Vikan - 19.11.1987, Page 44
Gekko (Michael Douglas)
og Fox (Charlie Sheen) í
myndinni Wall Street.
Ungur og ákafur nær Bud
Fox sér í 50.000 dollara starf í
íjármögnunarleigu á Wall
Street. En hann er ekki
ánægður. Hann dreymir um
að gera stóra hluti á fjármála-
sviðinu. 'I'ækifærið kemur er
hann hittir hinn auðuga
fjármálasnilling Gordon
Gekko: „Ég geri þig ríkan,“
segir Gekko. Hriflnn hellir
Fox sér út í heim alþjóða
fjármála. Aðeins ári síðar
brotlendir hann.
Saga frá hruninu á Wall
Street? Ekki alveg. Þetta er
söguþráðurinn í nýjustu mynd
Oliver Stone (Platoon) sem
hefja á sýningar á í desember en
myndin þykir sýna vel andrúms-
loft það sem nú ríkir á Wall
Street. Myndin heitir raunar
Wall Street og Stone will ekki
gera mikið úr líkingunni við hið
raunverulega hrap....þú sérð
skugga þess en Wall Street er
saga um einstakling," segir hann
Hólmavíkurflétta
Deildakeppni Skáksam-
bands íslands er skemmtileg
að því leyti að þar tefla marg-
ir sem annars láta aldrei sjá
sig á skákmótum. Sumir eru
stirðir en aðrir tefla eins og
þeir hafi aldrei gert annað.
Eftir fýrri hluta keppninnar,
sem ffarn fór í Reykjavík í byrj-
un mánaðarins, var suð-austur
sveit Taflfélags Reykjavíkur með
forystu. Norð-vestur sveit sama
félags var í öðru sæti ásamt
þeirri sveit sem kom mest á
óvart: Sameinaðri sveit Vestfirð-
inga.
I skáksveit Vestfirðinga tefla
tveir fslandsmeistarar, sem báð-
ir koma ffá Hólmavík. Þeir eru
Jón Kristinsson, sem varð skák-
meistari íslands árin 1971 og
1974, og Helgi Ólafeson, skák-
meistari íslands 1964. Hann
stundar sjóinn frá Hólmavík og
er stundum, skákmanna á
meðal, nefhdur Helgi Ólafeson
eldii, til aðgreiningar ffá Helga
Ólafssyni stórmeistara.
Lítum á stöðu frá deildakeppn-
inni þar sem Helgi Ólafeson eldri
fléttar skemmtilega. Hann hefur
hvítt og á leik gegn Jóhanni Þóri
Jónssyni:
abcdefgh
Ykkur kemur kannski til hug-
ar að leika 30. Hf8+ Hxf8 31.
Be5+, en með 31. — Rf6 bjargar
svartur málunum. Hin leikjaröð-
in breytir engu. Ef 30. Be5+
Dxe5 31- Hf8+ kemur 31. —
Bg8 og aftur forðar svartur
skinni sínu.
En nú ætti lausnin að vera
komin: 30. Hxe4! Dxe4 31.
Hf8+! Bg8 Ef 31 ■ - Hxf8, þá 32.
Be5+ og nú verður svartur að
láta drottninguna af hendi, því
að ef 32. — Kg8, þá 33- Dg7 mát.
32. Hxe8 og svartur gaf. Eftir
32. - Dxe8 kæmi 33. Be5+ og
mátar eða vinnur drottninguna.
Naum
Hvaða samning vildir þú,
lesandi góður, helst spila á
þessi spil?
XX
KXXX
AIOXXXX
X
N
s
AKXX
10X
X
AK109XX
Stubbaspil í laufi er nær-
tækasti kosturinn. En það
ótrúlega við þessi spil er það
að ef ekki kemur hjarta út, þá
er samningurinn 4 hjörtu best-
ísak örn
Sigurðsson
ur á spilin, eins og legan var.
Þetta spil kom fyrir í minning-
armóti Einars Þorfinnssonar,
sem spilað var fyrir stuttu á
Selfossi. Hvort sem þú trúir
því eða ekki, þá „náði“ eitt par
þeim ótrúlega samningi, og
vann þegar ekki kom hjarta út.
Laufið lá 3—3, tígullinn sömu-
leiðis og spaðinn lá 4—3. Til að
kóróna allt saman, þá lá hjarta
Ás einnig á undan kóngnum.
Þannig fengust fimm toppslag-
ir á lauf, spaða og tígul. Fjórar
trompanir og hjartakóngur var
tíundi slagurinn. Hið þekkta
tvímenningspar, Stefán Páls-
son og Rúnar Magnússon, sem
hafa þann vafasama heiður að
komast í samninginn, melduðu
spilið þannig:
S N
1 tígull 1 hjarta
3 lauf 3 tíglar
3 spaðar 4 lauf
4 hjörtu pass
Opnunin tvö lauf hjá þeim
neitar fjórlit í hálit. Þess vegna
er 1 tígull eina opnunin hjá
þeim á Precision kerfi þeirra.
Austur og vestur óska nafh-
leyndar.
42 VIKAN