Vikan - 29.06.1989, Page 6
5J0MVARP
„Nú er bara meira af öllu
og allt betur gert"
Fyrir réttum aldarfjórðungi setti Benedikt Gröndal fram tillögur að íslensku sjónvarpi.
Ólafur Thors tafði málið að sögn Benedikts og taldi íslenskt sjónvarp peningasóun. Þegar Bjarni
Benediktsson tók við af honum liðu ekki nema nokkrar vikur þar til málið tók við sér.
Benedikt rifjar upp í viðtali við Vikuna fæðingu íslenska sjónvarpsins.
Fyrir 25 árum, þegar
íslenskt sjónvarp var ekki
komið til sögunnar,
birtust meðfylgjandi drög
að „hugsanlegri íslenskri
sjónvarpsdagskrá" í
Vikunni. Fljótt á litið
virðist þetta vera skondin
lesning í dag, til dæmis er
talað um veðrið einu sinni
í viku; í dagskrárlok á
mánudagskvöldum. Að
sumu leyti bera íslensku
liðirnir, sem eru nokkru
fleiri en þeir erlendu,
svolítinn keim af gamla
gufuradíóinu. Það er í
sjálfu sér eðlilegt þar sem
ekki var um annan
íslenskan Ijósvakafjölmið-
il að ræða í þá daga. En
við nánari lestur kemur
margt athyglisvert í Ijós.
Sumt af því er meira að
segja nýtilkomið í
sjónvarpinu, svo sem
þættirnir „Kvöldskóli
sjónvarpsins“ og
„Tómstundir" sem í dag
gætu verið innlegg í
fræðsluvarpið.
Benedikt Gröndal
sendiherra, sem setið
hefur allra manna lengst í
útvarpsráði, fimmtán ár,
átti stóran þátt í mótun
íslensks sjónvarps og var
einn af höfundum
þessarar „framtíðar-
dagskrár“ sumarið 1964.
6 VIKAN 13. TBL. 1989