Vikan - 29.06.1989, Page 47
5JOMVARP
strákarnir, sem ég hafði áhyggjur af til að
byrja með. Það er erfitt að vera í miðjunni,
á milli stráka eins og Freds og Bens.“
Það kemur vel í Ijós á venjulegu kvöldi
hjá Savage fjölskyldunni. „Við rífumst ekki
mikið, nema einna helst yftr sjónvarpinu, á
hvað eigi að horfa hverju sinni og hver fær
að ráða yfir fjarstýringunni," segir Kala.
„Og ég stelst til að nota sjampóið hans
Freds og þá verður hann reiður.“
Mamma ræður ennþá
Systkini Freds fá líka að finna fyrir frægð
hans. „Krakkarnir í skólanum spyrja mig
hvort ég sé bróðir Freds," segir Ben.
„Strákarnir spyrja hvort hann sé góður og
stelpurnar hvar ég eigi heima.“
Þrátt fyrir frægðina er það enn mamma
sem ræður í lífi Freds. Hún siðar hann til
Það er ekki nema örsjaldan sem Savage fjölskyldan hefur tíma til að borða saman.
Heldur tryggð við
gömlu vinina
Stundum er erfitt að muna að þessi 12
ára gamli strákur er enn bara barn. „Allt frá
því hann fór að ganga hefur honum tekist
að laga sig að hverju því sem hefur komið
upp,“ segir pabbi hans. Kennari hans í
upptökuverinu, sem kennir honum 3 tíma
á dag, segist oft furða sig á honum. „Það er
stundum eins og þarna sé á ferðinni full-
orðinn maður í barnslíkama. Það er eins
og orð afa hans, eða einhvers annars full-
orðins, komi út úr munni þessa unga
drengs."
Fred heldur tryggð við gömlu félagana,
á meira að segja kærustu úr ganfra hverf-
inu sínu, sem honum finnst alltaf jafnsæt,
en viðurkennir þó að það sé erfitt að halda
sambandinu þar sem nú sé svo langt á
milli þeirra. Hann er góður nemandi, mik-
ill íþróttaáhugamaður og uppáhalds
íþróttamennirnir eru Chicago Bears. Vilji
einhver aðdáenda hans hér skrifa honum
þá ætti bréfið að komast til skila ef það er
stílað á aðstandendur sjónvarpsþáttanna,
heimilisfangið er þá:
Fred Savage
c/o New World International
1440 Sputh Sepulveda Blvd.
Los Angeles
California 90025
USA
„Þeir eru að reyna að gera mig reiða með því að segja að ég sé ljót.“ Hér eru systkinin
úti í garði heima hjá sér.
á heita máltíð á kvöldin. En í gær var góð-
ur matur hjá okkur. Ég keypti kjötfars sem
búið var að krydda og gera tilbúið til
eldunar og ekki alls fyrir löngu sauð ég
kartöflur og bjó til kartöflur fyrir krakkana.
Þau héldu að þau væru að borða heimatil-
búna máltíð, sem mér fannst dálítið
sorglegt.
Eddie Murphy
fannst ég fyndinn
Ýmislegt gott fæst þó með frægðinni.
Fred hefúr til dæmis farið á Golden Globe
verðlaunaafhendinguna, hefur fengið boð
ffá Barböru Bush (sem hann gat ekki þeg-
ið vegna upptöku á þættinum), hann fékk
að vera kynnir á verðlaunaafhendingu
People’s Choice og hefúr verið þulur í
mynd. Á Golden Globe hátíðinni gekk
Clint Eastwood framhjá borði Freds. Hann
beygði sig niður að honum og sagði í Dirty
Harry tón: ‘Mér finnst gaman að þættinum
þínum, krakki.’ Fred er þó ennþá dálítið
feiminn við þessa þekktu leikara. Á
People’s Choice hátíðinni þorði hann ekki
að fara til Dustins Hoffrnan og heilsa en
aftur á móti gekk hann til Eddie Murphy
og sagði við hann: ‘Sæll, herra Murphy.’
„Ég heilsaði honum svona því maður fer
aldrei of varlega. Hann sat þarna við borð
ásamt níu öðrum, þessum 300 kílóa líf-
vörðum. Ég sagði honum að mér fyndist
hann mjög fyndinn og hann sagði að hon-
um fyndist ég mjög fyndinn."
og það fyrir framan alla í upptökusalnum:
’Fred, gleymdu ekki að setja setuna upp
þegar þú ferð á klósettið!’ Það sem virkar
best til að fá Fred til að hlýða, eftir því sem
hann segir sjálfur, er þegar mamma hans
hótar að taka geislaspilarann af honum eða
myndirnar hans af íþróttastjörnum.
„Stundum er ég vondur við mömmu," seg-
ir hann. „En ég er að verða miklu betri. Ég
hef þroskast."
„Fred er tilfinninganæmur og hann hef-
ur innsæi," segir mamma hans. „Það eina
sem ég hef verulegar áhyggjur af er félags-
lífið hjá honum og að hann er ekki í skóla
með jafnöldrum sínum. Ég hef ekki miklar
áhyggjur af Ben, hann virðist þola allt.
Hann er gáfaður, félagslyndur og vinsæll.
Kala er svo ljúf. Hún er mun hljóðlátari en
13. TBL. 1989 VIKAN 45