Vikan - 13.07.1989, Síða 25
NÁM5KEIÐ
Myndast þú vel?
Hvernig líður okkur fyrir framan myndavél? Hvernig get-
um við unnið með Ijósmyndara svo útkoman sé góð?
Hvernig undirbúum við útlit okkar?
Gústaf Guðmundsson ljósmyndari og Kristín Ingvadóttir ljósmyndaíyrirsæta að störf-
um á ljósmyndastofunni. Á litlu myndinni sjáum við Irene Jónsdóttur farða Kristínu,
en Ari Alexander Magnússon hárgreiðslumaður vinnur að hárgreiðslunni.
TEXTI: SIGRÚN HARÐARDÓTTIR
Ný námskeið eru hafln sem ætl-
uð eru til þess að aðstoða fólk
við að fara í myndatökur af ör-
yggi. Mikil eftirspurn er eftir
nýjum ljósmyndafyrirsætum, jafnt konum
sem körlum. En alltaf er verið að leita að
nýju fólki með reynslu. Hvernig getur
ungt fólk, sem áhuga hefur á því að spreyta
sig á ljósmyndafýrirsætustörfúm, öðlast
reynslu og byggt upp öryggi?
Ljósmyndarinn Gústaf Guðmundsson,
förðunardaman Irene Jónsdóttir og fyrir-
sætan Kristín Ingvadóttir hafa ákveðið að
mæta eftirspurninni. Gústaf lýsti því hve
erfitt það getur verið fyrir bæði fyrirsæt-
una og ljósmyndarann þegar fólk er að
hefja feril í ljósmyndafyrirsætustörfum.
Þótt módelfyrirtækin vilji ota fyrirsætun-
urn áfram, vill það gjarnan vera svo að þær
séu feimnar, frosnar og þekki ekki vinnu-
brögð ljósmyndara. Það fer þá ógnartími í
að leiðbeina fyrirsætunni og myndir, sem
ætti ekki að eyða nema einni filmu í, geta
tekið upp í tíu filmur. Á námskeiðinu læra
þátttakendur við hverju ljósmyndarinn
býst, til hvers hann ætlast. Módelsamtökin
hafa ekki lagt áherslu á þennan þátt og því
er þörf fýrir leiðbeiningu á þessu sviði.
Kristín ætlar að kenna fólki hvernig það
á að fara að, hvernig það á að slappa af,
hvernig það getur best unnið með ljós-
myndaranum, hvað það á að hafa með sér
í myndatökuna, svo eitthvað sé nefnt. Hún
segir hugarfarið vera mikilvægt því ótti,
feimni, vanlíðan og svefnleysi sjáist glöggt
á mynd. Kristín sagði það vera erfltt bæði
fýrir módel og ljósmyndara ef módelið
hefur e.t.v. aðeins einu sinni farið í ljós-
myndatöku áður eða jafnvel aðeins látið
taka af sér passamyndir.
Irene ætlar að kenna þátttakendum að
farða sig. Hún verður með Christian Dior
snyrtivörur til þess að farða þá með, en
förðun er bæði fyrir konur og karla. Það er
afleitt ef maður kemur til myndatöku
órakaður og ótilhafður, nema til þess sé
beinlínis ætlast af ljósmyndaranum. Það
reynist oft nauðsynlegt að skerpa línur á
andlitum karla rétt eins og hjá konum og
oft þurfa þeir einhvern andlitsfarða. Þá er
um að gera að hafa lært handbrögðin ef
engin förðunardama er til staðar.
Það er alls ekki nóg að kunna að mála
sig fýrir dansleiki. Myndavélin krefst ann-
ars konar förðunar. Ekki er heldur sarna
hvort um er að ræða svart-hvítar myndir
eða litmyndir. Fyrir svart-hvítar myndir
þarf að gá að mismunandi blæbrigðum
farðans en litmyndir krefjast umhugsunar
um lit farðans. Gústaf benti á að vilji ung-
menni safna sér í ljósmyndamöppu fyrir
módelfyrirtæki sé algengast að þær séu
svart-hvítar. Þótt ekki sé við því að búast
að hver ljósmyndafyrirsæta læri á einum
degi hvernig hún skuli mála sig í einstök-
um tilvikum, flýtir óneitanlega mjög mikið
fýrir að hafa lært einhver handbrögð og
skilið hinar mismunandi kröfur.
Námskeiðin eru í tvennu lagi. í fýrsta
lagi verður röð fýrirlestra þar sem m.a.
verða skoðaðar myndir. Þá taka þátttak-
endur virkan þátt í umræðum um hvað sé
rétt gert og hvað sé að og hvað mætti gera
til þess að bæta myndirnar ef með þarf.
Stefnt er að því að gera þennan þátt
skemmtilegan og líflegan þannig að þátt-
takendur geti haft gaman af. Síðan fara'
þátttakendur að æfa sig fyrir ffaman spegil
heima hjá sér og mæta að viku liðinni í
seinni áfanga námskeiðsins.
i seinni þætti námskeiðanna verða allir
ljósmyndaðir í svart-hvítu og allir taka þátt
í að veita ráð og aðstoð, til þess að virkja
sjálfstæð vinnubrögð og hjálpast að. Hár-
greiðslumaður verður með til þess að gefa
góð ráð þótt ekki muni hann greiða þátt-
takendum. Síðan fá allir myndir af sér
gefnar. Vilji einhverjir spreyta sig á módel-
markaðinijm getur Gústaf síðan boðið
þeim afslátt á myndatöku fyrir mynda-
möppuna, sem er alltaf stór útgjaldaliður
fyrir fyrirsætur sem eru að koma sér á
framfæri.
Karlar og konur, sem áhuga hafa, geta
hringt í Gústaf Guðmundsson í síma
22143 frá kl. 6 til 9 á kvöldin og fengið
upplýsingar um námskeiðin. □
14. TBL.1989 VIKAN 25