Vikan - 06.08.1987, Blaðsíða 18
NAFN VIKUNNAR:
VALDIMAR HERMANNSSON
Verslun í vexti
Hinn 13. ágúst verður Kringlan opnuð. Eins
og flestum er kunnugt er húsið að meirihluta
í eigu Hagkaups hf. en þar hefur fyrirtækið
8.000 fermetra til sinna umráða. Meirihluti
þessa pláss fer undir matvöruverslun og deild-
skipta sérvöruverslun. Valdimar Hermanns-
son er verslunarstjóri í sérvöruversluninni.
Hann er ungur maður á uppleið, einungis 26
ára gamall.
Valdimar hóf störf hjá Hagkaupi fyrir rösk-
um 4 árum. „Ég byrjaði sem sölumaður hjá
IKEA,“ segir Valdimar. „Síðar varð ég deild-
arstjóri og fór þá meðal annars til Svíþjóðar
til þess að kynna mér IKEA vörurnar." 1984
varð Valdimar aðstoðarverslunarstjóri Hag-
kaups i Skeifunni og ári síðar verslunarstjóri
í Kjörgarði við Laugaveg. Valdimar er mennt-
aður verslunarmaður og hóf störf hjá heild-
verslun strax að loknu verslunarprófi. „Mér
þótti aldrei gantan í skóla og fór því ekki í
langskólanám en til þess að bæta mér það
upp," segir hann, „hef ég farið á ýmis stjórn-
unar- og sölumannanámskeið, bæði í Stjórn-
unarskólanum og hjá JC-hreyfingunni."
Valdimar er mjög ötull JC-maður og hetur
gegnt þar ýmsum stjórnunarstörfum, meðal
annars verið forseti aðildarfélags og farið utan
á ýmis alþjóðleg stjórnunarnámskeið.
„öll þessi reynsla nýtist manni mjög vel í
starfi verslunarstjóra," segir hann. „Verslun-
arstjórastarfið er nefnilega fyrst og frernst
stjórnunarstarf. Þar reynir á hæfni einstakl-
ingsins til þess að reka verslun og sömuleiðis
hæfni hans til þess að láta 1000 smáatriði, sem
lúta að starfsmannahaldi, útstillingum og
öðrum daglegum rekstri, passa saman."
Valdimar hefur að sjálfsögðu fylgst með
byggingu Kringlunnar frá upphafi og fyrir
tæpu ári var ákveðið að hann tæki að sér
stjórn sérvöruverslunarinnar.
- Hvað réð því að þú varst gerður að versl-
unarstjóra í Kringlunni.’
„Þú skalt ekki spyrja mig að því," svarar
Valdimar. „Hins vegar tók ég þátt í endur-
skipulagningu og uppbyggingu verslunaiinnai
í Kjörgarði og sú reynsla hefur vitanlega kom-
ið að góðum notum. Þá hefur þessi grunn-
Viðtal: Sigrún Ása Markúsdóttir
18 VIKAN 32 TBL
menntun mín, þessi námskeið í stjórnun og
afskipti mín af félagsmálum hjálpað mér
geysilega, fyrir utan það prinsipp mitt að setja
mér markmið og ná þeim."
Hinn I. mars tók Valdimar formlega við
starfi verslunarstjóra í Kringlunni og síðast-
liðna 4 mánuði hefur hann unnið að undir-
búningi opnunarinnar.
„Ég byrjaði á því að fara til Englands og
vann þar í 10 daga í svipaðri verslun og ég
kem til með að stjórna," segir hann. „Þetta
var algerlega nauðsynlegt; Kringlan á sér enga
fyrirmynd í íslensku verslunarlífi. Rekstur og
stjórnun fyrirtækisins er gjörólókt því sem
maður þekkir. Það var því mikil reynsla og
góð að fara þarna út og sjá hvernig menn
skipuleggja þennan rekstur."
Að sögn Valdimars er nýja sérvöruverslunin
mjög ólík þeirri sern er í SÍceifunni. Þar standa
matvörur og sérvörur nánast hlið við hlið; í
Kringlunni er skipulag með allt öðrum hætti.
