Vikan


Vikan - 19.11.1987, Side 59

Vikan - 19.11.1987, Side 59
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1 Þá eru þriðji sonurinn, Ramon, og dóttirin, Renee, að hasla sér völl innan kvikmyndaheimsins. Ramon lék í spennumyndinni Turnaround, en Renee sem er nítján ára lék sitt fyrsta hlutverk í sjónvarpsmyndinni Babies Hav- ing Babies sem faðir hennar leik- stýrði. Fjölskyldan er mjög samhent og allir innan hennar styðja hvern annan af öllum mætti. Hún heldur að mestu til innan veggja heimil- isins og Martin segist varla vita hvernig hann fær öll hlutverkin. - Ég tek ekki þátt í „félagslífinu" í Hollywood, ég fer hvorki í veislur né á frumsýningar. Sem fjöl- skylda erum við mjög heimakær og okkur er annt um einkalíf okkar. Um börnin segir Martin: - Það er ofboðslega góð tilfinning að horfa á þau takasts á við hlutina. Sérstaklega hef ég gaman af Em- ilio, en hann er mér meira eins og bróðir en sonur. Hann er ótrúlega duglegur. Á fjórum árum er hann búinn að leika í myndum, skrifa handrit og leikstýra. Það tók mig tuttugu ár að ná þessu. —AE. Peningarnir sem Sheen fékk fyrir að leika í Gandhi runnu til góðgerðarstofnana. Hlutverkið í Apocalypse Now gekk næstum frá honum. Álagið var svo mikið að eftir tveggja ára þrotlausar tökur fékk Sheen hjartaáfall og lá í dauðadái í nokkra daga. I Kennedy ásamt Blair Brown sem lék forsetafrúna, Jacqueline. VIKAN 57

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.