Vikan - 29.06.1989, Qupperneq 68
Fólk
hefur
alltaf
Það er ekki hversu mikið er sýnt af beru hörundi sem skiptir höfuðmáli — heldur
hvemig!
Eftirtektarvert er hversu lítið leikkon-
umar í Dangerous Liaisons virðast mál-
aðar og nú er eðlilegt útlit það nýjasta í
förðun. Förðunarmeistarinn, sem farð-
aði andlit Uma Thurman fyrir þessa
myndatökuna, notaði þó jafnmikinn
farða og vanalega - til þess að ná þeim
áhrifúm að hún virðist alls ekkert
máluð.
Þessir stöðugu flutningar og frjálslegt
uppeldi kenndu henni snemma að treysta
á sjálfa sig og flmmtán ára gömul flutti hún
tii New York-borgar. Þar vann hún í
stuttan, en um leið árangursríkan, tíma
sem sýningarstúlka — á sama tíma og hún
reyndi fyrir sér á leiklistarbrautinni. Borg-
in er enn í miklu uppáhaldi hjá henni
vegna þess að þar segist hún geta horft á
aðra í stað þess að aðeins sé horft á hana.
Samt virðist fatasmekkur hennar, sem
segja má að sé „Vinstribakka barokk", ekki
í samræmi við þetta. „Ég er að reyna að
losa mig undan þessu svarta," segir hún
hlæjandi og á þá við rauðbrúnu sokkabux-
urnar sínar, gamaldags síðan jakka og
skærgult bindi.
„Fólk hefur hvort sem er alltaf glápt á
mig af því að ég er stór, undarlega vaxin
og dálítið öðruvísi. Það er bara núna sem
það glápir á mig af því að það hefúr séð
þessa öðruvísi manneskju á hvíta tjaldinu.“
FÓLK
glápt
á mig
- segir Uma Thurman,
unga leikkonan í
Dangerous Liaisons
ÞÝÐING: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
Skröksögumar um ævintýri Munc-
hausens baróns vom afar vinsælar
einu sinni — og verða það án efa aftur
þegar myndin verður sýnd sem verið
er að gera effir þeim. Ekki sakar að í
hlutverki hinnar einu og sönnu Ven-
usar verður Uma Thurman sem vakti
verðskuldaða athygli fyrir leik sinn I
myndinni Dangerous Liaisons. Þar lék
hún Cécile, fimmtán ára óspillta ung-
mey, nýkomna úr klausturskóla, sem
hinn ómótstæðilegi Valmont afineyj-
aði og kenndi síðan alls konar miður
siðprúða ástarleiki. Uma þótti skila
hlutverkinu afar vel og ná að sýna
unga stúlku sem er hvort tveggja í
senn bamaleg og veraldarvön.
„Það sem mér finnst svo áhugavert við
Cécile er að hún verður spillt án þess að
glata sakleysinu," segir Uma. „Spillt kona
var í þá daga hin eðlilega kona.“ Uma er
átján ára núna og þótt aðrar unglingsstúlk-
ur fái yfirleitt ekki hlutverk nema sem kyn-
æsandi skólastelpur í unglingamyndum
fær hún klassískari hlutverk vegna þess
hvernig hún ber sig og vegna sérstakrar
fegurðar sinnar. Hún er dóttir prófessors í
austurlenskum trúarbrögðum og sænsks
geðlæknis, sérstaklega sjálfstæð ung kona
sem ólst upp í hinum ýmsu háskólabæjum
í norðausturhluta Bandaríkjanna og í tvö
ár á Indlandi.
66 VIKAN 13. TBL. 1989