Vikan - 09.03.1989, Page 36
Melóna á púrtvíni
Ábætir
x
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 10 mín.
Höfundur: Bjarki Hilmarsson
INNKAUP:
AÐFERÐ:
1 stór melóna
3 dl púrtvín
HELSTU ÁHÖLD: Parísarjárn til kúlu-
gerðar.
Ódýr Sl Erfiður □ Heitur □
Kaldur (xl Má frysta □ Annað:
■ Melónan er klofin í tvennt og kjarninn skafinn úr. Búnar til úr henni kúlur
með þar til gerðu áhaldi.
■ Sett á fjóra diska og raðað upp í berjaklasa.
■ Púrtvíni steinkað yfir. Skreytt með grænu laufi, t.d. rifslaufi.
UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Innbakaður grísahryggur
í smjördeigi
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími: 20 mín.
Eldun 40 mín.
Höfundur: Bjarki Hilmarsson
Kjöt
INNKAUP:
ADFERÐ:
1 kg grísahryggur
500 gr smjðrdeig
1 egg
Duxelle:
2 laukar
200 gr sveppir
3 msk brauðraspur
3 msk olía
salt, pipar
HELSTU ÁHÓLD: Ofn, panna, köku-
kefli.
Ódýr □ Erfiður □ Heitur !xl
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
■ Grísahryggurinn er fitu- og sinahreinsaður. Gott er að geyma fituna og
nota hana í paté og terrine. Hryggurinn brúnaður.
■ Duxelle: Laukur og sveppir saxaðir smátt, steikt á pönnu og kryddað
með salti og pipar. Þá er brauðraspinu blandað saman við.
■ Deigið flatt út „Duxelle" sett yfir deigið, hrygginn þar ofan á og „Duxelli"
smurt á hrygginn. Brúnirnar á deiginu penslaðar með eggjarauðu. Hryggn-
um pakkað inn. Gat gert ofaná deigkökuna og hún skreytt með deigafgöng-
um og pensluð með eggjarauðu. Bakað í ofni við 180°C í 30 mín.
LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON