Vikan - 29.09.1988, Qupperneq 15
TEXTI:
SÆMUNDUR GUÐVINSSON
— Hvers vegna ertu að
fara til Mallorka rétt eina
ferðina? Af hverju farið
þið hjónin ekki eitthvað
annað, til daemis til ítal-
íu, Portúgal, Grænlands
eða Flórida?
- Við erum búin að
fara vítt og breitt um
Evrópu, en nú erum við
að fara í áttunda sinn til
Mallorka. Hvers vegna?
Farðu bara sjálfur og þá
kemstu að raun um
hvers vegna við förum
þangað aftur og aftur.
Eitthvað á þessa leið fóru
orð á milli mín og kunningja
míns síðast liðið vor þegar við
mættumst niðri í Austurstræti.
Ég hafði engan sérstakan
áhuga á að fara til Mallorka.
Fór þangað sumarið 1974 til
að losna undan þjóðhátíðarfár-
inu og dvaldi þá í tvær vikur.
Fór í allar skoðunarferðir,
hefðbundna grísaveislu, lá á
ströndinni og eyddi kvöldun-
um við að þvarga við landann
um þjóðmálin heima, eins
gáfulegt og það nú er. Petta
var að mörgu leyti skemmtileg
ferð, en ekkert sérstök og mér
leiðast hópferðir. En ég gat
ekki hætt að velta því fyrir mér
hvers vegna íslendingar halda
áfram að flykkjast þúsundum
saman til Mallorka á hverju ári
eins og það er orðið mikið
úrval ferða í boði í aUar áttir.
Hvers vegna alltaf Mallorka?
Og svo fór að ég skeUti mér á
staðinn til að kanna hvað mér
hafði yfirsést þarna um árið.
En áður en ég drep á hvers ég
varð vísari er rétt að víkja
nokkrum orðum að upphafi
þess að íslendingar hófu að
streyma til Mallorka.
Ferðir í 30 ár
„Ég fór með fyrsta íslenska
ferðamannahópinn beint til
Mallorka um páskana árið
Ferðaskrifstofan Atlantlk er nteðal íslenskra ferðaskrifstofa
sem bjóða Mallorkaferðir. Þessi mynd sýnir aðstöðuna við
glænýtt hótel, Royal Christina Við Palmaströnd, sem Atlant-
ik býður farþegum sinum.
1958, eða fyrir 30 árum. Þetta
var jafnffamt fyrsta íslenska
leiguflugið til sólarlanda,"
sagði Guðni Þórðarson, fyrr-
verandi ferðaskrifstofukóngur
í Sunnu, í stuttu spjalli um
byrjun Mallorkaferða.
„Það var tekin á leigu flugvél
frá Flugfélagi íslands og hún
beið í viku þarna úti eftir
hópnum. Gist var á hóteli inni
í höfuðborginni, Palma, enda
var þá bara eitt hótel á Maga-
luf, eitt á Palma Nova og tvö á
Arenal. Flugstöðin á vellinum
var svona álíka stór og flug-
VIKAN 15