Vikan


Vikan - 13.07.1989, Qupperneq 68

Vikan - 13.07.1989, Qupperneq 68
Höfundur þessa greinastúfs er bandarískur og útskýrir hér á gamansaman hátt hvers vegna hann nennir ekki lengur að horfa á Dallas. Hann hafl fyrir löngu verið búinn að sjá það út, að dauði Bobbys væri ekki annað en vondur draumur, eins og kom svo á daginn. En hvað um hinar hetjumar? Horf ið á Maddie og David með börnin sín sex - og Crockett og Tubbs í fatabúðinni sinni Kannski eru þetta bara draumar sem þú hefur verið að horfa á í upp- áhaldssjón- varpsþáttunum þínum — eins og í Dallas. V’inir mínir eru loksins farnir að skilja hvers vegna ég nenni ekki að horfa á Dallas. Það er ekki vegna þess að ég sé að monta mig en það er nú bara svo að ég var fyrír löngu búinn að sjá út að dauði Bobbys vaeri ekki annað en vondur draumur. Mér skjátíaðist bara þegar ég sagði að það ættí eftlr að koma í ljós að allir Dallas-þættirnir, sem sýndir höfðu verið firam að því, væru í raun ótrúlega flókin martröð með auglýs- ingum. Eins og allir vita hafði ég rangt fyrir mér. Jafnvel framleiðendur Dall- as myndu ekki ganga svo langt - eða hvað? Þeir eru hvort sem er búnir að nota þetta bragð einu sinni og hvað ætti svo sem að stöðva þá í því að gera það aftur í hvert sinn sem skoðanakannanir sýna að vinsældirnar hafa hrapað? Eru áhorfendur orðnir leiðir á söguþræðinum? Láttu þá bara sem hlutirnir hafi aldrei gerst. Eins og sjónvarpsstöðv- arnar hegða sér nú líður vart á löngu þar til þær nota þetta bragð allar. í stað þess að hætta við misheppnaða þætti er aðal- söguhetjan bara látin vakna einn góðan veðurdag á alveg splunkunýjum stað og í kring- um hana eru nýir leikarar í aukahlutverkunum. Hér á eftir fara nokkrar spár um sjón- varpsmartraðir framtíðarinnar. • í Miami Vice mun Sonny Crockett vakna einn morgun- inn og uppgötva að í undan- förnum þáttum hefúr hann ver- ið að sjá sýnir vegna notkunar á ofskynjunarlyfjum. í raun og veru eru hann og Ricardo Tubbs ekki leynilögreglumenn í Miami heldur eigendur ítalskrar fataverslunar á Palm Beach. Edward James Olmos er í aukahlutverki sem voldugur ritstjóri herratískublaðs. • Maddie Hayes er í raun gift David Addison, að minnsta kosti samkvæmt því sem við komumst að þegar hún vaknar kaldsveitt í \ok Moonsbine þátt- arins þar sem hún hangir utan í bjargi, að því komin að falla. í raun og veru eru þau leikendur í fjölskyldugamanþætti þar sem hjónin reka saman leynilög- reglustofu í húsi sínu í úthverfl stórborgar. Milli mála eiga þau aldrei of annríkt til að leysa vandamál barnanna sinna sex (tvö þeirra eru tökubörn) og heimilishundsins, Rovers. • Það borgar sig að fylgjast vel með Growing Pains því allt í einu mun Alan Thicke þurrkast út og í staðinn sjáum við dr. Cliff Huxtable sofandi í sófan- um í The Cosby Show. Cliff vaknar, fer inn í eldhúsið og segir við Clair konu sína: „Mig var að dreyma að við værum hvít og aðalleikararnir í fjöl- skyldugamanþáttum á annarri stöð.“ • Munið að stilla á Hill Street Blues ef þið viljið láta koma ykkur á óvart. Það kemur nefhi- lega í ljós að sá sem Daniel Tra- vanti leikur, Frank Furillo, er í rauninni pitsa-maður! Þeir flóknu þræðir, sem við höfum fylgt í Hill Street Blues allan þennan tíma, eru ekkert annað en draumur hundleiðs eiganda pitsa-veitingastaðar sem eig- inkonan rífst í daginn út og dag- inn inn. Kona hans, Joyce, sem nú er leikin af Bea Arthur (Golden Girls), og börnin hans ellefu eru ekki lengi að ná hon- um niður á jörðina í þessum fjölskyldugamanþáttum. Þegar allar þessar breytingar hafa átt sér stað verða fram- leiðendur Dallas væntanlega komnir í mikla vinsældabar- áttu. Nú verður því opnað fyrir allar flóðgáttir; Jock Ewing rís upp firá dauðum. Cliff Barnes fer í aðgerð, skiptir um kyn og gifitist að lokum Mark Graison. J.R. mun gefa hlut sinn í Ewing Oil til heimilis fyrir flækings- ketti og hann rakar af sér hárið og gerist búddisti. Því miður mun ekkert af þessu þó duga til að bjarga þáttunum, jafiivel ekki þó að Mark Graison vakni og fari inn á baðherbergi þar sem Pam Ewing er í sturtu — enda hafa þau alltaf verið gift. Hann hafði bara verið að dreyma að hann væri að dreyma að Pam hefði dreymt...æ, þú veist hvað ég á við. □ 66 VIKAN 14. TBL. 1989
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.