Vikan - 19.11.1987, Side 39
TEXTI:
MAGNÚS
GUÐMUNDSSON
í undirdjúpum West Edmonton Mall ►
gefúr að líta spennandi furðuheim, með
fjölbreyttu dýralífi. Kafbátar flytja gesti
um undirdjúpin sem ná yflr 5 hektara
svæði undir verslanamiðstöðinni.
rða- og kaupglaðir
islendingar vilja gjarna slá
margar flugur I einu
höggi með að sameina í
einn pakka á ferðalögum
erlendis innkaup,
skemmtanir og bað-
strandarlíf. Allt þetta er
hægt án mikilla tilfær-
inga, ef leiðin er lögð til
Kanada, nánar tiltekið,
borgarinnar Edmonton í
Albertafylki. Þangað er
hægt að komast fyrir
tiltölulega vægt verð, ef
borið er saman við
þessar hefðbundnu
innkaupaferðir til
Evrópulanda.
Verðlag í Kanada er einnig
mjög hagstætt, sem getur vegið
upp á móti þeim verðmun sem
liggur í flugferðinni þangað,
miðað við til dæmis Glasgow.
í Edmonton í Kanada er nokk-
uð sem margir hafa kallað átt-
unda undur veraldar, stærsta
verslanamiðstöð í víðri veröld,
West Edmonton Mall, sem rúm-
ar hvorki meira né minna, en
830 verslanir og veitingastaði
undir einu þaki!
Myndi þekja allan
miðbæinn
Flatarmál West Edmonton
Mall er um það bil 500.000 fer-
metrar, eða um 50 hektarar,
sem er hreint ekki svo lítið
svæði. Til samanburðar er
Kringlan skráð hjá Borgarverk-
fræðingi Reykjavíkur um 28.000
fermetrar. Kanadiska verslana-
miðstöðin myndi þekja allan
gamla miðbæ Reykjavíkur og ef
henni yrði slegið upp við
Skautahöllin í
West Edmonton Mall
er hið tilkomumesta
mannvirki.
m
Hótel Fantasyland, eða Hótel
Furðuheimur, sem er 360
herbergja gistihús inni í
verslanamiðstöðinni, býður
gestum West Edmonton Mall
upp á gistingu í herbergjum
þar sem ímyndunaraflið hefur
verið látið ráða um innrétting-
ar. Hér er til dæmis trukkaher-
bergið fýrir bíladellufólk.
I West Edmonton Mall, eru gangarnir eins og
raunverulegar verslanagötur og eru þær oft
eftirlíkingar af frægum götum annars staðar í
heiminum, eða í stíl við eitthvert heimssvæði.
Þessi gata heitir Europa Boulevard, með versl-
unum sem sérhæfa sig í frægum evrópskum
tískufatnaði.
Kringluna, myndi allt svæðið á
milli Kringlumýrarbrautar og
Háaleitisbrautar og Miklubraut-
ar og Bústaðarvegar og gott
betur, hverfa undir þak þessarar
gríðarstóru verlanamiðstöðvar.
Það fáeri ekki mikið fyrir öll-
um Reykvíkingum, þótt þeir
legðu allir leið stna í einu í búð-
arráp í West Edmonton Mall og
bílastæði væru ekkert vandamál,
þar sem verslanamiðstöðin
rúmar um það bil 50.000 bíla í
stæði innan og utanhúss.
Þeir sem ekki nenna að þvæl-
asts í búðir geta svo sem fúndið
eitthvað við sitt hæfi þarna inn-
an dyra, þar sem stærsta Tívolí í
heimi, innan dyra, er meðal
þeirra afþreyinga sem boðið er
upp á. Skemmtigarðurinn einn
nær yfir 52.000 fermetra svæði.
Til annarra skemmtana fyrir
þreytta búðarápara, býður versl-
anamiðstöðin upp á stóreflis
dýragarð og sædýrasafn, ferða-
lög með stórum kafbátum um
djúpin blá, þar sem illúðlegir
hákarlar glotta framan í gestina,
skautahöll og fjörugt næturlíf
með dansstöðum og kvikmynd-
ahúsum, svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er þó allt slegið út með
World Waterpark, sem er vatna-
svæði upp á tæpa þrjá hektara,
inni í verslanamiðstöðinni. Þar
f.
World Waterpark. Myndin sýnir hluta vatnagarðsins. með hinnl vinsælu baðströnd, par sem
10.000 manns geta baðað sig í einu, án þrenglsa.
er til dæmis stóreflis baðströnd
undir þaki, með véldrifhum
öldugangi þar sem baðgestir
geta leikið sér á brimbrettum og
orðið jafn sólbrúnir eins og á
gervisólir undir þakinu sjá fyrir
brúnkugeislum.
Fótafúnir í innkaupum þurfa
ekki að láta stærð miðstöðvar-
innar hræða sig, þar sem gestum
er boðið upp á rafknúna vagna,
sem þeir geta síðan stýrt hvert
sem óskað er. Þeir sem kjósa að
ganga verða hins vegar að búa
sig undir nokkurt erflði, þar sem
göngutúrinn á milli allra versl-
ananna er rúmir 5 kílómetrar.
36 VIKA.N
VIKAN 37