Vikan - 29.06.1989, Page 38
hálfs árs, mun gera í haust.
„Ég er ekki lengur Kóreubúi. Við hjónin
skruppum þangað árið 1978 og þá fannst
mér svo mikil mannmergð þarna og áttaði
mig á því hvað mér þótti gott að vera ein-
mana á íslandi. Ég verð að viðurkenna
þetta. Hér er mjög gott að hugsa og hugsa
um sjálfan sig. f Kóreu hafa menn mjög
sterkan persónuleika. Þar gildir einstakl-
ingshyggjan svipað og hér á íslandi. Ég er
eini fúllorðni maðurinn frá Kóreu hér á ís-
landi. Bara aleinn. Ég er stoltur af þessu. Ég
mun aldrei opna veitingastað í Kóreu eftir
þetta. Þar yrði það undirsátalíf. Þar er illa
menntað fóik og fífl sem sjá um veitinga-
rekstur... ég nenni ekki að veraþarna," seg-
ir Kim og virðist meina hvert orð. Hann er
opinskár og einlægur og bætir við: „Sérstak-
lega kjötiðnaðarmenn og veitingamenn,
þetta er ekki góður hópur manna í Kóreu.
Það eru aumingjar sem vinna þessi störf.“
Kim segir svo skemmtilega frá þessu að
ekki er hægt annað en hlæja og gleðjast
með honum yflr því að hann skuli hafa
komist hingað til lands og vegnað vel.
„Ég er ekki lengur Kóreubúi. Við hjónin skruppum
þangað árið 1978 og þá fannst mér svo mikil
mannmergð þarna og áttaði mig á því hvað mér
þótti gott að vera einmana á íslandi.“
paradís fyrir utan veðrið og verðbólguna. I
grein Sigurdórs í Þjóðviljanum 15.-16.
janúar 1983 segir:
„Félagar mínir á Þjóðviljanum hafa i <art
átt nógu sterk lýsingarorð til að koma til
skila hrifningu sinni á þeim matsem Kim og
Kuija (nú Jenný) hjóða gestum..."
f sömu grein Sigurdórs spyr hann hvers
vegna fólk frá Kóreu setjist að hér norður á
íslandi?
„ Okkur þótti landið undurfallegt, urð-
um hreinlega ástfangm af því og þó alveg
sérstaklega Kuija (jenný), sem ákvaðþegar
að við flyttum til íslands. Ekki dró það úr
hve vel okkurfóll viðþá íslendinga, sem við
hittum. Og um haustið, í október, 1974
fluttum við til íslands og eftirþví sjáum við
ekki. ísland erparadís... “ „Þannig varað á
árunum 1965 til 1980 var mjög mikið um
það að fólk frá Kóreu fœri til V-Þýskalands
að vinna. Þá var í gildi samningur milli
/atidanna sem gerði þetta mögulegt.
Ástœðan fyrirþví að Kóreufólkfór til Þýska-
lands var einföld, margfalt hœrti laun en
greidd voru í Kóreu. Við hjónin fórum til
Þýskalands sitt í hvoru lagi og kynntumst
raunar í Þý’skalandi. Við vomm ung og
sennilega hefurþað mest verið œvintýraþrá
sem rak okkurþetta. Þannig erþað oft með
ungt fólk. Ég hafði unnið við matargerð á
hóteli í Kóreu, en samt fékk ég allt að 15
sinnum hœrri laun sem iðnverkamaður í
Þýskalandi. Nema hvað, svo varþað árið
1974, að við Kuija fómm sem ferðamenn
með þýskum hópi til íslands. Ég man vel
hvað mérþótti landslagið hrœðilega Ijótt á
leiðinni frá Keflavík til Reykjavíkur. En svo
breyttist alltþegarþangað var komið... “
Látum þessa umfjöllun Sigurdórs nægja
um hver, hvaðan og hvers vegna þau eru
hingað komin. Hjónin Kim ogjenný virðast
líka hafa fjarlægst allt þetta og líta á sig sem
hverja aðra íslendinga. Börnin þeirra tvö
eru fædd á íslandi og skilja lítið í kóresku.
Dóttirin, Klara Jenný Kim, er orðin tíu ára
og gengur í Flataskóla í Garðabæ en þar býr
fjölskyldan í einkar snotru kúluhúsi. Klara
hafði áður farið í ísaksskóla eins og yngri
bróðir hennar, Skúli Óskar Kim, fjögurra og
Kóresk menning
Gestrisni felst vitanlega í orðum eins og
„hvað má bjóða ykkur?“ og „gerið svo vel
og fáið ykkur meira" og allt það en hjá Kim
er sú spurning áleitin hvort gestrisni hans
eigi sér ekki dýpri rætur. Kim ber með sér
ríkulega lífsgleði sem smitar út frá sér. Hjá
Kim fær maður þá flugu í höfúðið að allt tal
um gjaldþrot og rekstrarerflðleika mat-
sölustaða sé eintómur misskilningur. Fljót-
lega kemur í ljós að Kim lenti sjálfúr í erfíð-
leikum og varð að selja staðinn Seoul til
Bangkok, en þetta var fyrir rúmum tveimur
árum svo Kim var langt á undan sinni
samtíð. Munurinn liggur aðeins í afstöðu
Kims. Hann barmar sér ekki en talar um
mistök eins og próf sem hann hafi lært af.
„Ég mun aldrei opna veitingastað í Kóreu efitir þetta. Þar yrði það undirsátalíf. Þar er
illa menntað fólk og fífl sem sjá um veitingarekstur... ég nenni ekki að vera þama.“
FÓLK
36 VIKAN 13. TBL.1989