Sérvörudeild og matvörudeild eru aðskildar,
reyndar hvor á sinni hæðinni. Sérvöruverslun-
in er 2800 fermetrar á annarri hæð hússins.
Hún skiptist í 9 deildir. Hver deild hefui sinn
eiginn afgreiðslukassa og viðskiptavinir ganga
á milli deildanna líkt og um sjálfstæðar sér-
verslanir væri að ræða. Á ensku heitir svona
verslun department store en á jslensku mætti
kalla hana deildskipta verslun. í þessari deild-
skiptu verslun verða 4 fatadeildir, þar af ein
sérstök unglingadeild. Þá eru þarna leikfanga-
deild, skódeild, ritfanga-. bóka-, sportvöru-
og hljómplötudeild. gjafa- og búsáhaldadeild.
ásamt snyrtivörudeild.
„Að sjálfsögðu er allt úrval meira og fjöl-
breyttara en í Skeifunni." segir Valdimar.
„lnnkaupamennirnir okkar hafa í rösklega
eitt ár keypt ýmis ný merki, bæði í fatnaði
og snyrtivörum. Má þar nefna Miss Selfridges
snyrtivörur og föt frá Easy pieces og Sand-
wich. Þá má geta þess að um árabil hefur
Hagkaup selt föt frá hollenska stórfyrirtækinu
C&A en það er nú byrjað að framleiða föt
sem eru sérstaklega merkt Hagkaupi."
- Hversu margir koma til með að starfa í
versluninni?
„í versluninni eru 50-70 stöðugildi," segir
Valdimar, „en ég býst við að starfsmenn verði
allt að 100. Við verðum að gera ráð fyrir
hálfsdagsfólki og svo fjölgum við starfsfólki
á háannatíma."
Valdimar segir að það hafi gengið mjög vel
að ráða fólk til starfa í sérvöruverslunina.
Nú þegar sé búið að ráða í um það bil 99
prósent staða. Þess má einnig geta að með
tilkomu þessara tveggja verslana Hagkaups í
Kringlunni bætast um það bil 250 manns við
starfsmannafjölda fyrirtækisins og eru starfs-
menn þá tæplega 1000.
- Hvað gerið þið ráð fyrir að geta tekið
við mörgum viðskiptavinum í verslunina?
„Ég hef nú ekki tölurnar alveg á reiðum
höndum," svarar Valdimar, „en við áætlum
að í Kringluna komi um 40-60 þúsund manns
á viku og í verslununum verða 45 kassar í
gangi þegar best lætur svo að við eigum að
geta afgreitt mörg þúsund manns á dag."
Menn velta því fyrir sér hvort hugsanlega
verði skortur á bílastæðum í Kringlunni á
annatímum og hvað verði gert til þess að
draga úr þessum vanda. Valdimar segir að
bílastæðaskorturinn geti vissulega orðið
vandamál en hins vegar verði sá vandi leyst-
ur. „Þegar er búið að byggja bílastæði á
tveimur hæðum í Kringlunni," segir hann, „og
innan árs verður tekin í notkun bílageymsla
á þremur hæðum sem verður Miklubrautar-
megin við núverandi bílastæði.1'
- Að lokum. Valdimar, hvernig hefur und-
irbúningurinn gengið?
„Þetta hefur gengið mjög vel," svarar hann.
„Sérvöruverslunin var tilbúin fyrir svona
mánuði og í vikunni fyrir verslunarmanna-
helgina byrjuðum við að þrífa og koma
vörunum fyrir.
Annars hefur þessi undirbúningsvinna öll
verið alveg geysileg lífsreynsla fyrir mig,"
bætir hann við. „Með tilkomu Kringlunnar
er verið að stíga nýtt skref í íslenskum verslun-
arrekstri og mér finnst alveg feikilega gaman
að hafa átt svolitinn þátt í þessu brautryðj-
endastarfi og nú hlakka ég til þess að sjá
hvernig dæmið gengur upp.“
Mynd: helgi skj. fridjónsson
/