Vikan - 19.11.1987, Blaðsíða 60
Mér finnst ég ekki vera kyntákn
Áöur en langt um líður er Gorden Kaye búinn að leika Randy
Rene í „’ALLO ’ALLO“ lengur en stríðið stóð yfir í alvörunni.
Þegar flestar sjón-
varpsstjörnur baða
sig í sviðsljósinu þá
hugsar Gorden Kaye
með söknuði til
áranna þegar andlit
hans var óþekkt
meðal almennings.
stöðin ákveðið að gera a.m.k. 26
þætti í viðbót.
Þegar þeim verður lokið þá
mun Gorden hafa leikið Rene
lengur en seinni heimstyrjöldin
stóð yfir!
Síðsumars var lokið gerð
þáttaraðanna sem breskir sjón-
varpsáhorfendur fá að sjá á
skjánum í vetur (og við vonandi
líka). Áður en tökur hófust fór
Gorden í tveggja vikna frí. Fór
hann til Frakklands? Nei. Hann
þorði ekki að taka áhættuna og
fór til Ameríku í staðinn. í>ó er
búið að selja þáttaröðina þangað
og þar að auki til 40 annarra
landa.
Gorden var spurður hvernig
honum fyndist að fá bréf frá kon-
um sem skrifuðu til hans vegna
þess að þær litu á hann sem
kyntákn?
„Mér finnst það óskaplega
undarlegt,“ sagði hann, „og það
getur varla verið af öðru en því
að hinum huglausa Rene finnst
gaman að gamna sér með þjón-
ustustúlkunum sfnum. Hann er
alltaf að hlaupa á eftir þeim og
kannski halda konur að ég sé
þannig líka.
Þó gerist aldrei neitt hjá grey-
inu því um leið og hann byrjar þá
er alltaf öruggt að konan hans,
Edna, eða einhver annar kemur
þar að. Hvað finnst þér; lít ég út
eins og kyntákn?“
Hárið er farið að þynnast,
kollvikin há, augnlokin slöpp og
komin dálítil ístra. Hann hlær
þegar hann bætir við: „Og það
sem meira er þá drekk ég aldrei
og hlýt að vera eini veitingahúss-
eigandi í heimi sem getur sagt
það.“
Einkalífið
f rauninni er hinn feimni Gor-
den Kaye piparsveinn og vill að
einkalífið sé sitt einkamál. Hann
segir þó: „Ég er ekki giftur og bý
í litlu húsi við ána nálægt Kew
Gardens. Mig langar til að giftast
einhvern tíma og eignast börn,
en hef ekki látið verða af því
ennþá. Án þess að fara nánar út
í þá sálma þá hef ég tvisvar verið
trúlofaður - ekki leikkonum - og
samkomulagið um að slíta trúlof-
ununum var með samþykki
beggja aðila.
Vandamál mitt er að finna
stúlku sem skilur líf leikarans. Ef
ég vel leikkonu þá er alltaf hætta
á að afbrýðisemi geri vart við sig
ef öðru gengur betur í starfinu en
hinu, en velji maður stúlku sem
er ekki í skemmtanabransanum
þá er alltaf hætta á að til árekstra
komi af því hún á erfitt með að
Gorden lét sér vaxa yfirvara-
skegg þegar hlutverk Rene,
franska kaffihúsaeigandans og
kvennabósans, var skrifað fyrir
hann fyrir meira en fjórum
árum. Gorden líkar alls ekki við
skeggið og lofaði sjálfum sér því
að hann myndi raka það af um
leið og þættirnir hættu. Hann
losnar þó ekki við það í bráð því
það er ekki nóg með að búið sé
að setja þættina á svið í West
End, heldur hefur sjónvarps-
58 VIKAN