson og bað hann um
að hitta sig einhvem tímann til að taka upp ein-
hver stef sem væri hægt að blanda saman við
lögin þegar þau væm spiluð. Það varð úr að
þeir hittust einn daginn og tóku upp það sem
áætlað var. Síðan fóm þeir að leika sér að hljóm-
borðinu og ræða saman um músík. í ljós kom
að báðir höfðu áhuga á að stofna hljómsveit.
Þeir vom ekkert að tvinóna við hlutina heldur
hófu strax að líta í kringum sig eftir söngkonu.
Hana fundu þeir fljótlega og þar með var staðan
orðin:
Guðmundur Sveinbjömsson, hljómborð.
Máni Svavarsson, hljómborð og prógrammering.
Ólöf Ástriður Sigurðardóttir (Addý), söngur.
Ekki löngu seinna bættist fjórði meðlimurinn
við, um leið breyttu þau nafninu. Fjórði meðlim-
urinn var Pétur Hallgrímsson gítarleikari sem
starfar nú með hljómsveitinni Prófessor X. Hug-
ntyndina að Cosa Nostra nafninu fékk Máni
þegar hann las Mac Bolan bók. Þar tók hann
eftir að með öllum fjölskyldunöfnunum í maf-
íunni stóð Cosa Nostra (sem ku vist þýða okkar
málefni).
Þegar þau vom svo komin með góðan fjölda
af lögum fóm þau i stúdíó til að koma sköpunar-
verki sínu á plast. Við það nutu þau dyggrar
aðstoðar Þorsteins Jónssonar. Breiðskífan Aris-
wers Without Questions kom svo út í byijun
nóvember 1985. Lagið Waiting for an Answer
náði mestum vinsældum af henni. Þau gerðu
myndband við það lag, í samvinnu við félagið
Alvöm, þá Viktor Heiðdal og Ásgrím Sveinsson.
Myndbandið þótti með þeint betri sem gerð vom
á þessum tíma þó endirinn haft verið mjög um-
deildur meðal almennings. Plötuna og mynd-
bandið fjármögnuðu þau algerlega sjálf eins og
margir íslenskir tónlistarmenn gera. Þau vom
heppnari en sumir, komu út alveg slétt, með þvi
að taka engin laun sjálf.
Cosa Nostra fékk nokkra gagnrýni vegna þess
að söngurinn var allur á ensku en nýja lagið
þeirra, sem kemur út á safnplötu sem Vímulaas
æska sendir frá sér, er sungið á íslensku. Ég spurði
Mána hvort það mætti rekja til þessarar gagn-
rýni. Hann svaraði því að þau væm orðin sáttari
við íslenskuna en þegar Answers Without Questi-
ons kom út, þau gerðu sér líka grein fyrir að
markaðurinn kallaði á íslensk lög með íslenskum
texta. Þetta lag, sem um ræðir, ber nafnið S. O.S.
en þar syngur Máni aðalröddina ásamt Addý.
Hann er samt að hugsa um að láta Addý eftir
sönginn að mestu leyti það sem eftir er.
Cosa Nostra er sem stendur bara dúett. Pétur
ákvað að segja skilið við danstónlist og fara yfir
í rokkið og stuttu seinna hætti Guðmundur af
Ueknilegum orsökum. En ef framhaldið verður í
samræmi við nýja lagið, sem ég tel vel vert áheym-
ar, er hægt að hugsa sér gott til glóðarinnar þegar
þau senda frá sér nýja plötu.
Vestræntpopp
til Rússlands
Þær eru fáar, vestrænu hljómsveitirnar sem
hafa haldið tónleika í Rússlandi. Þær sem
hafa gert það hafa notið ómældra vinsælda
eftir það. Boney M á víst enn töluvert stóran
hóp aðdáenda eftir tónleikaferð fyrir nokkr-
um árunt, þó sveitin heyri nú sögunni til.
Reagge hljómsveitin UB40 hélt nokkra tón-
leika þar fyrir stuttu og er vist aðalgrúppan
þar í landi nú. Þarlendum ráðamönnum leist
svo vel á framlagið að UB40 hefur verið boð-
ið þangað aftur og þá með aðrar hljómsveitir
með sér. Þær sern hafa verið nefndar til farar-
innar eru Eurythmics, Simple Minds og U2.
Eurythmics og U2 hafa ekkert viljað tjá sig
um málið en talsmaður Simple Minds sagði
að ferðin væri möguleiki, lofaði þó engu.
Múrinn virðist sem sagt vera farinn að hrynja.
Madonna og
Nick Kamen
Eins og alþjóð veit hafa Madonna og Sean
Penn slitið sambandi sínu, bara eftir að koma
pappírunum á hreint. Ástæðan fyrir því að
Madonna ákvað loks að segja skilið við Sean
heitir Nick Kanten. Hann er aðeins yngri en
Madonna, laglegur og áður en hann kynntist
henni hafði hann helst unnið sér til frægðar
að leika í gallabuxnaauglýsingum. En nú er
veröldin önnur. Madonna ætlar sem sagt að
gera úr honunt stjörnu. Hún samdi lag fyrir
hann sem heitir Each Time You Break M y
Heart og hefur náð að klifra vinsældalista
víða um heim. Hvernig þetta kemur til með
að takast verður tíminn að leiða í ljós.
1. TBL VIKAN 29