Vikan - 09.03.1989, Qupperneq 20
KVIKMYNDIR
í svona stórmálum er
hjónabandinu fleygt
Guðný Halldórsdóttir og Halldór Þorgeirsson,
tveir af aðstandendum kvikmyndarinnar
Kristnihalds undir Jökli, í Vikuviðtali
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
„Sé hjónabandið ekki tryggt er
ekki ráðlegt að dvelja lengi í
námunda við Jökulinn!" segir
Diddi í Bárðarbúð í Ólafsvík, en
hann er einn þeirra fjölmörgu
sem trúa á kynngikraft Snæfells-
jökuls. Þau sem stóðu að mynd-
inni Kristnihald undir Jökli
voru ekki jafh heittrúuð á jökul-
inn og Diddi þegar þau komu að
Arnarstapa í fyrrasumar — a.m.k.
ekki í upphafi. Þar voru þau við
vinnu í langan tíma, stór og ólík-
ur hópur fólks, sem Arnarstapa-
mönnum þótti vinna óheyrilega
mikið. En þegar þau líta til baka
hjónin Guðný Halldórsdóttir og
Halldór Þorgeirsson og rifja upp
ýmislegt sem gerðist á meðan á
tökum stóð, þá eru þau ekki frá
því að eitthvað hafi verið til í
orðum Didda ... þó hjónaband
þeirra hafi lifað þetta af.
Halldór Laxness er faðir Guðnýjar, en
hana þekkja flestir sem Dunu. „Pabbi gaf
mér kvikmyndaréttinn að Kristnihaldinu
þegar ég lauk kvikmyndagerðamámi fyrir
sjö árum og þess vegna skírðum við kvik-
myndafélagið okkar Umba. Ég var séð og
gaf kennaranum mínum Gerald Wilson,
sem kenndi handritsgerð, eintak af bók-
inni á ensku, svona til að undirbúa jarð-
veginn. Þannig að þegar ég hafði samband
við hann svona mörgum árum seinna og
bað hann að skrifa kvikmyndahandrit eftir
bókinni þá þekkti hann verkið mjög vel.“
Charles Bronson
andi í myndinni?
„Reyndar þekkti hann verk Halldórs
fyrir," bætir Halldór við, „því hann hafði
lesið Sjálfetætt fólk árið 1947.“ Gamli
20 VIKAN 5. TBL. 1989