Vikan - 29.06.1989, Qupperneq 64
5NYRTINC5
„Vandamál í sambandi við hárvöxt eru ekki ný af nálinni," seg-
ir Sylvia Lewis. „Ég hugsa að manneskjan hafl barist við þau firá
upphafl vega en þau eru meira áberandi nú vegna aukinnar
áherslu á æsku og fegurð.“
magnsmeðferð sem byggist á
því að farið er með nál inn í
hársekkinn, niður að rótinni
og rafmagni hleypt á nálarodd-
inn. Næsta umhverfi rótarinn-
ar brennur saman og mögu-
leikar hársins til að taka til sín
næringu hverfa.
Áður en rafimagnsmeðferð-
inni er beitt þarf að kanna á-
stand húðarinnar með húð-
skynjara til að flnna hvernig
skammta ber rafstrauminn.
Þurr húð þarf meiri rafstraum
en feit húð. Nálin, sem er
notuð, er stíf og L-laga þannig
að auðvelt er að beina henni
niður eftir hárslíðrinu. Einung-
is tæpur millímetri af nálar-
oddinum gefur rafstraum en
hinn hluti nálarinnar er ein-
angraður. Þess vegna er engin
hætta á að hún brenni húðina
og skilji eftir sig ör.
í viðtali við Vikuna sagði
Sylvia að margar ástæður lægju
að baki þeirri ákvörðun hjá
konum að vilja losna við þessi
óæskilegu hár.
„Vandamál í sambandi við
hárvöxt eru ekki ný af nálinni.
Ég hugsa að manneskjan hafl
barist við þau frá upphafl vega
en þau eru meira áberandi nú
á dögum vegna aukinnar
áherslu á æsku og fegurð. Dag-
blöð og tímarit með áberandi
litmyndum á gljápappír eyða
þjást í hljóði og halda gjarnan
að þær séu ekki eins og fólk er
flest en það er auðvitað algjör
firra. Þeim flnnst hárvöxturinn
spilla fyrir sér og að þær njóti
sín ekki sem konur. Þannig að
þetta er raunverulegt vanda-
mál.“
— Hvers vegna fórstu út í að
þróa þessa rafmagnsmeðferð?
„Ég byrjaði á því fyrir um
það bil tíu árum. Ástæðan fýrir
því er sú að ég fór að efast um
þær kenningar sem lágu að
baki þeim aðferðum sem not-
aðar voru við háreyðingu. Mér
fannst þær missa marks. Ég
vildi þróa árangursríka aðferð
án þess að spilla húðinni. Þær
rafmagnsaðferðir, sem notaðar
hafa verið, hafa gert það að
verkum að opin á hárslíðrun-
um herpast saman og húðin
verður óslétt. Ég hef alltaf ver-
ið þeirrar skoðunar að ákveða
eigi rafstrauminn á grundvelli
húðrakans en ekki á grundvelli
hárþykktar. Gamla aðferðin
var líka miklu sársaukafýllri. Ég
álít að rafmagnsmeðferð til að
eyða hári sé meðal mikilvæg-
ustu þátta í starfi hverrar
snyrtistofu. Það er vonandi að
fleiri stofur tileinki sér þessa
aðferð og starfsfólk gefi sér
líka tíma til að ræða við kon-
urnar því það er þeim mikill
léttir að tala við einhvern sem
Burtmeð áæskilegu hárín!
TEXTI: GUÐNÝ DÓRA GESTSDÓTTIR
LJÓSM.: EGILL EGILSSON
Það getur reynst konum
þungbært að vera með mik-
inn hárvöxt á stöðum sem
að öllum jafhaði karlar hafa
einungis hárvöxt, svo sem á
lærum, vöngum, höku, efri
vör, brjóstum og bringu.
Það passar ekki við staðlaða
kvenímynd hér á Vestur-
löndum að vera með hár á
þessum stöðum. Margar
konur láta sér fátt um finn-
ast þó eitthvað sé af auka-
hárum hér og þar. Þær telja
það hégóma að vilja losa sig
við þessi „óæskilegu hár“.
Þær eru þó án efa fleiri sem
hafa miklar áhyggjur af
hárvextinum.
Óæskilegur hárvöxtur er al-
gengur meðal kvenna. Oft eru
það fordómar, ókurteisi og
óviðeigandi talsmáti sem ógna
62 VIKAN 13. TBL.1989
sjálfsmynd kvenna sem glíma
við þetta hárvaxtarvandamál.
Það er áríðandi að konur átti
sig á því að þetta snertir ekki á
neinn hátt kveneðli þeirra,
jafnvel þó að fólk sé með óvið-
urkvæmilegar og dónalegar at-
hugasemdir. Orsakir aukins
hárvaxtar hjá konum eru yfir-
leitt merki um truflun á horm-
ónabúskap líkamans. Jafnvægi
kvenhormóna þeirra hefur
raskast. Hárvöxtur getur kom-
ið í kjölfar alvarlegra sjúkdóma
en oftast er þetta einangrað
fyrirbrigði sem getur haft
óþægindi í för með sér fýrir
konuna. Ennfremur getur hár-
vöxtur aukist við tíðahvörf, ef
kona tekur pilluna eða ef kona
gengur með barn. Konur geta
leitað læknis til að láta kanna
hormónabúskapinn.
Sylvia Lewis, snyrtisérfræð-
ingur frá Bretlandi, hefur um
árabil þróað aðferð til að fjar-
lægja óæskileg hár. Þetta er raf-
miklu rými í fegurðardísir og
fegurðarmeðul. Það er enginn
hégómi að vilja losna við þessi
óæskilegu hár. Konur láta sí-
fellt meira að sér kveða í þjóð-
lífinu og eru orðnar áberandi.
Þær ganga í ný störf og eru
jafngildar körlum sem fyrir-
vinnur heimilanna. Þær verða
að leggja sig fram og þær vilja
líta vel út. Óæskilegur hár-
vöxtur getur lagst mjög þungt
á konur. Margar reyna allt til
þess að eyða hárunum og nota
misgóðar aðferðir til þess. Þær
hefur skilning á þessu vanda-
máli. Við samræðurnar gera
þær sér Ijóst að þær eru ekki
einar á báti. Mjög margar kon-
ur hafa kvartað við mig og
starfsfólk mitt yfir skilnings-
leysi og skorti á samúð sem
þær hafa mætt á öðrum snyrti-
stofum. Þær hafa iðulega fúnd-
ið fyrir því að þær eða þeir
sem veitt hafa rafmagnsmeð-
ferðina hafa litið niður á þær.
Það er nefnilega afar áríðandi
að snyrtifræðingurinn sýni
samúð og skilning." □
Sylvia Lewis hélt nýlega námskeið fyrir starfsfólk snyrtistofa í
aðferð sinni gegn óæskilegum hárvexti.
j