Vikan


Vikan - 19.11.1987, Síða 47

Vikan - 19.11.1987, Síða 47
„HVAIFRWUNARMENN ERU Á VHUGÖTUM" - segir Siguröur Njálsson skipstjóri á Hval 9 í Viku-viðtali Hvalveiöar íslendinga hafa veriö mjög í sviös- Ijósinu í sumar. Umfjöllun fjölmiðla hefur þó veriö afar einhliöa, og miklu fyrirferðarmeiri hefur verið áróöur þeirra sem eru á móti hvalveiðunum. Nánast aldrei heyrast viöhorf þeirra sem hafa hvalveiðar aö atvinnu. Kemur þeim málið ekkert við? Eða hafa þeir ekkert til málanna aö leggja? Eru þetta mistök frétta- manna eða eru þeir vísvitandi að reka áróður gegn hvalaveiðum? Ef að útlendir áróðursmeist- arar og ff iðunarmenn eru á ferð- inni þá eru þeim yfirleitt allar dyr opnar að fjölmiðlum og fréttastofum. Þessi gestrisni er þó vanþökkuð því erlendis fer þetta fólk yfirleitt hörðum orð- um um Islendinga, fégræðgi þeirra og mannvonsku. í Banda- ríkjunum þar sem öflug samtök grænfi-iðunga, og yfirvöld reynd- ar ekki undanskilin, hóta íslend- ingum viðskiptaþvingunum láti þeir ekki af grimmdarlegum hvalveiðum, þá gleymist að geta þess í umræðunni að íslending- ar eru ekki grimmari en svo að þeir eru meðal örfárra þjóða í heiminum sem ekki hafa her- skyldu og þjálfa því ekki ungt fólk sitt gagngert til manndrápa. Af lýsingum friðunarmanna og hvalavina í útlendum blöð- um þá eru íslenskir hvalveiði- menn ímynd hins illa, hrotta- fengin rustamenni sem ganga til vinnu sinnar blóðugir upp fyrir axlir, drepandi blessaða hvalina af fégræðgi og morðfysn ein- göngu. Slíkar fúrðulýsingar hafa sést í útlendum blöðum. Yfir- leitt hafa íslenskir fjölmiðlar þagað þunnu hljóði og sýnt lít- inn áhuga á að draga fram í dags- ljósið aðrar hliðar á hvalamálum og hvalveiðimönnum, - draga fram í dagsljósið þá mynd af þeim mönnum sem stundað hafa hvalveiðar í áratugi að þeir eru ekki síður góðir þegnar en aðrir sem stunda atvinnu sína af trúmennsku og kunnáttu. Þeir þekkja til hvalanna betur en flestir aðrir og skilja betur en flestir aðrir þegar stunda verður hvalveiðar í hófi, þannig að stofnar rísi undir veiðinni. Of- veiði kæmi þeim sjálfúm fyrst og fremst í koll. Til að kanna viðhorf hval- veiðimanns leggjum við nokkr- ar spurningar fyrir Sigurð Njáls- son skipstjóra á Hval 9. — Nú eru hvalveiðar umdeild atvinnugrein og þeir sem þar eru að störfúm verða oft fyrir ákúrum og ádeilum. ímynd sumra friðunarmanna sem dreg- in hefur verið upp af ykkur hval- veiðimönnum er að þið séuð hinir verstu sjóræningjar, gang- ið til verka blóðugir upp fyrir axlir og látið gróðasjónarmiðið eitt ráða. Hvert er þitt sjónar- mið? Þú hefur stundað hvalveið- ar lengi? — Ég byrjaði á hvalbát árið 1954 sem messa-strákur fýrst og svo varð ég háseti árið eftir. Stýrimaður varð ég 1959 og til 1969 og svo varð ég skipstjóri 1970. Eg er mjög ósammála þessum viðhorfúm hvalafriðun- armanna. Það er slæmt hvað þeir segja oft ósatt. Við erum þarna út á miðunum og fylgj- umst með þessu, og þetta hefur verið stundað af mikilli skyn- semi í gegnum árin. Áhersla er lögð á góða nýtingu á því sem veitt er og áhersla er lögð á að hvalurinn sé góð vara til manneldis. Þess vegna er líka lögð áhersla að við séum ekki of lengi úti í hverjum veiðitúr. Við tökum til dæmis bara tvær lang- reyðar í hverri veiðiferð, eða fjórar sandreyðar, en þær eru minni. Við tókum líka bara tvo búrhvali á meðan þeir voru veiddir. Þannig að það hefur alltaf verið unnið að þessu af umhugsun og skynsemi. Það er strangt með að taka ekki of smá dýr. Stærðarmörkin eru 50 fet á langreyði og 35 fet á sandreyði. Það var einnig 35 fet á búrhvali á meðan hann var veiddur. Nú eru það aðeins langreyðar og sandreyðar sem hafa verið veiddar. Steypireyðurinn var friðaður fýrir nokkrum árum. Steypireyð og hnúfubak hefur fjölgað mjög og virðast þeir stofnar vera orðnir nokkuð sterkir núna. Það var mjög geng- ið á hnúfúbakinn áður. Til dæm- is fýrstu 5 árin sem ég var í þessu sáum við bara einn hnúfu- bak. En nú er orðið mikið af honum. — Friðunarmennirnir nota mikla tækni í sínum áróðri og W láta í veðri vaka að þetta séu r VIKAN 45

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.