Vikan - 29.06.1989, Page 67
5TJORNUMERKI
SEINNI HLUTI
Minnið er
stórkostlegt
Fortíðin er krabbanum mik-
ils virði og hann leiðir hugann
að því liðna. Flestir krabbar
eiga mjög erfltt með að hugsa
fram á við - þeir lifa í fortíð-
inni. Þeir segja því oft við
börnin sín: - Svona gerðum
við ekki þegar ég var ungur.
Vel getur verið að aðalástæðan
fyrir því að þeir segja þetta sé
hvað þeir hafa gott minni. Af
þessu Ieiðir einnig að þeir
verða mjög góðir sagnfræðing-
ar og forða frá gleymsku
mörgu sem aðrir hefðu löngu
gleymt.
Líklega hættir engu stjömu-
merki eins til að skapa sér
áhyggjur og krabbanum.
Krabbinn verður að hafa
áhyggjur af einhverju og um
leið og fundin er lausn á ein-
um vanda verður hann að
flnna sér annað vandamál. Það
er ekki til nokkurs hlutar að
segja krabbanum að hætta að
hafa áhyggjur, hann getur það
Þtmnig er krabbinn
hreinlega ekki. En geri hann
sér grein fyrir þessu vandamáli
sínu getur það orðið til þess að
auðvelda honum að sjá hlutina
í réttu ljósi og skilja sjálfan sig.
Hræðslan getur orðið svo mik-
il að hún leiði til meltingar-
tmflana og stundum endar
þetta með því að krabbinn fær
magasár.
Krabbinn og ástin
Þegar krabbinn verður ást-
fanginn ná tilfinningarnar tök-
um á honum. Hann er ótrúlega
rómantískur en sá sem binst
krabba kemst ekki hjá því að
kynnast geðsveiflum hans. Líf-
ið getur orðið skemmtilegt en
það getur líka orðið svolítið
þreytandi. Samvera að kvöld-
lagi getur reynst yndisleg eða
fúllkomlega misheppnuð. í
báðum tilvikum byggist það
auðvitað mest á því hversu
þolinmóður félaginn er og hve
langt hann leyfir krabbanum
að ganga. Eitt er víst að sam-
band við krabba getur slegið
öll met.
Ef maki krabbans er áhyggju-
laus og sættir sig við bæði
skin og skúri í sambúðinni
gæti lífið orðið ánægjulegt.
Ástfanginn krabbi sýnir yfir-
leitt sína rómantísku hlið og
hugsar vel um sinn eða sína
heittelskuðu. En vegna þess
hve krabbarnir binda sig fast
við allt umhverfis sig eiga þeir
mjög erfitt með að slíta sam-
bandi þótt það væri hið eina
rétta.
Krabbinn sem vinur
Vinátta við krabba endist
yfirleitt allt lífið. Ef krabbi
eignast vin á skólaárunum,
sem síðan flyst til fjarlægs
staðar, þá berast vininum
ævinlega jólakveðjur og gjafir
með reglulegu millibili. Búi
vinurinn nærri krabbanum
ætti hann að gæta þess vel að
lenda ekki í þrætum við hann
því krabbinn tekur lífið og til-
veruna mjög alvarlega. En það
er alltaf hægt að fa að gráta á
öxl krabbans ef illa gengur og
það þótt langt sé síðan fúndum
bar síðast saman.
Krabbinn og
hjónabandið
Fá stjörnumerki leggja jafn-
mikið upp úr hjónabandi og
krabbinn. Það kann að vera
vegna þess að krabbinn finnur
sig ekki heilan og fullkominn
fyrr en hann er kominn í
hjónaband. Krabbar leggja oft
mikið á sig til þess að treysta
hjónabandið. Þeir eru yfirleitt
mjög góðir matreiðslumenn,
bæði konur og karlar, og dug-
legir við heimilisstörfin.
Krabbamóðir getur oft ekki
slitið sig frá heimilisstörfunum
og segist ekki geta farið út
vegna þess að hún eigi eftir að
strauja þvottinn, þótt raun-
veruleg ástæða sé ótti við að
yfirgefa öryggið innan veggja
heimilisins.
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þér gengur vel með verk-
efni þín og má segja að þú sért í
bland mjög heppinn. Rómantíkin
skýtur upp koilinum, þar sem þú
hafðir ekki vænst hennar. Sam-
eiginlegt skipbrot treystir vináttu-
böndin.
Nautið
20. apríl - 20. maí
w Vertu hress í bragði, þótt
margt á móti blási. Þú veist af
gamalli reynslu að áhyggjur bæta
ekki ástandið. Leggðu krafta
þína í verk þín og sannaðu til að
þau mjakast f rétta átt.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú hellir þér af krafti í
verkefni sem þú og félagar þínir
eru nýbyrjaðir á. Þú getur hagn-
ast nokkuð á ferðum þfnum,
þótt það sé ekki beinlínis til-
gangurinn. Verslaðu á fimmtu-
dag.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þú leggur of mikið upp
úr áliti annarra. Líkur eru til að
þetta ósjálfstæði eigi eftir að
koma sér illa. Þér hefur verið trú-
að fyrir verki sem þú vanrækir
fullkomlega.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Þú getur gert góð við-
skipti á mánudag. Þú verður
ásamt starfsfélögum þínum fyrir
miklum áhrifum af nýjum starfs-
félaga. Þér býðst tækifæri sem
þú getur e.t.v. hagnýtt þér í
sumarfríinu.
Meyjan
23. ágúst - 22. sept.
Það lítur út fyrir að þú
sért einráður um of; athugaðu
hvort það hefur eins góð áhrif á
umhverfið og þú ætlast til.
Heppnin verður með þér á þriðju-
daginn. Þú skemmtir þér um
helgina.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Fyrirætlanir þínar renna
út í sandinn; þú berð þó gæfu til
að sjá hið broslega við hlutina.
Nágranni þinn er afar þaulsætinn
og forvitinn. Þér verður boðið út
að borða síðari hluta vikunnar.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Þú ert ekki eins hreinn og
beinn og æskilegt væri. Segðu
álit þitt á réttum stöðum, en
vertu ekki að dæla því yfir aðra,
sem hafa eflaust nóg með sig.
Rómantískt einkalíf.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Langt samtal við vin fær
þig til að breyta afstöðu þinni í
þýðingarmiklu máli. Uppáþrengj-
andi persóna á mikinn þátt í
gerðum þínum á miðvikudag. Þú
gætir brúað bilið við kunningja
með símtali.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Reyndu að ná samkomu-
lagi með rósemi. Láttu ekki félag-
an hafa truflandi áhrif á þig.
Sniðgakktu félagslífið ef þú átt
þess nokkurn kost, að sinni. Þú
færð viðurkenningu fyrir löngu
unnin störf.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Brátt gerast hlutir er hafa
mikil áhrif á framtíð þína og
þinna. Bittu ekki of miklar vonir
við gagnstæða kynið. Líkur eru á
að stríðni og gáleysishjal spilli fyr-
ir þér.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Þú sinnir mest þeim mál-
um sem þér eru að skapi. Á-
kveðnir þættir í starfi þínu eru
mjög lýjandi. Vertu ekki ragur við
að segja meiningu þína. Reyndu
að hafa það náðugt um helgina.
5TJÖRNU5PÁ
13. TBL. 1989 VIKAN 65