Vikan - 06.08.1987, Page 30
Vikan — popp
SIMPLE MINDS
Hljómsveitin Simple Minds var stofn-
uð fyrir um það bil 10 árum. Það var
þó ekki fyrr en fyrir þrem árum sem
hún sló virkilega i gegn og hefur hún
samtals gefið út sjö breiðskífur. í dag
er aðdáendahópurinn með þeim stærstu
í poppheiminum.
Árið 1977 var til pönksveit sem kall-
aðist Johnny & the Self Abusers. Þegar
pönkið og sú sveit liðu undir lok ákváðu
þrír meðlimir þessarar sveitar að halda
áfram í músíkinni. Þetta voru þeir Jim
Kerr, Mick McNeil og Charles Bur-
child. Hinir tveir, sem stofnuðu þessa
nýju hljómsveit, voru Dered Forbes og
Brian McGee.
Þeim tókst fljótlega að fá samnirtg við
Arista útgáfufyrirtækið og í mars 1979
kom fyrsta breiðskífa þeirra út og hét
hún Life in a Day. Sú plata gekk ekk-
ert of vel en heldur ekkert of illa. Aðeins
átta mánuðum síðar kom út önnur
breiðskífa þeirra. Sú hét Real to Real
Cacophony. Þessar tvær plötur ein-
kenndust af tilraunastarfsemi þeirra
félaga sem virtust ekki vera búnir að
markasérstefnu.
Þriðja plata þeirra, sem kom út í sept-
ember 1980, Empires and Dance, náði
nokkrum vinsældum, enda var tónlistin
á henni nokkuð aðgengilegri en á fyrri
plötunum tveim. Á þessum tíma voru
hljómsveitir á borð við OMD, Ultravox
og fleiri að slá í gegn og var þá ekki
laust við að smááhrif frá þessum sveitum
væru á Empires and Dance.
Empires and Dance var síðasta plata
Simple Minds undir merkjum Arista
fyrirtækisins því vorið 1981 skiptu þeir
um fyrirtæki og gerðu samning við Virg-
in.
Fyrsta plata þeirra félaga undir þessu
merki bar nafnið Sons and Fascination
og komst lagið Love Song inn fyrir topp
20 í Bretlandi. Haustið 1982 kom út
breiðskífan New Gold Dream. Af henni
náðu nokkrum vinsældum lögin Glitter-
ing Prize og Promised You a Miracle
sem komst í 8. sæti breska smáskífulist-
ans. Þetta sama lag var gefið út í
hljómleikaútgáfu fyrir stuttu og varð
nokkuð vinsælt, enda létt og skemmti-
legt lag (mun léttara en fyrri lög þeirra
félaga), svo ekki sé talað um Someone
somewhere in Summertime.
Nú kom fyrsta frí þeirra í langan tíma
og notuðu þeir þann tíma til að íhuga
framhaldið, hvort þeir ættu að halda
sömu stefnu eða breyta til. Seinni hug-
myndin var valin og varð breytingin svo
mikil að hún kom mörgum á óvart.
Sparkle in the Rain kom út vorið 1984
Upptökunum stjórnaði Steve Lillywhite
sem var þá frekar litt þekktur en er nú
með vinsælustu upptökustjórum í heim-
inum. Af þeirri plötu komu út á
smáskífum lögin Speed Your Love to
Me, Waterfront og Up on the Catwalk.
Breiðskífa þessi náði miklum vinsældum
og eftir frekar slæmt tónleikaferðalag
fóru þeir í frí. Jim Kerr notaði það til
að giftast söngkonu hljómsveitarinnar
Pretenders, Chrissie Hynde, nokkuð
sem kom mörgum á óvart þar sem talið
var að Chrissie væri um það bil að gift-
astöðrummanni.
í byrjun ársins 1985 var gefið út lagið
Don’t You (Forget about Me). Lag
þetta var úr unglingakvikmyndinni
Breakfast Club. Lagið er ekki eftir þá
heldur upptökustjóra að nafni Keith
Forsey. Þeir voru ekkert of ákafir að
taka þetta að sér en ákváðu loks að slá
til. Lagið sló i gegn og fór í fyrsta sæti
bandaríska listans, fór ofarlega á lista í
Bretlandi og víðs vegar um heiminn.
Eftir vinsældir lagsins Don’t You biðu
margir spenntir eftir næsta leik. Árið
1985 kom út breiðskífan Once upon a
Time. Af henni komu út fjölmörg smá-
skífulög sem náðu miklum vinsældum,
eins og All the Things She Said, Alive
and Kicking og Sanctify Yourself. Allt
eru þetta lög sem flestir kannast við.
Nú héldu þeir í langt tónleikaferðalag
sem stóð yfir i 15 mánuði og tóku þeir
meðal annars þátt í átaki til hjálpar
Amnesty International.
Á þessu ári kom út hljómleikaalbúmið
Simple Minds Live in the City of Light
sem spannar feril sveitarinnar frá 1981
til 1987 - gripur sem enginn ætti að
vera svikinn af.
Frá því að þeir byrjuðu hafa einungis
tveir sagt skilið við sveitina. Árið 1983
tók Mel Gaynor við trommusettinu af
Brian McGee og árið 1985 tók John
Gibling við bassanum af Derek Forbes.
En þeir þrír sem stofnuðu sveitina upp-
haflega, þeir Jim Kerr, Mick McNeil
og Charles Burchild, hafa haldið hópinn
og ætla að gera það eitthvað lengur. Svo
nú er bara að bíða eftir næsta leik frá
þeim félögum sem verður vonandi innan
skamms.
BREIÐSKÍFUR:
Life in a Day.
Real to Real Cacophony.
Empires and Dance.
Sons and Fascination.
New Gold Dream.
Sparkleinthe Rain.
Once uponaTime.
Inthe City ofLight.
AÐDÁENDAKLÚBBUR:
SimpleMinds
PO Box 48
LondonN65RU
England
30 VIKAN 32 TBL