Vikan - 29.06.1989, Blaðsíða 13
ÚTVARP
„Þyngri sm&
wmMiiÍÆsíj ^óséjsé30
- segir fjármálastjóri nýjustu útvarpsstöðvarinnar íVikuviðtali
TEXTI: PÉTUR STEINN GUÐMUNDSSON
LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
Þrír bjartsýnismenn stofnuðu
nýtt hlutafélag, Reykvíska út-
varpsfélagið, þann 2. júní síðast-
liðinn. Tilgangurinn er að reka
öðruvísi útvarpsstöð en þær
frjálsu stöðvar sem eru fyrir á
markaðnum. Þessir menn eru
allir liðlega tvítugir og heita ívar
Kristjánsson, sem starfar sem
fjármálastjóri, Birgir H. Birgis-
son markaðsstjóri og Konráð Ol-
avson útvarpsstjóri.
„Við verðum ekki með mikla yfirbygg-
ingu í þessu fyrirtæki," sagði fvar er ég
hitti hann nokkrum dögum eftir að stöðin
FM 95,7 fór af stað. „Við þrír eigum meiri-
hluta í þessu félagi en ég get ekki upplýst
hverjir það eru sem eiga þetta með okkur.
Þeir óskuðu nafhleyndar en þetta eru fjár-
sterkir aðilar," sagði ívar.
Er grundvöllur fyrir einni nýrri
stöð núna þegar sameining hefúr átt
sér stað hjá tveimur stærstu einka-
stöðvunum?
,Já, það er engin spurning," heldur ívar
áfram. „Miðað við þær undirtektir sem við
höfum fengið er jjessi stöð komin til að
vera. Það sem aðgreinir okkur frá öðrum
.Jafnvel niiðað við verstu spár á þetta að geta gengið upp,“ segir ívar Kristjánsson fjár-
málastjóri nýju útvarpsstöðvarinnar FM 95,7.
12 VIKAN 13. TBL. 1989
ÚTV/ARP
Það er hress hópur sem stendur á bak við útvarpsstöðina FM 95,7.
stöðvum er að við erum þyngri stöð og
með vandaðri tónlist að okkar mati. Við
höfum ekki hefðbundna fréttatíma á heila
tímanum. Steingrímur Ólafsson sér um
fféttatengda þætti á degi hverjum og tekur
púlsinn á því sem er að gerast. Annars er
þessi stöð i sífelldri endurskoðun og það
getur vel verið að við setjum upp frétta-
stofu í haust ef við teljum það hjálpa
okkur.“
Hafið þið þrír haft einhver afskipti
af útvarpi áður?
,Já, ég hef starfað á Útrás og var kosinn
forseti útvarpsráðs Fjölbrautaskólans í Ár-
múla. Þar fæddist þetta barn, sem nú hefur
tekið til starfa. í haust reikna ég með að
hætta á Útrás því það gengur ekki upp að
vera í forsvari fyrir tvær stöðvar."
Hvað gerist svo í haust þegar Útrás
byrjar, hafið þið fengið húsnæði til að
halda áffam rekstrinum?
,Já, við erum að ieita að ieiguhúsnæði
og kanna frekari tækjakaup. Við hugsum
þessa stöð til frambúðar," sagði fvar.
„Mannabreytingar hafa orðið í Reykvíska
útvarpsfélaginu frá því fyrst var farið að
velta útvarpsrekstri fyrir sér. Það gekk
vonum framar að fá starfsfólk sem var
grundvöllurinn að því að við lögðum í
þetta. Meira að segja hætti einn dagskrár-
gerðarmaðurinn hjá Bylgjunni/Stjörnunni
til að vinna með okkur. Þetta fólk er allt
tilbúið að vera áfram ef dæmið gengur
upp. Hugmyndin að þessari stöð er frá í
vetur en punkturinn yfir i-ið varð þegar
sameiningin átti sér stað hjá Bylgjunni/
Stjörnunni. Þá ákváðum við að kýla á
þetta.“
Hvað kostar að reka svona útvarps-
stöð?
„Þetta er dýrt, í kringum tvær milljónir á
mánuði," segir fjármálastjórinn íbygginn á
svip.“
Því hefur verið fleygt að þið ætlið að
nota kostun við dagskrárgerð.
,Já, það eru mörg fyrirtæki að velta kost-
un fyrir sér en við byrjum ekki á því fyrr
en eftir mánaðamótin júní/júlí. Kostun
gengur þannig fyrir sig að þáttur dag-
skrárgerðarmannsins er styrktur af ein-
hverju fyrirtæki og á það að nægja til að
greiða laun hans og annan kostnað við
þáttinn. Þetta er þekkt, til dæmis úr Pepsi-
poppi á Stöð 2,“ sagði ívar.
Hvað er bjartsýnin mikill hluti af
rekstrardæminu?
„Það veit ég ekki, við erum bjartsýnis-
menn, en reiknuðum dæmið að minnsta
kosti 200 sinnum og fengum menn tii að
reikna það fyrir okkur sem hafa meiri
reynslu af slíkum útreikningi. Jafnvel mið-
að við verstu spár á þetta að geta gengið
upp. Við höfúm ákveðið forskot sem er
sumarið. Það ætti að létta okkur stofh-
kostnaðinn. Við þurfum 5 milljónir til að
setja stöðina upp í haust og við það bætist
síðan húsaleiga," sagði ívar Kristjánsson
fjármálastjóri nýju útvarpsstöðvarinnar
FM 95.7.
Smáauglýsingar y
TBL.1989 VIKAN 13