Vikan - 13.07.1989, Blaðsíða 56
Púðluhvolpurinn Héla fyrsta daginn á nýju heimili.
ER RÉTT AD FÁ SÉR HUND
-OGÞÁ HVAÐA HUND?
TEXTI OG MYND:
FRÍDA BJORNSDÓTTIR
Iangar þig til að eignast
hund? Ef svarið er já-
kvætt þá er rétt að benda
<á þér á að margt þarf að
athuga áður en hvolpurinn er
fenginn og fluttur inn á heimil-
ið.
Fyrst af öllu er rétt að hug-
leiða hvort heimilisfólkið hafi í
raun tíma til að fá sér og ala
upp hund. Það þarf að vera
nokkuð tryggt að hundurinn
sé ekki látinn vera einn heima
tímunum saman. Það þolir
enginn hundur til lengdar. Og
hvar búið þið, í lítilli íbúð í
blokk eða húsi, í raðhúsi eða
einbýlishúsi? Hverju skiptir
það? spyr líklega einhver. Jú,
það skiptir töluverðu máli því
hundurinn þarf að hafa sæmi-
legt rými og það sem meira er
þá gilda þær reglur að minnsta
kosti í Reykjavík að fólk þarf
að leita heimildar sambýlis-
fólks áður en það fær sér hund,
svo fremi það búi ekki í einbýl-
ishúsi.
Og þá erum við einmitt
komin að reglum um hunda-
hald sem í gildi eru. Þær eru
nokkuð mismunandi eftir
sveitarfélögum og því er rétt
að kynna sér gildandi reglur á
hverjum stað. í Reykjavík hafa
reglurnar verið hertar bæði
hvað varðar leyfisveitingu
sambýlisfólks og útivist hunda.
Hundar mega ekki lengur vera
í Öskjuhlíðinni, svo dæmi sé
tekið, en þangað fóru margir í
göngu með hunda sína og
hundar mega nú alls ekki
koma inn í almenningsgarða
borgarinnar, sama á hvaða
tíma sólarhrings það er. Af
þessu leiðir að fólk með stóran
hund, sem þarf mikla hreyf-
ingu, þarf að leita lengra en
áður til þess að viðra hundinn
og um þetta þarf að hugsa þeg-
ar hundurinn er valinn.
Hjá HRFÍ er líka hægt að fá
upplýsingar um hvað hrein-
ræktaður hundur á að kosta,
en hver deild innan félagsins
ákveður hámarksverð tegund-
arinnar. Til hvers er svo að
kaupa sér fokdýran, hreinrækt-
aðan hund þegar hægt er að fá
hund gefins eða fyrir lítið hjá
nágrannanum? Kannski er eng-
in ástæða til þess því vissulega
geta blendingar verið bæði
góðir og fallegir, en sækist fólk
eftir ákveðnum eiginleikum
eða skapgerðareinkennum hjá
hundinum er líklegra að menn
verði ekki fýrir vonbrigðum ef
valinn er hreinræktaður
hundur. Það þarf að leita sér
upplýsinga um bæði móður og
föður áður en hvolpurinn er
tekinn til þess að hafa ein-
hverja hugmynd um hvernig
hann á eftir að verða í framtíð-
inni. Sé móðirin til dæmis
grimm og lítt mannelsk er ekki
fráleitt að ætla að hvolpurinn
geti erft geðslag hennar. Takið
því aldrei hvolp undan
grimmri tík. Og hafið þið
ákveðið að taka blending þá
munið að ástæðulaust er að
borga fyrir hann hátt í sama
verð og væri um hreinræktað-
an hund að ræða. Þá eruð þið
einfaldlega að kaupa „hvolpinn
í sekknum" eins og einhver
kallaði það. Hreinræktuðum
hundi á að fylgja ættbók frá
Hundaræktarfélagi íslands
enda á ræktandinn að hafa lát-
ið skrá hann þar.
Nú eruð þið áreiðanlega
búin að ákveða hvað ykkur er
fýrir bestu og hvolpurinn hef-
ur verið valinn. Þá er næst að
sækja hann og fáera á nýja
heimilið. Hvolpinn má aldrei —
og ég endurtek AI.DREI - taka
ffá móðurinni fyrr en hann er
orðinn tveggja mánaða gamall.
Fram að þeim tíma er hann að
læra ýmislegt nauðsynlegt af
móður sinni, sem á eftir að
koma honum til góða í lífinu
og hann þarf á umhyggju
hennar að halda fram að þess-
um tíma. Það eru mikil við-
brigði fýrir hvolpinn að hverfa
frá móður og systkinum og því
verður að sýna honum hlýju
og umhyggju á nýja heimilinu.
Hann þarf að fá rúm að liggja í
á rólegum stað og það sakar
ekki að setja hitapoka með
heitu vatni, vafinn innan í
eitthvað mjúkt, í bælið hans á
kvöldin. Það minnir hann á
hlýjuna sem hann fann af móð-
urinni. Og eitt enn, fáið með
ykkur eitthvert stykki eða
teppisbút frá gamla heimilinu
með lykt sem hvolpurinn
þekkir og leggið í bælið hans.
Það gerir hann öruggari þegar
hann er kominn á stað þar sem
öll lykt er honum ffamandi.
Fyrstu næturnar geta orðið
svolítið erfiðar og hvolpurinn
á trúlega eftir að væla en sé
hann af stóru kyni og hafið þið
ákveðið að leyfa honum ekki
að liggja uppi í rúminu hjá
ykkur í ffamtíðinni er ekki um
annað að ræða en sýna hörku
og bíða þess að hvolpurinn
jafhi sig.
Við látum þetta nægja um
hunda að sinni en segjum ykk-
ur meira um fýrstu daga
hvolpsins á heimilinu í næstu
Viku.
C5ÆLUDÝRIIÍ
54 VIKAN 14. TBL. 1989
-X