Vikan - 19.11.1987, Síða 7
Masters og ég var heppinn í
Wimbledon. Ætli það hafi ekki
verið einhverskonar álög á mér
eins og er með landslið ykkar í
handknattleik gagnvart okkur
Svíum.
Þessi síðasta athugasemd kom
á óvart og þegar gengið var á
Björn sagði hann: „Eg held að ég
verði að viðurkenna að landslið
ykkar sé betra en okkar þrátt
fyrir að við vinnum ykkur yfir-
leitt. Liðið hlýtur að vera haldið
einhverjum komplexum gagn-
vart okkur, því ég hef aldrei séð
það spila vel gegn okkur þó það
hafi kannskinýlega burstað Dani
og unnið Júgóslava. Mér kæmi
ekki á óvart þó þeim tækist það
loksins í Seoul, en þar lendum
við í sama riðli, ekki satt?“
Er ennþá í toppformi
Björn hætti formlega keppni
árið 1983, aðeins 27 ára gamall.
Þá var hann búinn að vera í
fremstu röð ffá því hann vakti
fýrst heimsathygli með sænska
landsliðinu í Davis Cup keppn-
inni árið 1972, sextán ára að
aldri. Hann hætti í skóla fimm-
tán ára til að einbeita sér að
tennisleik og um tvítugt var
hann tvímælalaust orðinn sá
besti í heiminum. Það ár vann
hann Wimbledon í fyrsta sinn
og fimm ára sigurganga var
hafin. Keppinautar hans jafht
sem fjölmiðlar kepptust við að
lofa hann og Ilie Nastase sem
tapaði fýrir Birni í úrslitaleik
Wimbledon keppninnar 1975
sagði eftir að hafa fýlgst með
úrslitaleiknum 1980 þar sem
Björn vann McEnroe: „Við spil-
um tennis. Hann spilar eitthvað
allt annað.“
Um aðra tennisleikara segir
Björn: „Sá erfiðasti? Ég veit það
ekki. Connors, McEnroe. Allir.
Þeir voru allir erfiðir. Auðvitað
væri gaman að keppa við þá sem
eru á toppnum núna. Við eigum
nokkra frábæra leikmenn í Sví-
þjóð í dag þó að Lendl sé tví-
mælalaust sá besti í dag. Ég veit
ekki hvort ég hafi verið betri
þegar ég var á toppnum, það er
svo erfitt að bera tvo leikmenn
saman. Þó held ég að ég hefði
nú staðið í honum," bætti hann
við og brosti breitt. Það er ekki
sjálfshólinu fýrir að fara hjá
honum.
Þó er hann mjög öruggur
með sig og þegar hann var
spurður hvort hann væri ennþá
liðtækur svaraði hann: Ég held
mér ennþá í toppformi þó að ég
sé ekki í leikæfingu. Ég gæti
komist í fremstu röð á ný. Ég er
nú ekki svo gamall ennþá. Con-
nors er ennþá að og hann er
þremur árum eldri en ég.“
Ekki minnkaði áhugi almenn-
ings á Birni eftir að hann hætti
keppni og í dag er hann vinsæl-
asta efhið í sænskum slúður-
blöðum. Þar slær hann meira að
segja konungsfjölskyldunni við.
Þegar hann sagði skilið við rúm-
önsku eiginkonuna stna, Marinu
Simionescu, sem hann kvæntist
1980 og tók saman við hina
kornungu Jannike Björling vakti
það heimsathygli. Jannike sem
var aðeins sautján ára þá varð
heiftarlega fýrir barðinu á fjöl-
miðlunum og um það segir hún:
lrAuðvitað var þetta erfitt til
að byrja með, ég var það ung. Ég
tók nærri mér kjaftæðið sem
skrifað var og var farin að forð-
ast það að líta í blöðin. í dag er
maður búinn að venjast þessu
þannig að maður lítur bara yfir
skrifin yfir okkur og pælir ekk-
ert í þeim. Blaðamenn geta ekki
sært mig lengur með rætnisfull-
um skrifum." Hún virðist vera
mjög ákveðin og ótrúlega
þroskuð miðað við að vera að-
eins 21 árs. Hún er næstum jafn
hávaxin og Björn, dökk yfirlit-
um, mjög falleg og hefur töfr-
andi bros sem sést þó allt of
sjaldan. Hún virðist vera á varð-
bergi gagnvart fréttamönnum
og lái henni það hver sem vill.
Björn er álíka varkár í tali og
vill sem minnst tala um einka-
hagi sína. Þó sagði hann þegar
undirritaður spurði hvort við
mættum eiga von á „comeback“
frá honum: „Nei, ég hætti að
keppa vegna þess að ég var bú-
inn að fá nóg eftir folf ár og finn
mig mjög vel í því sem ég er að
gera í dag. Ég er hamingjusamur
með Jannike og vil skapa henni
og Robin syni okkar gott heim-
ili. Það fer ekki vel saman við ei-
líf keppnisferðalög." A.E.
VIKAN 7