Vikan - 01.01.1987, Side 61
Steingeitin
22. desember-20. janúar
Janúar mun reynast þér einstaklega erfitt
tímabil, bæði hvað varðar einkamál þín og
ýmis önnur málefni. Hins vegar ber að varast
að halda að „skilnaður" sé eina leiðin út úr
ógöngunum.
Margir telja að steingeitin sé fremur skap-
þung og hafi auk þess ekki mikla kímnigáfu.
Það er hins vegar mikilvægt fyrir þig að hlæja
mikið í febrúar.
Þú átt eftir að komast að því í þessum
mánuði að þú getur notið margs upp á eigin
spýtur.
I mars lendir þú í mjög krefjandi aðstöðu
varðandi einkalíf þitt.
Þegar í apríl áttarðu þig á því að þú sættir
þig ekki við ýmislegt sem þú hefur tekið þegj-
andi og hljóðalaust hingað til.
Þú skalt vera varkár þann 13. maí eða þar
um bil. Ef þú ert það getur það bjargað því
sem eftir er af mánuðinum.
í júlí verðurðu fyrir truflun í sambandi þínu
við einhvern nákominn.
Margir leita til þín, bæði vinnufélagar og
vinir. Stundum óskar þú þess að fólk haldi
ekki að þú hafir taugar úr stáli en í septemb-
er færðu aðstoð þína við aðra margfaldlega
endurgoldna.
Það er sennilegt að í október muni aðstæð-
ur, sem þú ræður ekki við, á vissan hátt þvinga
þig til að gera eitthvað sem þú vilt ekki. Þú
skalt hins vegar ekki láta þér líða illa vegna
þess að þér finnist þú hafa verið blekktur.
í nóvember má ekkert koma í veg fyrir að
þú njótir viðurkenningar.
Eitthvað sem þú hefur lengi beðið eftir
gæti orðið að veruleika þann 21. nóvember
eða þar um bil.
Ákveðin afstaða reikistjarnanna þann 21.
desember getur orðið til þess að allt lífsmynst-
ur þitt breytist. Það væri ekki viturlegt að
halda að þú gætir breytt þeim aðstæðum sem
skapast. Það er einnig liklegt að miklar breyt-
ingar verði í tengslum við starf þitt og jafnvel
nokkur óvissa um framtíðina. Þú getur öðlast
mikla hugarró ef þú neitar að gera eitthvað
sem er andstætt eðli þínu.
Vatnsberinn
21. janúar-19. febrúar
Atburðir, sem eiga sér stað í janúar, sérstak-
lega þegar fer að síga á seinni hluta mánaðar-
ins, munu geymast í huga þínum lengi.
Þú getur náð verulegum árangri á sviði
náinna sambanda í febrúar. í mars skiptir
miklu máli hvaða afstöðu aðrir taka gagnvart
þér. Þegar komið er fram í apríl sýnir sig að
þú ert enn í hálfgerðu uppnámi vegna atburða
sem snerta þig sérstaklega og eiga sér stað í
lok febrúar.
í maí er útlit fyrir að svo verði komið að
málefni þín verði í mikilli óreiðu. Bæði í vinn-
unni og heima er hætt við að þú lendir í
miklum erfiðleikum sem eiga sér engin for-
dæmi.
Margir heimspekingar hvetja fólk til þess
að njóta lífsleiðarinnar í stað þess að hafa of
miklar áhyggjur af því að ná einhverjum sett-
um markmiðum. í júní munt þú njóta þess
ef þú tekur mark á þessari visku.
Mikilvæg virkni reikistjarnanna í júlí gerir
það að verkum að þú ferð að athuga alvar-
lega það lífsmynstur sem þú hrærist í og að
vissu marki má segja að breytingum sé
þröngvað upp á þig. I ágúst getur það komið
berlega í ljós að þú ert ekki þessi „kalda“
manngerð sem margir halda að þú sért.
Afstöður reikistjarnanna í september eru
þess eðlis að búast má við að allt geti gerst.
Ekki er þó gæfulegt að taka einhverja
heimskulega áhættu. Taktu vel eftir því sem
gerist umhverfis þig.
Hverjar sem ástæðurnar kunna að vera er
líklegt að allt þitt vinnumynstur breytist í
nóvember.
Desember virðist vera mjög mikilvægur fyr-
ir þig. Það sem gerist eftir þann 11. verður
til þess að þú munt taka mikilvægar ákvarðan-
ir varðandi stöðu og feril.
Þrátt fyrir trú margra býrð þú yfir miklum
krafti. Þetta kemur greinilega í ljós í þessum
mánuði. Það mun lýsa sér á þann hátt að
þann 12. eða eftir það muntu taka ákvörðun
um að leggja á vit nýrra ævintýra. Þú öðlast
það sjálfstraust og öryggi sem þarf til þess
að njóta þess að takast á við ný viðfangsefni.
Fiskarnir
20. febrúar-20. mars
Vafalaust munt þú eiga erfitt með að að-
laga þig afleiðingum atburða sem áttu sér stað
í ársíok 1986. Þrátt fyrir allt getur þú bætt
ijárhagslegan skaða í janúar og gert margt til
að tryggja þér öryggi á árinu.
Aðstæður, sem sköpuðust við atburði á síð-
asta ári, varpa enn skugga á líf þitt. Febrúar
getur orðið mánuður harðra viðskipta og jafn-
vel nokkurs rifrildis.
í mars torvelda aðstæðurnar þér að leggja
til atlögu við að verja það sem er þér kært.
Við þessar aðstæður er eini möguleikinn að
leggja spilin á borðið.
Fjárhagsáhyggjur og skyldur virðast vera
aðaláhyggjuefni þitt í apríl.
í maí munu allir - það skiptir .ekki máli i
hvaða merki þeir eru - verða taugastrekktir
og ruglaðir sökum óvenjulegra aðstæðna.
Þú getur enn ekki vonast til að lifa rólegu
og skipulegu lífi. í raun verður júní erfiðasti
og mest krefjandi mánuðurinn sem þú hefur
nokkru sinni lifað.
í júlí ættirðu að hafa öðlast mikla gleði,
sjálfsöryggi og bjartsýni.
Þú færð ný tækifæri í ágúst til að hljóta
viðurkenningu fyrir starf þitt.
September getur orðið erfiður mánuður
fyrir alla og þú gætir fundið fyrir sérstökum
eríiðleikum í samskiptum við maka.
í október er líklegt að þú verðir meira vak-
andi og fylgist betur með en ella. Það er
vafalaust nauðsynlegt því að í þessum mánuði
verður þér sennilega stillt upp við vegg.
í nóvember verður þú að gera alvöru úr
því að treysta sambönd þín við fólk sem býr
erlendis eða fólk sem þú hefur ekki samskipti
við dags daglega. Það getur skipt sköpum
fyrir þig.
Þú hefur kannski skynjað það eftir reynslu
fyrri ára að desember er afdrifaríkasti mánuð-
urinn hvað ákvarðanir varðar. Þú kemst
jafnframt að því að þér gefast margir mögu-
leikar sem veita þér mikla ánægju. Einnig er
áreiðanlegt að mikilvæg fjárhagsleg ákvörðun
verður tekin fyrir árslok.
1. TBL VIKAN 61