Vikan - 13.07.1989, Síða 23
POPP
TEXTI: PÉTUR STEINN
Hljómsveitin Greif-
arnir hefur nú í
nokkur ár verið í
iremstu röð. Breyt-
^ar eru ekki tíðar og sam-
starfið hefur gengið mjög vel.
Greifarnir eru afkastamiklir og
hafa sent ffá sér fjöldann allan af
lögum á ýmsum safnplötum.
Aðeins ein breiðskífa hefur
komið frá þeim en önnur er í
vinnslu þessa dagana. Áætlað
er að hún komi út fyrir næstu
jól. Eins og aðrar hljómsveitir,
sem hafa spilamennskuna sem
liflbrauð, verða Greifarnir á
ferð um landið í sumar. Greif-
arnir hafa farið nýstárlegar
leiðir til að vekja á sér athygli.
Þannig urðu þeir fyrstir til að
auglýsa dansleiki sína í sjón-
varpi og hafa fengið Vífllfell hf.
til að borga hluta kostnaðarins.
Hljómsveitin er rúmlega
þriggja ára gömul en meðlim-
irnir hafa starfað mun lengur
saman. „Við fengum Gunna
trommara lánaðan eina helgi
og sú helgi er ekki enn liðin
þrátt fyrir að fimm ár séu
síðan,“ sagði Kristján Viðar,
hljómborðsleikari sveitarinn-
ar. „Hann spilaði með þunga-
rokkssveitinni Lúsifer og okkur
vantaði trommara. Það var
svolítið erfitt í byrjun að
hemja hann en þetta gengur
allt saman mjög vel i dag,“
bætti Sveinbjörn gítarleikari
við. Ég hitti Kristján Viðar og
Sveinbjörn ásamt bassaleikar-
anum Jóni Inga á heimili
Kristjáns Viðars til að forvitn
ast um hagi þeirra.
Þegar Felix Bergsson, fýrr-
um söngvari Greifanna, hætti
fór Gróa á Leiti af stað. Sagt var
að mjög djúpstæður ágreining-
ur væri á milli hans og Kristj-
áns Viðars. „Ég get fullyrt að
Felix hætti ekki vegna ágrein-
ings,“ sagði Kristján Viðar.
,Auðvitað eru skoðanaskipti
en Felix ætlaði sér alltaf að
verða leikari og þarna fékk
hann tækifærið til að komast í
skóla. Hann fór með okkur á
bail eftir að hann var
hættur og söng
með okkur.“
Hvað veldur því að hljóm-
sveitir fara sífellt í ferðalög yflr
sumartímann?
„Það kemur aUtaf smáfiðr-
ingur þegar fer að vora,“ segir
Frh. á næstu síðu
GREIFARNIR í VIKUVIÐTALI:
„VeHon eins og hjá
IHilli rHfangaverslwn"