Vikan - 29.06.1989, Side 56
LESEhDAKörniunm
Ferð þú fil
Parísar
í boði Pierre
Cardin?
Pierre Cardin hefur tekið frá horð á þessum heimsfræga veitingastað, Maxim’s, fyrir
hinn heppna Vikulesanda og gest hans 23. júli næstkomandi.
Heppinn lesandi Vikunnar fær
upphringingu fimmtudaginn 13.
júlí næstkomandi og honum til-
kynnt að hann hafi unnið ferð til Parísar
PEUGEOT 505 V6, lúxusútgáfa af flagg-
skipi PEUGEOT. Með svona bifreið ferð-
ast vinningshafinn í skoðunarferð um
heimsborgina París.
fyrir tvo í boði Vikunnar, Flugleiða og
tískukóngsins Pierre Cardin. Hafir þú þá
verið búin(n) að senda inn útfyllta seðil-
inn með lesendakönnuninni sem fylgir
Vikunni og senda hann í „pottinn", sem
dregið verður úr, gætir þú hugsanlega
upplifað ævintýri lífc þíns í næsta mánuði.
Vinningurinn er ekki framseljanlegur og
vinningshafinn ásamt gesti sínum verður
að geta flogið til Parisar ásamt blaðamanni
og Ijósmyndara Vikunnar 23. júlí. Flogið
verður með Flugleiðum og að sjálfcögðu á
Saga Class farrými.
Fyrsta kvöldið verður borðað í boði
tískukóngsins á því söguffæga veitingahúsi
Maxim’s, sem Cardin keypti fyrir fáeinum
árum. Þið getið lesið sögu veitingastaðar-
ins í næstsíðasta tölublaði Vikunnar.
Næsta dag verður svo farið á tískusýn-
ingu hjá Cardin, en sú sýning er önnur
tvegg)a sem hann heldur á þessu ári. Sýn-
Verðlaunahafinn mun fylgjast með
lokaðri tískusýningu Pierra Cardin 24.
júlí.
ingar hans eru aðeins opnar sérstökum
boðsgestum og helstu tískublöðum heims.
Að kvöldi annars dags býður Cardin
Vikulesendunum á veitingastaðinn
Espace, sem er mest sóttur af glæsifólki
Parísarborgar, hinu svokallaða „þotufólki".
Og svo má ekki gleyma því að gist verð-
ur á því stórglæsilega Park Avenue hóteli,
sem er í hjarta borgarinnar.
Eitt af því sem boðið verður upp á í
Parísarferðinni er glæsileg skoðunarferð á
vegum PEUGEOT bílaffamleiðandans
franska. Vinningshafinn verður sóttur á
Hotel Park Avenue kl. 10 að morgni og
ekið verður um borgina með fararstjóra
og bílstjóra. Bíllinn, sem er af gerðinni
PEUGEOT 505 V6, er lúxusútgáfa af
þessu flaggskipi PEUGEOT. Leðursæti og
innrétting ein sú vandaðasta sem völ er á í
bílaiðnaðinum í dag.
Allt það markverðasta verður skoðað.
Eiffelturninn, Notre Dame kirkjan, Sigur-
boginn og að sjálfcögðu verður ekið eftir
Champs Elyssées breiðgötunni. Við þá götu
eru mörg af þekktustu fyrirtækjum
Frakklands. Mitterrand Frakklandsforseti
býr í Elysséehöllinni neðst við þessa götu.
Einnig verður Sacré Coeur kirkjan skoðuð,
en í nágrenni hennar er mikið listamanna-
líf. Þetta er aðeins lítið brot af því sem
fýrir augun ber á þessari lúxusferð í fylgd
PEUGEOT. □
Stúlka á Seyðisfirði hreppti
fyrstu Costa del Sol ferðina
Dregið var úr innsendum seðlum lesenda-
könnunar Vikunnar 15. júní og kom fyrsta
ferðin til Costa del Sol í hlut ungrar stúlku á
Seyðisfirði, Guðsteinu Hreiðarsdóttur, Tún-
götu 21. Enn er svo eftir að draga út tvær
ferðir til viðbótar.
Þessar sólarlandaferðir eru í boði Ferða-
miðstöðvarinnar Veraldar og gististaðarins
Castillo de Vigia sem er ný, glæsileg viðbygg-
ing við hinn glæsilega gististað Santa Clara,
sem er steinsnar frá iðandi mannlífi miðborg-
ar Torremolinos. Vinningshafinn fær íbúð
búna öllum hugsanlegum þægindum og með
útsýni yfir hafið. Og við minnum á að hér er
um að ræða boðsferð fyrir tvo, samtals að
verðmæti 125 þúsund kr.
Ferðamiðstöðin Veröld hefúr einkarétt á
íslandi á Castillo de Vigia.
Með Flugleiðum og Vikunni á vit glœsileika stórborgar
54 VIKAN 13. TBL. 1989