Vikan - 06.08.1987, Blaðsíða 44
Vikan — böm
Sjónvarpsauglýsingar
tíma. Hafíð tímann ekki of langan svo
að þeir sem bíða verði ekki leiðir.
Munið svo að í látbragðsleik er hvorki
talað né sungið en smáleikhljóð skemma
ekki.
Miði í krukku
Þessi leikur er alveg tilvalinn þegar
laga þarf til á heimilinu og enginn nenn-
ir því. Það er nefnilega tómur misskiln-
ingur að mömmurnar eigi alltaf að taka
til eftir alla fjölskylduna. En þetta hafið
þið nú heyrt áður.
Leikurinn fer þannig fram að litlir
bréfmiðar eru klipptir niður og gæta
verður að hafa þá alla jafnstóra. Síðan
er þeim skipt niður á alla viðstadda
þannig að hver fær til dæmis 4-5 miða
(mega vera fleiri eða færri).
Síðan skrifar hver manneskja á mið-
ana sína, án þess að hinir sjái, eitthvað
sem hún vill láta gera, brýtur miðana
vandlega saman og lætur í krukku.
Þegar allir eru búnir að útfylla miðana
sína og setja í krukkuna er hún hrist
vandlega. Þá fer að færast fjör í leikinn
því að nú er skipst á um að draga úr
krukkunni, helst með lokuð augun svo
að enginn svindli, og það sem hver og
einn dregur verður hann að gera.
A miðunum gæti til dæmis staðið:
Syngja lagið Rúllukragapeysan. Sópa
gólfið. Bjóða öllum upp á ís. Borða all-
ar afgangskartöflurnar frá hádegis-
matnum. Þvo upp eftir matinn. Taka
úr þvottavélinni. Hoppa á einum fæti í
kringum húsið. Fara út og finna kóngu-
ló. Segja tíu brandara.
Þessi leikur getur verið stórskemmtileg-
ur og það eina sem þið verðið að muna
þegar þið skrifið á miðana er að þið
gætuð dregið ykkar miða sjálf!
Þið hafið örugglega oft farið í lát-
bragðsleik þar sem þið skiptist á um að
leika eitthvað ákveðið og hinir eiga að
geta sér til um hvað það er.
Næst skuluð þið hafa leikinn þannig
að þið skiptist á um að leika sjónvarps-
auglýsingu. Það getur verið mjög
skemmtilegt og ef þið eruð mörg saman
skiptið þið í lið þannig að tveir til þrír
leika hverja auglýsingu.
Það krefst þess að hvert lið verður
að fá smátíma til að tala sig saman um
auglýsinguna og kannski æfa smávegis.
En áður en leikurinn byrjar er gott að
vera búinn að ákveða hve sá tími má
vera langur svo að öll liðin fái jafnan
Þaö er alveg bannað aö svindla í krukkumiðaleik
Veistu
1. Hvað heitir 007 öðru nafni?
2. Hvað er jarðepli?
3. Frá hvaða borg í Englandi eru Bítlarnir?
4. Hvar er fossinn Glymur?
5. Hvað heita karlkyn, kvenkyn og afkvæmi svíns?
6. Hver var fyrsta íslenska popphljómsveitin?
7. Hvað hét kona Tarsans?
8. Hvenær var Leikfélag Reykjavíkur stofnað?
9. Hvenær var byrjað að sýna talmyndir á fslandi?
10. Hvað hefur strútur margar tær?
Svör:
•pæj mnJOAq b jaeAj^ -(ji
'0861 9!JV '6
'Í68I QHV '8
•auBf 'L
•jBuipfiH '9
•sjjS So BqA3 ‘jnjioj) -g
IQJIJ[BAH ; Bsujog j p
IOOCÍJ3Alrí 'g
b]Jbjjb)i 'Z
puog souiBp j
44 VI K A N 32 TBL