Vikan - 29.09.1988, Qupperneq 21
FORSÍÐUSTÚLKAN
„Ég komst ekki í nœrfölin
og varð því af 60 þús. krónum"
Hún heitir Bryndís og er aðeins sextán ára en hún hefur þegar öðlast reynslu í fyrir-
sætustörfum erlendis. Henni er spáð miklum ffama á þeirri braut. í þessu Vikuvið-
tali lýsirhún tildrögum þess að hún hóf fyrirsætustörf og framvindu mála.
„Ég var með pabba og mömmu í versl-
unarferð í London í fyrra og var þá stopp-
uð úti á götu af konu sem var þar. Hún
spurði mig hvað ég væri gömul og hvaðan
ég væri og sagði okkur að hún og maður-
inn hennar rækju umboðsskrifstofú fyrir-
sæta. Skrifstofan heitir Premier og er ein
sú besta í London. Hún sagðist vilja fá mig
til þeirra, en pabba og mömmu leist ekk-
ert vel á þetta fyrst í stað. Reyndar höfðu
tveir aðrir stoppað mig á götunni áður, en
pabbi rak þá í burtu.“
Hvers vegna heldurðu að þú hafir vakið
eftirtekt?
„Líklega af því ég er svo há. Ég er 179
cm á hæð.“
Leikar fóru alla vega svo að Chris, svo
hét konan frá Premier, gat talað fjölskyld-
una inn á að leyfa Bryndísi að koma til
London næsta sumar til að vinna sem fyrir-
sæta.
Var ekki sagt að ég yrði á
labbi allan daginn
„Mér var auðvitað lofað gulli og græn-
um skógum, sem stóðst nú ekki alveg.
Fyrstu vikuna sem ég var úti gerði ég nán-
ast ekkert nema skoða mig um. Þegar ég
mætti á umboðsskrifstofúna var mér sagt
að ég þyrfti að grenna mig. Þetta fannst
mér skrítið, því ef nokkuð er, þá hef ég
ffekar verið í fitun. Ég átti bara tvær mynd-
ir í möppunni minni sem ég fór með til
viðskiptavina til að sýna.
Ég byrjaði klukkan 8 á morgnana að fara
á milli viðskiptavinanna með myndirnar
mínar tvær og var að ffarn á kvöld. Sumir
tóku manni vel, aðrir rétt litu á þetta og
næstum hentu þessu í mig til baka. Þetta
gat verið mjög erfitt og niðurdrepandi
þegar maður fékk þannig móttökur því í
rauninni er ég feimin. Stundum varð ég
Hvernig farnast kornungum
íslenskum fyrirsœtum
á erlendri grund?
Er þetta jafn spennandi og
œvintýralegt starf og
allir halda?
Ekki alveg - alla vega ekki
samkvœmt reynslu
Bryndísar Bjarnadóttur,
sextán ára fyrirsœtu sem
starfaði í London í sumar.
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Hvernig byrjaði þetta allt saman?
„Árni Sæberg Ijósmyndari kom í skólann
minn til að taka myndir þegar ég var 12
ára. Hann spurði mig hvort hann mætti
taka myndir af mér og ég sagði að það væri
allt í lagi. Hann gaf mér svo þessar myndir
en sýndi þær líka Guðfinnu og Friðþjófi
sem voru með tískuþátt í Nýju lífi. Þeim
leist vel á myndirnar og buðu mér að
koma og vera í tískumyndum fýrir blaðið."
Bryndís var sem sagt ekki nema 12 ára
þegar hún hóf fyrirsætustarfið. Núna er
hún orðin 16 ára, fædd á kvennadaginn 19.
júní, sem þó er ekki hár aldur fyrir stúlku
sem fer ein til útlanda. Hvernig kom starf-
ið í Englandi til?
Forsíðumyndatakan fyrir þetta tólublað
Vikunnar er ekki fyrsta myndataka
Magnúsar Hjörleifssonar af Bryndísi.
Myndina hér fyrir ofan tók hann
snemma í sumar í auglýsingabækling
iyrir Árblik hf. (Icewear). Magnúsi fannst
strax gott að vixma með Bryndísi en neit-
ar því ekki að Lundúnaferð hennar hafi
Sert hana enn hæfari til fyrirsætustarfa.
VIKAN 21