Vikan - 06.08.1987, Page 37
staðbundnum hagsmunum. Einn á að vera
fulltrúi útvegsins, annar á að vera fulltrúi
bænda og svo framvegis. Það eru fáar konur
stjórnendur i þessum atvinnugreinum. Upp
úr þessum atvinnutengslum er lagt meira en
jafnræði milli kynjanna. Þar sem flokkurinn
fær kannski einn eða tvo menn kjörna er
ljóst að slík viðhorf eru mjög andstæð hags-
munum kvenna í pólitík.“
- Það hefur ekki farið framhjá neinum
að sjálfstæðiskonur voru mjög óánægðar
með að fá ekki konu á ráðherrastól. Hefði
ekki verið upplagt tækifæri að skipa konu
sem ráðherra til að styrkja stöðu kvenna
innan flokksins?
„Þegar menn velja ráðherra þarf að gæta
margvíslegra sjónarmiða. Formaður flokks-
ins var ekki öfundsverður af því hlutverki.
Það toguðu margir strengir í hann: lands-
byggðarsjónarmið, það að hafa konur, það
að yngja upp. Það var ansi þröngt um okk-
ur í þessari stöðu. Við verðum að gæta þess
að við höfðum sex ráðherra og sjö ráðuneyti
í síðustu ríkisstjóm en nú höfum við fjóra
ráðherra og fjögur ráðuneyti þannig að það
var úr minna að moða. Vafalaust hefði ver-
ið heppilegt að eiga kost á því að velja
landsbyggðarþingmann eða konu en for-
maður flokksins lagði málin upp á þann
hátt að hann vildi að varaformaðurinn færi
með honum inn í ríkisstjórnina. Eftir það
var pláss fyrir tvo. Birgir ísleifur er af nýrri
kynslóð. Reyknesingarnir,'* sem koma úr
stóru kjördæmi, kröfðust þess að fá ráð-
herrastól. Niðurstaðan var sú að einn kæmi
þaðan. Það er ekki nokkur vafi á því að það
er hægt að gagnrýna val á ráðherrum flokks-
ins. En niðurstaðan hefði verið gagnrýnd
hvernig sem hún hefði verið.“
- Þér hefur ekki dottið í hug að ganga
fram fyrir skjöldu og bjóða sæti þitt konu?
„Nei, mér þótti óeðlilegt að standa upp.
Ég held að það liggi í hlutarins eðli að vara-
formaður flokksins sitji í ríkisstjórn. Hins
vegar er það sjónarmið stórs hóps að vara-
formaðurinn eigi að sinna innra flokksstarfi
en mitt mat er að ráðherrarnir eigi að gera
það allir. Það tækifæri, sem gefst með aðild
að ríkisstjórn, á að nota til að byggja upp
flokkinn. Við verðum að vera okkur meðvit-
andi um það allan tímann, þessir fjórir
ráðherrar, við þessir fjórir karlráðherrar, að
við verðum að leitast við að auka hlut
kvenna innan flokksins. Það getum við gert
með ýmsum hætti, til dæmis með því að
skipa konur í nefndir og ráð meira en hing-
að til.“
- Mál Alberts Guðmundssonar var mikið
til umræðu á útmánuðum og skoðanir skipt-
ar innan Sjálfstæðisflokksins um framgang
forystumanna flokksins. Albert hvarf sem
kunnugt er af lista flokksins í Reykjavík og
gekk til liðs við nýjan flokk. Er einhver lausn
sjáanleg á máli Alberts?
„Listi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
missti mikið þegar Albert fór af listanum. A
því er enginn vafi. Hann höfðar til mjög
margra. Ef til vill getur mál Alberts Guð-
mundssonar kennt okkur nauðsyn þess að
Ég er ekki einn af
uppáhaldssonum
Morgunblaðsins, á
því leikur enginn vafi.
tillitssemi og umburðarlyndi verður að vera
til staðar þótt siðferðiskröfur séu auknar.
Það er kjósendanna að velja fólk til setu á
Alþingi. Hins vegar á þingflokkurinn að
gera þá kröfu til manna, sem sitja í ráðherra-
embættum, að þeir fari ekki út fyrir vissan
siðferðisramma. Þingflokkurinn ber ábyrgð.
Þeir eru kjörnir af honum.
Albert Guðmundsson og flestir þeir sem
starfa i Borgaraflokknum eru hvenær sem
er velkomnir í Sjálfstæðisflokkinn. Það höf-
um við sagt Albert Guðmundssyni. í stjórn-
armyndunarviðræðunum ræddum við
Þorsteinn Pálsson við Albert og Júlíus Sól-
nes og í þeim viðræðum skýrðum við þeim
frá því að flokkurinn væri þeim opinn sem
einstaklingum. Við teljum að þeir og margir
aðrir innan Borgaraflokksins eigi heima í
Sjálfstæðisflokknum. í honum starfa hins
vegar margir sem ekki voru í Sjálfstæðis-
flokknum og telja sig ekki eiga samleið með
honum. Ég býst við að einhver tími muni
líða þangað til Borgaraflokkurinn hættir
starfsemi sinni. En ég lit á þetta sem bráða-
birgðaástand, einungis timabundið bil, og
þegar mestu tilfmningarnar hlaupa úr mönn-
um og skilningurinn vex þá munu flestir
komast að því að þeir eiga samleið í einum
borgaralegum flokki sem auðvitað er Sjálf-
stæðisflokkurinn. Vonandi gerist það fyrir
næstu kosningar. Reynslan sýnir að smá-
flokkar eiga ekki framtíð fyrir sér.“
- Þegar Albert var horfinn af listanum
var mikið um það rætt að Davið Oddsson
tæU fyrsta sætið á listanum en ekki þú:
„Ég kannast ekki við þann orðróm nema
af síðum Morgunblaðsins. Ég las frétt þess
efnis í Morgunblaðinu þar sem sagt var að
Davíð hefði hugsað málið ef til hans hefði
verið leitað. Mér var hins vegar ekki kunn-
ugt um að í stjórn fulltrúaráðsins, sem gerði
tillögu um þessar breytingar manna á fram-
boðslistanum, hefði sú hugmynd komið upp
að Davíð tæki fyrsta sætið. Þannig kom mér
nokkuð á óvart að lesa fréttina í Morgun-
blaðinu.“
Eftir kosningaósigur Sjálfstæðisflokksins
var skipuð nefnd að tillögu forystu flokksins
sem gerði úttekt á starfi flokksins og leitaði
skýringa á því sem hefði farið úrskeiðis. í
nefndinni sátu, auk Friðriks, þau Inga Jóna
Þórðardóttir, Jón Magnússon, Viglundur
Því miður virðist minnisvarðapólitík vera innbyggð í lýðræðinu.
32 TBL VIKAN 37