Vikan - 13.07.1989, Page 20
HAR
Hvað gera stjörnurnar
þegar hárið er ómögulegt?
20 VIKAN 14. TBL. 1989
BROOKE SHIELDS: Ég strái
örlitlu af barnapúðri í hárið og
bursta það síðan vandlega...
þannig á ég auðveldara með að
ráða við það. Mér flnnst líka
gott að setja hárið upp í stað
þess að hafa það slegið.
ANGIE DICKINSON: Hárið á
mér er ekki nógu sítt til að ég
geti tekið það í tagl þannig að
ég set það upp í gamaldags
hnút og dreg fram nokkur hár
í kringum andlitið.
MELBA MOORE: Þegar perm-
anentkrullurnar verða óvið-
ráðanlegar smyr ég geli í hárið
og greiði það beint aftur. Ég
set svo froðu í það og greiði
endana þannig að þeir virðist
límdir á hálsinn á mér. Hárið
lítur þá út eins og það sé úr
silki þó það sé í rauninni
grjóthart.
CRYSTAL GAILE: Ég þvæ það
aftur.
MARIE OSMOND: Ég tek það
beint aftur og set í eins fastan
hnút og ég get, úða síðan yfir
með lakki. Til þess að greiðsl-
atl sýnist ekki of formföst set
ég fallegar spennur í kringum
hnútinn.
LYNN REDGRAVE: Ef það er
flatt eins og pönnukaka og ég
vil að það sé létt og loftkennt
bursta ég það í öfúga átt. Það
gefur því léttleika þannig að
það sýnist þykkara. Skiptingin
hjá mér hefúr tilhneigingu til
að vera frá vinstri til hægri
þannig að ég bursta það frá
hægri til vinstri. Ef það er út
um allt - ég er með sjálfliðað
hár og raki breytir því í gadda-
vír og ég vil að það sé flatt eins
og pönnukaka, þá nota ég
stærstu gerð af upphituðum
rúllum. Um leið og ég set þá
síðustu í tek ég þá fyrstu úr og
bursta það síðan slétt.
JACQUELINE BISSET: Ég
nota pokaaðferðina: næri hárið
með möndluolíu sem ég trúi
virkilega á — set pokann á
höfuðið til þess að halda
rakanum og til að tryggja að
olían fari djúpt inn í hársvörð-
inn. Yfirleitt höfúm við með
okkur samkomulag, hárið mitt
og ég. Ég þvæ það reglulega og
læt það í friði ef það lætur mig
í friði.
CHERYL TIEGS: Ég væti það
með úðara, greiði það og læt
það vera slétt.
MARISA BERENSON: Ég set
höfúðið undir vatnsbununa og
læt hárið, sem er sjálfliðað,
þorna án hjálpar hárþurrku.
Síðan úða ég sódavatni yfir og
bursta það frá andlitinu.
MORGAN FAIRCHILD: Hár
lakk hjálpar - sé það notað í
hófi. Hárið sýnist þykkara ef ég
bursta það fram, úða aðeins
með lakki og hristi það aftur.
Úða síðan aðeins yfir það aftur.
Ef hárið er rafmagnað úða ég
örlitlu af lakki í lófann og strýk
honum svo snöggt yfir hárið.
SUSAN GEORGE: Ég er viss
um að mitt ráð er ódýrast,
fljótlegast og auðveldast Ég
þvæ mér um hárið á hverjum
morgni — alltaf. Og ef mér
finnst það ekki nógu lifandi
þvæ ég það aftur og blæs þurrt.
Þetta ráð bregst aldrei.
MARGAUX HEMINGWAY: Ef
ég hef tíma og ef veðrið er
þannig þurrka ég hárið úti í
sólinni.
RACHEL WARD: Hárið er
fallegast þegar hugsað er um
það en ekki verið að vesenast
með það. Flestar konur nota of
mikið lakk eða gel. Hárið á
mér er fallegast ef það er
hreint og gljáandi... engin hár:
greiðsla í heimi getur betr-
umbætt náttúrulegt og heil-
brigt útlit!
PALOMA PICASSO: Þó hárið
á mér sé nokkuð gott er það
stundum til vandræða. Fyrst
reyni ég þá að fá á það lag með
froðu. Ef það þrjóskast við set
ég gleraugu upp á höfúðið.
Þau gefa mér þá hæð og um-
gjörð sem mig vantaði. Gler-
augun sem ég held mest upp á
eru með skrautlegri umgjörð
sem passar við allt. Síðan ýfi ég
hárið út til hliðanna svo það
verði sem umgjörð um andlit-
ið.
MARY CUNNINGHAM: Það
er hægt að laga allt með
kömbum. Þeir geta látið hvaða
hárgreiðslu sem er líta nokkuð
vel út. Við sérstök tækifæri
nota ég ný blóm.