Vikan - 29.06.1989, Page 34
RAUPAÐ 0C5 RI55AÐ
Baróttujaxlar
TEXTI OG TEIKNINGAR: RAGNAR LÁR
Húmorinn í Biblíunni
Séra Jakob Jónsson lét af störfum sem
prestur Hallgrímskirkjusafhaðar fyrir
nokkrum árum en hafði þá þjónað söfhuð-
inum frá stofhun hans. Séra Jakob hefur
löngum verið iðinn við skriftir og liggur
mikið verk eftir hann í bundnu og
óbundnu máli.
Þessar línur eru hér settar á blað vegna
þess að raupari fann í fórum sínum skissu
sem hann hafði gert árið 1978 af séra
Jakobi, ásamt vísukorni sem til hafði orðið
um svipað leyti. Tilefni vísunnar var það
að haft var eftir prestinum að hann væri
síður en svo verkefnalaus þó hann væri
hættur prestsskap. Ennfremur var eftir
honum haft að hann hefði mikinn áhuga á
þeim húmor sem finna mætti í Biblíunni.
Vísan er svona:
1 steininn helgan hefur sest
þó hugga sálir ennþá kunni;
hefur nú á handrit fest
húmorinn úr Biblíunni.
Björn í ASÍ
Það er sömu sögu að segja um Björn Þór-
hallsson og Kristján Ragnarsson. Björn
hefur verið í fremstu röð verkalýðsfor-
kólfa um árabil og lætur engan bilbug á sér
finna.
34 VIKAN 13. TBL. 1989
Kristján í LÍÚ
Fleiri skissur voru í sama bunka og skissan
af prestinum. Meðal annarra var skissa af
Kristjáni Ragnarssyni sem lengi hefúr ver-
ið í forsvari fyrir Landssambandi íslenskra
útvegsmanna. Ekki er annað hægt en að
dást að þeim mönnum sem helga líf sitt
baráttumálum hinna ýmsu samtaka. Krist-
ján hefur staðið í eldlínunni þessi ár, átt í
sífelldri baráttu, annars vegar við hið opin-
bera í tengslum við veiðileyfi og kvóta-
skiptingu. Hins vegar hefúr hann staðið í
baráttu í samningamálum útvegsmanna og
sjómanna. Það er ekki að sjá á Kristjáni að
hann hafi breyst á þessum áratug sem lið-
inn er síðan skissan var gerð.
Komiði sæl
Sumir verða þjóðsagnapersónur í lifanda
lífi. Einn af þeim er Sigurður Sigurðsson,
útvarpsmaðurinn góðkunni. Sigurður hef-
ur einnig verið þeirrar gæfu (eða...) að
verða þjóðareign. Frægastur hefúr Sigurð-
ur vafalaust orðið fyrir ógleymanlegar
íþróttalýsingar sínar en þær mun hann
hafa byrjað fýrir tilviljun og án sérstaks
áhuga á íþróttum. „Vörumerki" Sigurðar er
hin fræga kveðja hans, „komiði sæl“, og er
hún einmitt nafnið á endurminningabók
hans sem út kom fyrir nokkrum árum.
Seinni árin hefur Sigurður séð um lýsing-
ar á skákmótum en hann mun vera liðtæk-
ur skákmaður.
Veriði sæl!