Vikan - 06.08.1987, Qupperneq 20
Vikan — eldhús
Málsvcröur
frá Suöurríkjunum
Suðurríki Bandaríkjanna eru fræg fyrir matar-
gerð sem á rætur sínar að rekja í ýmsar áttir,
meðal annars til Frakka og Spánverja. Matur-
inn á borðum Suðurríkjabúa er gjarnan vel
kryddaður og soðinn lengi og mikið er um
baunir, hrísgrjón og maís. Þessar uppskriftir
með sýnishornum suðurbandarískrar matar-
menningar fékk Vikan hjá íslenskri konu,
Björk Anderson, sem búið hefur þar um slóð-
ir.
Rauðar baunir og hrísgrjón
(red beans and rice)
í þennan sterkkryddaða, góða rétt nota
heimamenn rauðar baunir sem eru ófáanlegar
hér á landi. I staðinn notum við nýrnabaunir
(kidney beans).
2 bollar nýrnabaunir
1 bréf beikon
1 tsk. pipar
'A tsk. salt
% tsk. cayennepipar (rauður pipar)
3-4 dropar tabascosósa
2 laukar, smátt saxaðir
Leggið baunirnar í bleyti yfir nótt. Setjið
baunir, lauk, beikon og krydd í pott og sjóð-
ið við vægan hita í 2-3 klukkutíma. Sjóðið
hrísgrjón og ausið baunakássunni yfir. Vætið
í með baunasoðinu.
Maísbrauð (cornbread)
2 bollar maísmjöl (athugið, maískorn-
mjöl, ekki maizenamjöl!)
V* bolli hveiti
3 tsk. lyftiduft
Vi tsk. salt
4 msk. matarolía
1 bolli súrmjólk
(1-2 msk. sykur, ef vill)
2 egg
Hrærið öllu þessu saman. Þykktin á að
vera svipuð og á þykku vöffludeigi. Smyrjið
innan kringlótt tertumót, helst springform,
og bakið við 180° C í um hálftíma.
Kjúklingur og hveitibollur
1 kjúklingur
1 púrrulaukur
salt, grófmalaður pipar
Va. msk. cayennepipar
Hlutið hráan kjúklinginn niður í smáa bita
og fjarlægið bein. Setjið kjúklingabitana i
pott og látið vatnið fljóta vel yfir. Skerið
púrrulaukinn í sneiðar og bætið í pottinn
ásamt salti og kryddi. Grófmalið piparinn og
bætið í pottinn (sparið ekki piparinn). Látið
kjúklinginn sjóða i 1 klukkutíma við hægan
hita. Á meðan kjúklingurinn sýður er hveiti-
bolludeigið lagað.
Hveitibollur
1 bolli hveiti
1 Vi tsk. lyftiduft
1 Vt msk. matarolía
salt framan á hnífsoddi
súrmjólk
Blandið þurrefnum og olíu saman og bætið
súrmjólkinni í eftir þörfum. Deigið á að vera
þykkt og seigt. Mótið litlar bollur úr deiginu
og bætið þeim út í soðið hjá kjúklingnum.
Látið bollurnar sjóða með í klukkutíma í við-
bót. Berið allt fram saman á diski eða í skál.
Rétturinn á að vera fremur þunnfljótandi.
Umsjón: Þórey Einarsdóttir
20 VI KAN 32 TBL